Page 1 of 2

Five-O

PostPosted: Thu 07. Apr 2005 19:59
by mattiorn
Orðinn nett pirraður á þessu...

Af hverju blikkar löggan alltaf á mig þegar ég er með kastarana á?
Hvað er svona stórkostlega hættulegt við að vera með kastara.... :roll:

Rugl...

PostPosted: Thu 07. Apr 2005 20:03
by Fieldy
held að það sé bara bannað að hafa kveikt á kösturum innanbæjar og þeir séu að reyna að fá þig til að slökkva á þeim eða eitthvað

who knows...

PostPosted: Thu 07. Apr 2005 20:11
by gunnar
Það er bannað að vera með þokuljósin kveikt þannig að þeir eru að segja þér að slökkva á þeim.

PostPosted: Thu 07. Apr 2005 20:13
by Kull
Lögreglan er náttúrulega bara að framfylgja lögum og þú ættir að vera þakklátur að þeir sektuðu þig ekki. Það er bannað að hafa kastarana ef astæður gefa ekki tilefni til þess. Þó er hægt að komast framhjá því með að slökkva á aðalljósum og nota þá kastara sem aðalljós.

PostPosted: Thu 07. Apr 2005 20:14
by oskard
Kull wrote:með að slökkva á aðalljósum og nota þá kastara sem aðalljós.


það má víst bara að degi til, ekki kvöldin....

annars eru svona kastarar bara asnalegir splæsa frekar í xenon ;) 8)

ég ætla ekki að vera með kastara á mínum enda engin þörf á þeim

PostPosted: Thu 07. Apr 2005 20:39
by Dori-I
það er bannað að hafa kveikt á þokuljósum innan bæjar sama hvernig veður er!!!

þokuljós eru til að nota utanbæjar í slæmu skyggni.. :) let me know eg er búin að þræta um þetta við nokkrar löggur, þangað til ein þeirra rak reglugerðinnni í andlitið á mér og bað mig að lesa hana og röfla svo.. :oops:

en sumar löggur hafa verið að gefa mönnum sjens og leyfa þokuljósin þangað til það fer að rökkva og eikkkað..

ég mæli ekki með þessu sektin er 5þús kall mar

kv. Halldór

PostPosted: Thu 07. Apr 2005 20:48
by jth
oskard wrote:annars eru svona kastarar bara asnalegir splæsa frekar í xenon ;) 8)


AMEN!

PostPosted: Thu 07. Apr 2005 20:49
by Porsche-Ísland
Hefur einhver athugað hvort þessi aukaljós séu skrá sem þokuljós eða sem ökuljós. Þessar upplýsingar er hægt að nálgast hjá bifreiðaumboðum. Þetta kemur fram í gerðarskoðunar skýrslunni.

Málið er nefnilega að sumir bílar eru með þetta skráð sem ökuljós og þau má nota hvenær sem er. Og ekki má sekta fyrir það.

Þessar upplýsingar hef ég frá einum sem vinnur á skoðunarstöð.

PostPosted: Thu 07. Apr 2005 20:59
by Dori-I
Porsche-Ísland wrote:Hefur einhver athugað hvort þessi aukaljós séu skrá sem þokuljós eða sem ökuljós. Þessar upplýsingar er hægt að nálgast hjá bifreiðaumboðum. Þetta kemur fram í gerðarskoðunar skýrslunni.

Málið er nefnilega að sumir bílar eru með þetta skráð sem ökuljós og þau má nota hvenær sem er. Og ekki má sekta fyrir það.

Þessar upplýsingar hef ég frá einum sem vinnur á skoðunarstöð.



hondan sem ég átti og bmw-inn eru með "þokuljós" en ekki aukaljósabúnað eins og ein löggan sagði einusinni við mig.. :D

hef ekki heyrt að þetta hafi verið kallað ökuljós.. ég veit greinilega ekkki betur.. :D hehe

PostPosted: Thu 07. Apr 2005 21:03
by Thrullerinn
Kæmi mér á óvart að fólk sé stöðvað og sektað fyrir að hafa kveikt á þeim.

Hinsvegar ef þú ert tekinn fyrir of hraðan akstur OG ert með kveikt á
þessum ljósum er þessu bætt við sektina. Tala af reynslu :roll:

Einhvern tímann heyrði ég að ef aðalljósin eru slökkt og kastararnir eru
á er hægt að segja að kastararnir séu "aðalljós", en hvort einhver glóra
sé í því, veit ég ekki.

PostPosted: Thu 07. Apr 2005 21:11
by Porsche-Ísland
Reglur um dagljósabúnað segir að dagljós skuli vera 21W, hvort nota megi 45W kastara í staðinn er ég ekki viss um. En ef þessi kastari er skráður sem ökuljós þá er það í lagi.

Er ekki einhver hér á spjallinu að vinna hjá bílaumboði sem getur fengið að skoða gerðskráninguna.

Þá kemur þetta allt í ljós.

PostPosted: Thu 07. Apr 2005 23:24
by Dori-I
aðalljósaperurnar í bmw inum hjá mér eru 55W..

PostPosted: Fri 08. Apr 2005 00:05
by Tommi Camaro
kastar er það ekki svona fm957 dæmi :)
hahahaha

PostPosted: Fri 08. Apr 2005 00:26
by BlitZ3r
Að hafa þokuljós er bara rosa flott á sumum bílum og gefur bílnum rosa svip

PostPosted: Fri 08. Apr 2005 00:32
by Schulii
BlitZ3r wrote:að haf þokuljós eer bara rosa flott á sumum bílum og gefur bílnum rosa svip


Sammála.. mér finnst flott að hafa þokuljósin kveikt.. svona spari :D