Page 1 of 1

Bíddu smá stund, það er einhver kominn í hurðina hjá mér...

PostPosted: Fri 11. Mar 2005 14:01
by saemi
Bíddu smá stund, það er einhver kominn í hurðina hjá mér...

Image

Schnilld :lol:

PostPosted: Fri 11. Mar 2005 14:58
by Logi
:lol: Þetta er magnað, ekkert að kippa sér of mikið upp við svona smáræði :lol:

PostPosted: Fri 11. Mar 2005 15:04
by Dori-I
HAHAHAHAHAAHAHA !!!!! :rofl: :lol2: :rollinglaugh:

PostPosted: Fri 11. Mar 2005 16:58
by grettir
Haha.. og grínlaust, þá sá ég eitt sinn svona árekstur á milli e36 og Corollu. Frambrettið krumpaðist auðvitað á Bimmanum, en Corollan var gjörsamlega í klessu.

PostPosted: Fri 11. Mar 2005 17:17
by Schulii
Það er nú ekki merki um að bílar séu lélegir ef þeir fara í klessu. Ég hef t.d. lesið í "BMW bókmenntum" að þeir hanni ákveðin "krumpusvæði" á bílunum til að taka höggið og deyfa það. Þ.e.a.s að boddíið leggst saman og tekur þannig höggið. Þeir hönnuðu þetta með hliðsjón af því að vernda vélina og farþegarýmið eftir bestu getu þannig að vonandi væri það algengast að við minniháttar árekstra þyrfti bara að kaupa viðkomandi boddíhlut og sprauta hann.

Ef bíllinn klessist ekkert taka farþegarnir bara höggið og eru þá mun líklegri til að slasast frekar en ella.

Ég held að allir "betri" bílaframleiðendur séu með þessi "krumpusvæði". Benz, BMW, Volvo..

Finnst hálf kjánalegt þegar fólk vindur sér uppað mér, vitandi að ég er mikill aðdáandi BMW og þýskra bíla, að það hafi séð árekstur milli BMW og kannski bara suzuki eða eitthvað álíka og að BMW-inn hafi bara verið illa klesstur sko. :roll:

..en þetta er nú bara smá útúrdúr, góður brandari samt :wink:

PostPosted: Fri 11. Mar 2005 17:20
by Schulii
En auðvitað minnist þú á það Grettir að BMW-inn hafi beyglast á brettinu þannig að þetta er ekki skot á innleggið þitt :wink:

..bara ég að pósta óvenjumiklu í veikindunum heima!

PostPosted: Fri 11. Mar 2005 20:23
by grettir
Schulii wrote:En auðvitað minnist þú á það Grettir að BMW-inn hafi beyglast á brettinu þannig að þetta er ekki skot á innleggið þitt :wink:

..bara ég að pósta óvenjumiklu í veikindunum heima!


Nei nei, enda tek ég því ekkert þannig :D

Minn bíll lenti til dæmis í árekstri um daginn (maður á ekki að lána, en það er önnur saga) og boddý hlutir eins og húdd, bretti og stuðari fóru ansi illa, en vél og farþegar (mikilvægasti partur bíls, hvaða týpa sem það er) voru í heilu lagi.

Talandi um það, ég á eftir að pósta myndum fyrir, á meðan og eftir árekstur. Það eru magnaðar myndir.