Ég er að selja BMW e38 750i. Þetta er árgerð '97 og hann er ekinn 199.xxx km.
Ég sel hann á 650.000 stgr. en ég skoða öll önnur tilboð og skipti ef hann fer ekki á þessu verði.
Þetta er er fullbúinn eðalvagn með 326 hestafla V12 vél og 5-gíra steptronic sjálfskiptingu.
Hann er búinn öllum helsta lúxus og aukahlutum og má þar nefna:
Leður á öllu (sætum, mælaborði, hurðafölsum og stýri)
Hiti alls staðar (sætum framan og aftan, í stýri, á speglum og afturrúðu)
rafmagn í framsætum, stýri (Hæð og dýpt), speglum (aðfellanlegir), topplúgu, skottloki og gardínuni afturí
Miðtöðin er digital, með loftkælingu og er tvískipt
Tvöfalt gler með loftbili í hurðum, gler topplúga, gardínur fyrir aftursætin og í afturrúðu
Xenon aðalljós og angel eyes
Hann er með EDC sem aðlagar stífleika demparana á nokkrum sekúntubrotum eftir hleðslu bílsins, aksturlagi og vegaðstæðum
Þetta er mjög skemmtilegur bíll. Hann er í kringum 6 sek. í 100 og svarar með hrikalegu togi sama í hvaða snúning vélin er. Ofaná þetta liggur hann mjög vel og er einstaklega vel einangraður. Ef hann er keyrður venjulega innanbæjar eyðir hann um 16L/100km og fer alveg niður í 10L/100km utanbæjar. Ég get ímyndað mér að það sé hægt að ná eyðslu innanbæjar undir þessa tölu en viðkomandi þarf að beyta sér miklum sjálfsaga til að ná því
Bodyið og innviðið á bílnum er mjög vel með farið. hann er nýlega sprautaður.
Ég er nýbúinn að láta skipta um dempara og gorma að framan (ekki með EDC) og síu og vökva á skiptingunni.
það er drif úr 740 undir honum sem gerir hann lægra gíraðan (Hraðari upp, lægri hámarkshraði)
Hann þarfnast lagfæringa en er í viðgerð vegna gangtruflana í mótor. Skiptinginn er stundum sein og hörð en virkar, hann snuðar ekki og það er ekkert skrítið hljóð í henni. ABS deilirinn er bilaður og því virkar ekki spólvörnin eða ABS-ið nema fyrstu metrana. Fyrir utan ABS- og spólavarnarljósið þá er ekkert annað logandi í mælaborðinu. Hann fór í allsherjar skoðun hjá eðalbílum fyrir mánuði síðan og kom þar fram að sé slag í spyrnu og millibilsstöng. Það munu fylgja nótur fyrir öllu sem ég hef látið gera við hann og ástandsyfirlitið frá Eðalbílum.
Áhugasamir hafið samband í síma
8959719 eða email
kristmanneids@gmail.comÉg ýtreka að ég skoða öll tilboð!





