Er með þennan til sölu í heilu eða pörtum. Þetta er bíllinn sem skúli (srr) var að selja um daginn og stel ég upplýsingum frá honum.
BMW 735iaL - Langi -
Framleiddur í júlí 1989. Royalblár að lit Sjálfskiptur Innfluttur notaður til Íslands árið 1995 Mælaborð sýnir 207.500 km en hann er ekinn samt 274.000 km. (það var skipt um mælaborð) Tausæti með armpúðum, rafmagni og hita í framsætum Tvívirk rafmagns topplúga Cruise control "Fine-wood" Viðarlistar í innréttingu (með línu) LÆST DRIF Stóra OBC LANGUR,,,,,,,,14cm lengri afturhurðar sem skila sér í mega plássi aftur í
Ný olía á mótor og sía - Febrúar 2012 Ný kerti - Febrúar 2012 Ný forward kúpling í sjálfskiptingu ($$$$) - Febrúar 2012 Ný olía á sjálfskiptingu - Febrúar 2012 Ný vatnsdæla - Mars 2012 Ný viftureim - Mars 2012 Nýir bremsudiskar, bremsuklossar, handbremsuborðar og gormasett að aftan b/m - Mars 2012 Nýr innri og ytri stýrisendi h/m - Mars 2012 Nýjar pústupphengjur 3 stk - Mars 2012 Nýr rafgeymir 100ah ($$$$) - Mars 2012 Nýr innri og ytri stýrisendi v/m - Apríl 2012 Nýir bremsuklossar framan - Apríl 2012 Ný bensínsía - Apríl 2012
Einnig setti ég í hann 750i púst frá miðju og aftur
Gallar: Það eru tvö ryðgöt á afturgafli, eitt á sitthvoru horni við samskeyti á afturbrettum. Ryð í vinstri hjólaskál neðst v/m aftan frekar slæmt. Frambretti vinstra meginn slæmt. Brotinn gormur að aftan fylgja aðrir gormar. ónýt stýrisupphengja en fylgir með rúðuþurrkur virka ekki en flygir með annað unit.
Bíllinn er að tapa af sér vatni. og það kemur mikil gufa úr pústi þannig að mig grunar að það sé farin í honum heddpakking. Ekki það að ég sé með það á hreinu.
Svona lítur fæðingarvottorðið fyrir bílinn út: Vehicle information VIN long WBAGC41030DB93233 Type code GC41 Type 735IL (EUR) Dev. series E32 (2) Line 7 Body type LIM Steering LL Door count 4 Engine M30 Cubical capacity 3.50 Power 155 Transmision HECK Gearbox AUT Colour ROYALBLAU METALLIC (198) Upholstery ANTHRAZIT STOFF (0333) Prod. date 1989-07-12
Order options No. Description 209 LIMITED SLIP DIFFERENTIAL (25%) 302 ALARM SYSTEM 320 MODEL DESIGNATION, DELETION 401 SLIDING/VENT ROOF, ELECTRIC 423 FLOOR MATS, VELOUR 459 SEAT ADJUSTM., ELECTR. W. MEMORY 472 CENTER ARMREST FRT DRIVER/PASS 494 SEAT HEATING F DRIVER/FRONT PASSENGER 500 HEADLIGHT WASHER SYS/INTENSIVE CLEANING 534 AUTOMATIC AIR CONDITIONING 536 AUXILIARY HEATING 540 CRUISE CONTROL 560 CO-PILOTS IN RR COMPARTMENT 570 STRONGER ELECTRICITY SUPPLY 626 TEL.C-NETZ SIEMENS BEDIENHOERE 663 BMW BAVARIA C ELEKTRONIC
á ekki myndir af bílnum en örugglega hægt að grafa upp gamla þráðinn hans skúla. Bíllinn lýtur eins út og á þeim myndum nema hann er á stálfelgum á koppum og ég er búinn að taka krómbogana af en á þá samt til.
Veit ekki með verð á þetta en segjum bara 300kall til að hafa einhvað. Vill bara fá tilboð í bílinn eða parta.
_________________ BMW e39 540i 2000
|