bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

BMW Z3 M
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=9277
Page 1 of 2

Author:  StebbiÖrn [ Sat 12. Feb 2005 20:22 ]
Post subject:  BMW Z3 M

Er til M blæjubíll á Íslandi..? Langar mjög í svoleiðis bíl 2001+ með 315hp í ekki þyngri bíl.... :D

hvað haldiði að 2001 bíll myndi kosta komin á klakann með öllum gjöldum og kostnaði??

Author:  Svezel [ Sat 12. Feb 2005 20:36 ]
Post subject: 

Það eru a.m.k. til 2 M-Roadster á Íslandi og einn M-Coupe.

Svona bíll 2001 módel kostar ekki undir 4 hingað kominn myndi ég halda

Já og þessir bílar eru 321hö fyrir '01 en 325hö eftir það og eru bara slatta þungir eða 1440kg.

Author:  StebbiÖrn [ Sat 12. Feb 2005 21:40 ]
Post subject: 

Það er hægt að eyða 4 kúlum í margt vitlausara.. en hvernig heldurðu að svona bílar séu í endursölu?? Ætli það sé einhver markaður fyrir þessu... ég er allavega búin að vera lesa fullt af dómum sem eru allir mjög jákvæðir.... það er víst mjög lág bilanartíðni miðað við aðra sambærilega bíl...

1440 kg er svo sem engin ósköp svipað og E-36

Author:  bjahja [ Sat 12. Feb 2005 21:55 ]
Post subject: 

Ég myndi persónulega frekar kaupa M-coupe en blæju. En það skitpir ekki, held að það sé lítill markaður fyrir þetta hérna heima. Myndi ekki kaupa me´r svona bíl með endursölu i´huga...

Author:  Dr. E31 [ Sun 13. Feb 2005 00:39 ]
Post subject: 

bjahja wrote:
Ég myndi persónulega frekar kaupa M-coupe en blæju. En það skitpir ekki, held að það sé lítill markaður fyrir þetta hérna heima. Myndi ekki kaupa me´r svona bíl með endursölu i´huga...


Sammála. :roll:

Author:  Svezel [ Sun 13. Feb 2005 01:06 ]
Post subject: 

Fólk sem kaupir sér bíla eftir því hvernig þeir eru í endursölu geta bara keypt sér einhverja toyotu beyglu og sleppt því að láta sig dreyma um eitthvað sem er honestly gaman að keyra.

Author:  MrManiac [ Sun 13. Feb 2005 02:29 ]
Post subject: 

Svezel wrote:
Fólk sem kaupir sér bíla eftir því hvernig þeir eru í endursölu geta bara keypt sér einhverja toyotu beyglu og sleppt því að láta sig dreyma um eitthvað sem er honestly gaman að keyra.


AMEN !

Author:  Zyklus [ Sun 13. Feb 2005 02:49 ]
Post subject: 

Svezel wrote:
Fólk sem kaupir sér bíla eftir því hvernig þeir eru í endursölu geta bara keypt sér einhverja toyotu beyglu og sleppt því að láta sig dreyma um eitthvað sem er honestly gaman að keyra.


Heyr! Heyr!

Er oftast á Toyotu og maður er orðinn nokkuð leiður á keyra þann bíl. Algjörlega kraftlaus bíll, ekta svona bíll til að komast bara á milli A og B og ekkert meira en það. En vonandi að það breytist bráðlega...

Author:  StebbiÖrn [ Sun 13. Feb 2005 03:07 ]
Post subject: 

Smekkur manna er auðvitað mismunandi en mér persónulega blæjan mun fallegri... coupinn hefur ekki sama sjarma...

Image

en mér finnst skipta miklu máli að hægt sé að losna við bílinn aftur sem maður kaupir... ég nenni oftast ekki að eiga bíl nema ca 1-2ár og þegar ég sé eitthvað nýtt sem mér langar í vill ég helst ekki þurfa að gefa bílinn eða að sitja uppi með hann...!!

Author:  Spiderman [ Sun 13. Feb 2005 03:35 ]
Post subject: 

4 kúlur :roll: Það er nú hægt að fá lítið ekinn 2001 módel frá USA fyrir 2,9 kúlur og það 321 hö bíl.

http://casmiami.com/listings.asp?mode=d ... ar&CAR=904

Author:  StebbiÖrn [ Sun 13. Feb 2005 03:58 ]
Post subject: 

Þettað er reyndar 240hp coupe sem er ekinn 130þús....

en þettað er líka síða sem selur skemmda bíla þessi hefur t.d. lent í vatnstjóni....

http://casmiami.com/listings.asp?mode=d ... ar&CAR=905

þú varst samt sennilega að meina þennan það er reyndar smá dæld á frambrettinu en samt mjög gott verð... alveg þess virði að skoða betur..!!

Author:  Thrullerinn [ Sun 13. Feb 2005 11:53 ]
Post subject: 

Image
Hér er bíllinn fyrir norðan, það er nú búið að leyfa þessum að "finna fyrir því", :roll:
en ég veit til þess að eigandinn ætli að láta sprauta hann enda þörf á.
(sést ekki á myndinni)

Hins vegar er einn silfurgrár sem er að mestum líkindum massa gott
eintak, báðir eru að ég best veit, einnar eigenda bílar.

Ég held að það væri alveg inn í myndinna að reyna að versla svona græju
í dollurum...

Ábending: aldrei kaupa vatnstjónabíla nema að þú vitir nákvæmlega
hvernig og hversu djúpt hann fór ;)

Author:  Svezel [ Sun 13. Feb 2005 12:01 ]
Post subject: 

Það er ekkert vit í því að kaupa svona bíla frá USA nema hann sé 2001+, því s52 er í raun bara m52 3.2 með lágu drifi og engan vegin sambærilegur við euro spec bílanna (kraftminni, lélegri bremsur, spólvörn o.s.frv.).

Svo hef ég dálítið verið að lesa af vélarbilunum í S54 usa bílunum þ.a. mér finnst persónulega ekkert spennandi að kaupa þá þaðan.

Ég myndi aldrei kaupa einhvern flóðabíl og hvað þá svona gæðing, það er bara dýrt spaug að laga ///M bíl.

Author:  Thrullerinn [ Sun 13. Feb 2005 12:15 ]
Post subject: 

Hér er t.d. einn góður kostur

Beschreibung:
scheckheftgepflegt,1.Hand, Metallic, Leder exclusiv, bicolor,5-Gang, Klima,2 el. Sitze, Soundsystem, Außentemperaturanzeige,2x el.
Fensterh. ,Innenraumfilter, Colorvergl. ,Außenspiegel beheizbar, Servo,3.Bremsl. ,R/ C,Fahrer/ Beifahrerairbag, CD- Wechsler,
Wegfsp. ,ZV mit Fernbed. ,el. A- spiegel, Armlehne, Windschott, ABS, Sportfahrwerk, Alarmanl. ,Sportsitze, Raeder/ Breitreifen, Alu- Felgen 17
Zoll,2-türig, absoluter top Zustand !!! Händlerfestpreis !!!


Reiknivélin góða:
Stofn til aðflutningsgjalda: 1.437.950 ISK
Aðflutningsgjöld 1.157.909 ISK
Ýmis kostnaður við skráningu: 21.864 ISK
Samtals: 2.617.723 ISK

Author:  bebecar [ Sun 13. Feb 2005 12:35 ]
Post subject: 

Mér finnst Cabrio bíllinn ennþá svakalega ljótur - Coupé bíllinn miklu flottari og Z1 og Z4 svo lang flottastir af Roadsterunum frá BMW (nýlegu auðvitað)
En þessi prís virðist hinsvegar vera góður á þessum bíl sem Thrullerinn sendi...

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/