bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sat 07. Jun 2025 09:35

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 22 posts ]  Go to page 1, 2  Next
Author Message
PostPosted: Mon 07. Mar 2005 15:38 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51
Posts: 2026
Sælir/sælar.

Ég vill taka það fram að ég er nýr notandi spjallsins en hef mikinn áhuga á BMW.

Ég er í hugleiðingum að flytja inn BMW, frá þýskalandi helst. En ég vill spyrja ykkur um nokkrar spurningar áður en það gerist, ég er viss um að ég fæ góða hjálp.

BMW'arnir sem ég er að pæla í að fá mér er 325i beinskiptur. Ég er mikill áhugamaður E-30, en get allveg hugsað mér að kaupa E-36. Ég myndi vilja helst dökkan lit, svartan, dökkrauðan, dökkbláann eða eitthvað í svoleðis litum. Auk þess er ég að spá í bíl sem er með lækkunargormum, 40mm helst, kannski einhverju sportlegu útliti. Auk þess vill ég að bílinn sé ekki ekinn mikið meira en 200.000 km.

Þar sem E-30 bílum fer fækkandi veit ég að ég get ekki komið með svona skilyrði fyrir þá bíla, en hvað er verið að tala í verði ríflega, úti í Þýskalandi?

Ef ég fæ mér E-30 bíl, 88', 89' eða 90' módel? Verðdæmi með lækkunargormum (sport-fjöðrun) og sportlegu útliti (Þó ekki nauðsynlegt)

Hvað þarf að gera fljótlega fyrir þessa bíla þegar þeir eru á milli 150.000-200.000km? Og hvað mun það kosta, ríflega.

Viðhald við þessa bíla, er það mikið? Ég veit að olíupannan er á lágum punkti en það ætti ekki að vera svo dýrt að skipta um hana og ég býst ekki við að hún fari á hverju ári.

Hvaða módel hentar best? Hvað er betra en annað?

Sömu spurninga vill ég spyrja um E-36 útlitið.

---

Ég veit takmarkað mikið um bíla, þessvegna er ég að spyrjast fyrir hérna á þessum korki. Kannski er algjör þvæla í mér að vera fá mér svona gamla bíla ef ég hef ekki mikið vit á þeim? Eða kannski er algjör þvæla að vera setja svona skilyrði á svona gamla bíla. Ég veit ekki.

Ég hef verið að skoða þessa mobile.de síðu og hef fundið suma áhugaverða, en eru til einhverjar aðrar síður, blöð eða menn sem þekkja vel á markaðinn í Þýskalandi?

Hvernig er svo staðið að því að flytja inn bíl? Væri hægt að tala við einhvern Íslending sem notar þennan kork um hjálp á því fyrir lítinn eða engann pening?

Er hentugra að kaupa bíl úti en að bíða eftir einhverju góðu eintaki hérna á íslandi? Hvaða reynslu hafa menn á því?

Ég er ekki að fara í bílakaup allveg strax, en ég er að draga saman kostnað við innflutning, kaup á bíl, hvað mun kosta að gera við hitt og þetta og svo almennt viðhald á svona gömlum bílum.


Ég veit ég spyr margar spurningar og kannski sumar heimskulegar.

Með fyrirfram þökk,
Stanky, eða Haukur


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 07. Mar 2005 16:14 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Fjöðrunarkerfi og þess háttar er ekki dýrt á íslandi , gefandi að þú verslir við rétta aðila

Annars er málið að skoða eins og þú getur hérna heima áður en þú leggur í að versla að utan, þá sérðu hvers þú átt að búast miðað við verð hérna heima

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 07. Mar 2005 18:06 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Þar sem undirritaður átti í viðræðum við ...HAWK... ætti hann að vita vel um hvaða málin snúast,, E30 325 kemst ekki inn í landið sem ,,góður bíll,, undir 500.000 með þóknun og öllu sem tilheyrir svona ,,veseni,,

GÓÐUR E30 325,, Annað en M20B25 er fásinna nema um S14 sé að ræða.

Þar sem ég sjálfur er búinn að taka inn 5 E30 á einu misseri ætti ég að vera ........AÐEINS..... meðvitaður um hvað málin snúast,,

2 stk M-tech II 325 (( svartur og silfur ))
1 stk 325 ((( ex 318))
1 stk 325 CABRIO

1 stk 325 ix Touring

þeir sem vilja geta hringt og fengið info.. 8446799

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 07. Mar 2005 18:21 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Posts: 2492
Location: Reykjavík
Af hverju ekki bíl sem er ekinn yfir 200þús? Þarf ekkert að vera verra, í mörgum tilfellum betra ef það fylgir t.d. mikið af pappírum, þjónustubók, reikningar o.þ.h. sem sannar að km talan sé rétt.
Myndir þú vilja kaupa bíl af mér sem væri ekinn 167þús en ekki einn pappír með bílnum, bara svona vangavelta. Ég kalla þetta 200þús km múrinn, ef bíll er ekinn yfir 200tkm þá minnkar kaupendahópurinn mjög mikið á Íslandi.

Það er hægt að gera góða díla í þýskalandi eins og allsstaðar annarsstaðar 400+ þá ertu kominn með góðan bíl á íslandi. Stundum best að kaupa vel hirtan fjölskyldubíl og redda þessum "sportlegu" hlutum sjálfur. Það er mikið af hönkuðum e30 bílum sem búið er að fúska sæmilega mikið í, vil nefna tyrki sérstaklega í því samhengi (ekki fordómar heldur reynslulögmál). Ef Mustafa er að selja bílinn þá á maður að skoða extra vel, annar hver tyrki heitir Mustafa...... :lol:

Góður bíll ætti bara að þurfa reglulegt gott viðhald, í m20 vélunum er það 60þkm hlutur að skipta um tímareim, það er samt ekki dýrt. T.d. talsvert ódýrara heldur en að fara yfir á tíma.

Ef þú keyrir eins og maður þá brýtur þú ekki olíupönnuna en það er stundum erfitt að halda svona kraftmiklum bílum á götunni :wink:

Hvaða módel hentar vel, það ákvarðast bara af þörfum þess sem notar bílinn. Myndi nú ekki flytja inn neitt annað en 325i í e30 og eiginlega það sama að segja um e36. Þetta eru bílarnir sem allir vilja og það er alltaf verið að rústa þessum bílum reglulega þannig....

Þegar verið er að tala um gamla bíla þá er bara eitt aðalatriði hjá mér, þú getur skipt um allt nema boddy, þegar þú skiptir um boddy þá ert kominn með annan bíl, eða er það ekki! Semsagt gott boddy er mikilvægt, þegar verið er að flytja inn eldri bíl þá verður boddy'ið að vera mjög gott.

Mobile.de og autoscout24.de er bara málið, þessi blöð eru bara að líða undir lok. Á þessum síðum vaktar þú mjög stóran hluta af þýskum bílamarkaði á þægilegan og aðgengilegan hátt.

Örugglega enginn sem vill flytja inn bíl fyrir lítið eða ekkert. Gott eintak á íslandi getur fundist en það tekur pottþétt lengri tíma en í þýskalandi. Á íslandi þekkir maður fullt af BMW'um "já þessi bíll". Í þýskalandi er svo mikið af þessu að maður þekkir ekki neinn bíl, a.m.k. ekki ég. :roll:

Alltaf gaman að pæla í hlutunum.

_________________
Bjarki
E39: 540iA '98


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 07. Mar 2005 18:44 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 04. Sep 2002 18:57
Posts: 2596
Location: Milemarker 85.
Gott svar hjá bjarka.

Það sem eg vill bæta við er það að, ef þú ert í hugleðingum að kaupa þér E30 frá þýskalandi þá er þetta ekki eithvað sem þú ert að fara að græða á.
Ef þú gerið þetta þá ertu að kaupa þér bíl fyrir sjálfan þig til að eiga og þá fynst mér betra að kaupa góðan bíl sem er vel með farinn þótt hann sé algjörlega orginal. Ekki vera endilega að eltast endalaust við einhverja "tjúnaða" bíla sem eithver gutti er búinn að eiga. Það er ekkert mál að redda því sjálfur og það er líka skemtilegt að betrumbæta bílinn sinn smá og smá, ég held að ég viti það öruglega það mana best.

Persónulega ef ég væri í E30 hugleiðingum í dag þá myndi ég persónulega kaupa mér góðan bíl sem væri mjög sennilega aðeins dýriari á erum við að tala um 600-750 í stað 500 þ.

Ef þú tekur frá 100þ kall frá í viðhald á ári þá ætti bíllin þinn að vera í góu standi, ef þú hefur ekki efin á að eiða 100. þ á ári í viðhald þá hefur þú ekki efin á að eiga bíl. Nýir bílar falla margfalt meira en það í verið.

En E30 er algjör draumur af bíl að vera og e30 eign hér á spjallinu er orðin frekar stór og falleg og það verður gama að mæta á samkomur í sumar :D

_________________
E30 S50B32
X5 3,0i ´02
Artic Cat ZR500 ´98
GSTuning


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 08. Mar 2005 14:58 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51
Posts: 2026
Þakka fyrir góð svör.

Ég hefði keypt þennan svarta/gráa bíl af honum Alpina ef ég væri á landinu. En þar sem ég er staddur núna í Frakklandi (en er á leiðinni heim í þessum mánuði) gat ég því miður ekki keypt bílinn. Ég reyndi að láta faðir minn lána mér fyrir honum en við komumst að sameiningu að það væri ekki sniðugt að geyma bílinn úti eða inni í svona langan tíma án þess að hreyfa hann.

Ég ætla að fara skoða þá bíla sem eru frekar original heldur en tjúnaðir/kittaðir. En ég hef heyrt t.d. að M-TECH II kit á svona bíla kosti allveg meira en demantar? Las einhverstaðar 200.000þúsund krónur, komið til landsins frá þýskalandinu? En eins og svona demparar/sport fjaðrir. Getur maður eins og ég sett þetta sjálfur í bílinn, eins og ég tók fram áður að þá hef ég ekkert gífurlegt vit á bílum?

100.000kr í viðhald var ég búinn að gera ráð fyrir, reyndar um 80.000kr. En hvað eru menn að borga svona fyrir venjulega? Dekk, olíu, skoðun? Er eitthvað sem fer fyrr en annað í þessum E-30 bílum og kannski á "undan" tíma?

kv,
Stanky eða Haukur


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 08. Mar 2005 15:19 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Ég vil benda á að vélina sem var í 325is inum mínum og situr í hjá Árna núna er ekinn um 245þús núna, það er mál að finna betri M20 vél hérna heima. Þessi vél er enn eins og klukka,

mundu að... þú getur alltaf keypt varahluti seinna, hvað sem það er ,
Eins og Bjarki segir þá er boddy númer 1,.
Ég flutti sjálfur inn síðasta sumar og fékk ekki 100% en þar sem að ég seldi í raun vél og kassa, felgur og fjöðrun þá kostaði bílinn ekki það sem ég borgaði fyrir hann inn komið, það þarf að laga og það kostar miklu meira en að versla heilt boddy með engun aukahlutum, ekki það að ég geri svoleiðis :P


Sveinbjörn hefur verslað og selt af E30 bílum það er rétt.
2 af þeim eru á leið í sprautun, viltu bæta því við 500króna reikninginn þegar bílinn kemur heim?

Bjarki seldi flottan 325i á 375þús, það var víst ekkert að honum ,
lækkun og felgur og sá bíll væri ofboðslegur


500.000kr og þú ert garenteraður með fínt boddý, allt hitt er til á íslandi eða auðfánalegt hvort eð er.
Mtech II kostar ekki 200.000þús heldur veit ekki hvar þú heyrðir það


Það er svo rétt hjá stefáni með bíll og viðhald, ef þú getur ekki viðhaldið bílnum, þá áttu ekki efni á að eiga hann,
T,d að eiga nýjan bíl sem fellur um 100-150þús á ári, hvar er peninga vitið í því ef þú getur átt bílinn sem þú vilt(borgar vonandi minna út) og borgar minna í að viðhalda heldur en þú tapar á ári,

og þú lærir að gera við sjálfur eins og karlmanni sæmir 8)

DIY for the WIN
og OLD SCHOOL 4 EVER

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 08. Mar 2005 16:09 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Posts: 1638
Location: Reykjavík
gstuning wrote:
og þú lærir að gera við sjálfur eins og karlmanni sæmir 8)

DIY for the WIN


Yeeeaaaah baby!

_________________
JÞS
- 323i coupe - '96


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 17. Mar 2005 21:22 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51
Posts: 2026
Sælir aftur..

Ef ég flyt inn bíl er virðisaukaskattur úti sem kemur til lækkunar, eða sem verður felldur niður þegar hann er fluttur út í annað land?


kv,
stanky, eða haukur


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 17. Mar 2005 21:57 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Stanky wrote:
Sælir aftur..

Ef ég flyt inn bíl er virðisaukaskattur úti sem kemur til lækkunar, eða sem verður felldur niður þegar hann er fluttur út í annað land?


kv,
stanky, eða haukur


Ég er ekki viss hvaða bílar það eru sem missa VSK, en það myndi vera 16% þá. og ég held að þú fáir hann þegar þú getur sýnt framá að þú sért að flytja hann út eða eitthvað , fróðari menn fræða þig um það

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 18. Mar 2005 00:02 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51
Posts: 2026
Jæja, þá er ég búinn að ákveða að flytja inn BMW frá þýskalandi. Hvernig á maður að fara að þessu? Verður maður að fara þarna út sjálfur til að sækja bílinn eða?

kv,
stanky, eða haukur


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 18. Mar 2005 00:05 
Stanky wrote:
Jæja, þá er ég búinn að ákveða að flytja inn BMW frá þýskalandi. Hvernig á maður að fara að þessu? Verður maður að fara þarna út sjálfur til að sækja bílinn eða?

kv,
stanky, eða haukur


já eða borga einhverjum fyrir að gera það.


Top
  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 18. Mar 2005 00:05 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Stanky wrote:
Jæja, þá er ég búinn að ákveða að flytja inn BMW frá þýskalandi. Hvernig á maður að fara að þessu? Verður maður að fara þarna út sjálfur til að sækja bílinn eða?

kv,
stanky, eða haukur


Það fer eftir hversu stórar Cohones þú ert með ,

Ef þú talar þýsku vel og ert með nóg af aukapening þá alveg að skella sér,
Ef þú talar ekki þýsku þá no way, hringja í einhvern sem getur séð um innflutning fyrir þig

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 18. Mar 2005 00:11 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Posts: 12187
Location: Uppí rúmi í spandex
gstuning wrote:
Stanky wrote:
Jæja, þá er ég búinn að ákveða að flytja inn BMW frá þýskalandi. Hvernig á maður að fara að þessu? Verður maður að fara þarna út sjálfur til að sækja bílinn eða?

kv,
stanky, eða haukur


Það fer eftir hversu stórar Cohones þú ert með ,

Ef þú talar þýsku vel og ert með nóg af aukapening þá alveg að skella sér,
Ef þú talar ekki þýsku þá no way, hringja í einhvern sem getur séð um innflutning fyrir þig

T.d Georg í Úranus, mæli með honum

_________________
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 18. Mar 2005 00:15 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51
Posts: 2026
Georg í Úranus? Hljómar eitthvað, skrítið....en allavega, er hann með e-mail ?

kv,
haukur, eða stanky


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 22 posts ]  Go to page 1, 2  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 16 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group