BMW 325ci E46

Hér getur þú auglýst BMW-inn þinn til sölu.

BMW 325ci E46

Postby Guest » Tue 20. Jan 2004 21:47

BMW 325ci árgerð 1999, (kom á götuna í júlí)
Ekinn 56 þúsund kílómetra
Skoðaður 04
Litur Svartsanseraður
Hestöfl 170-180(Loftsía)
Bíllinn er beinskiptur
Skráður 5 manna
2. dyra

Aukahlutir og búnaður

ABS hemlar
Armpúði
ASR spólvörn
16 tommu Bmw álfelgur
Nýjar 18 tommu M3 evolution felgur á low profile dekkjum(Sérpantað í sumar í B&L kostar vel yfir 400 þúsund)
M3 spoiler
Fjarstýrðar samlæsingar
Geisladiskamagasín
Glertopplúga
Höfuðpúðar aftan
Innspýting
Kastarar
Leðuráklæði
Litað gler
Líknarbelgir
Rafdrifin sæti
Rafdrifnar rúður
Rafdrifnir speglar
Reyklaust ökutæki
Samlæsingar
Útvarp
Vökvastýri
Þjófavörn
Þjónustubók
Fullkomið Harman/Kardon hljóðkerfi
Glær stefnuljós allan hringinn og bláar perur í aðalljósum

Athugið þetta er toppeintak, felgurnar á honum er þær einu sinnar tegundar á Íslandi. Bíllinn er í toppstandi, hefur fengið 100% viðhald hjá fyrri eigendum, og hefur alla tíð verið þjónustaður af B&L. Lakkið er perfect, engar rispur og ekkert grjótbarið, hefur ávallt verið handþveginn af fagmönnum.

Verð 3.100.000
Áhvílandi 1.300.000
Mánaðarleg afborgun 35 þúsund
Skoðar skipti á ódýrari
Gott staðgreiðslutilboð

Upplýsingar: Einar 8242223


Myndir er hægt að nálgast hér
http://bilasolur.is/Main.asp?SHOW=CAR&B ... _ID=503999
Guest
 

Postby Guest » Wed 21. Jan 2004 13:58

viltu selja felgunar? :D
Guest
 

Re: BMW 325ci E46

Postby Svezel » Wed 21. Jan 2004 14:37

Anonymous wrote:BMW 325ci árgerð 1999, (kom á götuna í júlí)
Ekinn 56 þúsund kílómetra
Skoðaður 04
Litur Svartsanseraður
Hestöfl 170-180(Loftsía)
...


Er þetta ekki 325? Þá er hann 192hö ekki satt?

Flottur bíll
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby Guest » Wed 21. Jan 2004 15:33

Þetta er 323 með 2,5 lítra vél. Skráður 170 hestöfl

Það gæti alveg komið til greina að selja felgurnar sér.
Guest
 

Postby Guest » Wed 21. Jan 2004 15:42

hvað væri svona verð hugmynd fyri felgunar þá? :D
Guest
 

Postby Svezel » Wed 21. Jan 2004 15:45

Fyrirgefðu afskiptasemina en er þetta þá ekki 323 og ætti að vera auglýstur sem 323 ekki 325.
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby fart » Wed 21. Jan 2004 17:18

word.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby Guest » Wed 21. Jan 2004 18:01

Ég er nú bara að auglýsa þennan bíl fyrir félaga minn, það virðist vera viðloðandi við þennan vef, að menn séu með einhver skítakomment yfir þessum auglýsingum hér. Tek þessu ekki nærri mér eða neitt slíkt, bara leiðinlegt fyrir annars góðan vef. Það má vel vera að þessi bíll ætti að vera auglýstur sem 323 en það stendur hvorki á honum né í skráningarskírteininu og þar að auki er bíllinn með 2,5 lítra vél. Flestar bílasölur skrá þessa bíla hjá sér sem 325, þar á meðal Bílasala Reykjavíkur sem ég treysti nú alveg ágætlega. Varðandi felgurnar þá verða þær ekki seldar á neitt slikk, endilega hringdu bara í eigandann og gerðu tilboð. Helst vill eigandinn selja þær með bílnum.
Guest
 

Postby Tommi Camaro » Wed 21. Jan 2004 18:04

Svezel wrote:Fyrirgefðu afskiptasemina en er þetta þá ekki 323 og ætti að vera auglýstur sem 323 ekki 325.

farðu nú ekki að grenja
ég held að þér sé ekki fyrigefið :twisted:
523 E61 Touring
Mazda Rx7 Ekkert turbo vesen 12.060 @ 117.80
Clio 1,8 á R888 Ralycrossarinn
Hæðarstilli dekk ókeypis fyrir Reykjavik og nágrenni
Offical E30 H8R CREW
Member ONE
User avatar
Tommi Camaro
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3377
Joined: Thu 30. Jan 2003 06:08

Postby fart » Wed 21. Jan 2004 18:12

Fyrirgefið mína afskiptasemi en það er nú 20 hestafla munur á 323 og 325 þó þeir séu báðir með 2.5L vél.

það er næstum 20% munur á afli.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby Svezel » Wed 21. Jan 2004 18:18

Ég get ekki séð að þetta sé skítakomment, bara að leiðrétta það sem rangt er og ég veit ekki betur en að ég hafi hrósað bílnum.

Það er leiðinlegt fyrir annars góðan vef ef fólk er að auglýsa bíla undir röngum formerkjum. Svo vita það nú flestir að bílasalar hafa mjög takmarkaða vitneskju á bílum þó þeir geti farið í tölvu og skoðað hvað listaverð er á bíl.

Já og Tommi farð þú ekki að grenja þótt þú hafir ekki getað eyðilagt auglýsinguna sjálfur.
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby jonthor » Wed 21. Jan 2004 19:05

fart wrote:Fyrirgefið mína afskiptasemi en það er nú 20 hestafla munur á 323 og 325 þó þeir séu báðir með 2.5L vél.

það er næstum 20% munur á afli.


lol nei :) 20 af 200 er 10% :D og mælt afl á þessum bílum er 182 á 323 og 188 á 325, gefnir upp fyrir sama 0-100 nema 323 eyðir minna. B&L flutti enga 323 E36 inn (þó þessi sé E46) og þess vegna er minn t.d. skráður 325 ;)

Alger draumabíll þessi bíll by the way, ætla að kaupa mér E46 323/325/328/330 þegar ég hef efni á honum í kring um 2010
User avatar
jonthor
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1638
Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Location: Reykjavík

Postby fart » Wed 21. Jan 2004 19:19

hehehe.. sorry, meinti næstum 10%. En eigum við ekki samt að kalla hlutina réttum nöfnum.

Minn 523i mældist 174hestöfl keyður nærri 140þús km, þannig að ég veit alveg hvað þú meinar. En ég myndi aldrei kalla bílinn minn neitt annað en 523i, ég ætti kanski að kalla hann A525i, þar sem A stendur fyrir almost.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby jonthor » Wed 21. Jan 2004 19:30

fart wrote:hehehe.. sorry, meinti næstum 10%. En eigum við ekki samt að kalla hlutina réttum nöfnum.

Minn 523i mældist 174hestöfl keyður nærri 140þús km, þannig að ég veit alveg hvað þú meinar. En ég myndi aldrei kalla bílinn minn neitt annað en 523i, ég ætti kanski að kalla hann A525i, þar sem A stendur fyrir almost.


hehe, rétt :)
User avatar
jonthor
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1638
Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Location: Reykjavík

Postby ta » Wed 21. Jan 2004 19:31

Anonymous wrote:Ég er nú bara að auglýsa þennan bíl fyrir félaga minn, það virðist vera viðloðandi við þennan vef, að menn séu með einhver skítakomment yfir þessum auglýsingum hér.


skítakomment????
bíllinn heitir 323i og er seldur sem 323i hja BMW.

hver er nú með skítakomment?
'BMW, designed by Germans, driven by tossers' J.C.
User avatar
ta
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1376
Joined: Tue 12. Aug 2003 21:45

Next

Return to Til sölu - BMW

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 38 guests