Page 1 of 1
ekkert lengur

Posted:
Mon 07. Feb 2005 12:52
by Djofullinn
Skiptir ekki lengur

Posted:
Mon 07. Feb 2005 12:59
by Eggert
Ég myndi nú ekki samþykkja að kaupin gengu til baka. Sérstaklega ekki ef þú fékkst staðgreiðslu fyrir hann. Þau hafa ekkert þannig gegn þér, sama hvert þau leita.
En samt skaltu ekki loka á hann hurðinni hvað varðar þennan leka, myndi ég segja. Geturu ekki sagst munu taka einhvern þátt í viðgerð á því, þ.e.a.s. ef lekinn hefur aukist frá því að þú lést hann af hendi? Ef þetta er ekki dýrt í viðgerð hjá TB, þá er það alveg þess virði að henda út 10-20k og vera laus við þetta bras, og ekkert samviskubit.
Gangi þér vel.

Posted:
Mon 07. Feb 2005 13:12
by gstuning
ef það lekur getur það ekki verið neitt alvarlegt nema slitin slanga eða eitthvað álíka
Fólk á að skoða það sem það kaupir ,,
það stendur líka í pappírunum að kaupandi er búinn að skoða bílin og kaupir hann í því ástandi sem hann er núna, nema um annað umsami komi fram

Posted:
Mon 07. Feb 2005 13:31
by Einsii
það komst upp leki meðfram pakkdós á bíl sem ég seldi og það hafði trúlega verið í gangi eitthvað á meðan ég átti han þannig að ég og kaupandi skiptum bara kostnaði með okkur.. og ekkert vesen


Posted:
Mon 07. Feb 2005 20:03
by Litli_Jón
Eftir að ég seldi bílinn minn 2-3 mánuðir þá var ég kærður því að skiptingin fór í bílnum mínum og ég þurfti að borga 50 kall í viðgerðinni
Það stendur víst í lögum (Mjög loðið samnt) að fyrri eigandi beri ábyrgð á bílnum í 2 ár eftir sölu......... Nema um annað sé samið eins og að eigandi taki við bílnum í þessu ástandi og ekkert múður........

Posted:
Mon 07. Feb 2005 22:28
by Bjarki
Benzoz wrote:Það stendur víst í lögum (Mjög loðið samnt) að fyrri eigandi beri ábyrgð á bílnum í 2 ár eftir sölu
Eru það ekki bara almenn lög um lausafjárkaup?
Stundum kaupir maður bíla á 20-30-40þús og tveggja ára ábyrgð það er nú helvíti nice


Posted:
Tue 08. Feb 2005 00:06
by Gunni
Þetta eru bara lög um lausafjárkaup. Það stendur ekkert um tíma í þeim, það er bara matsatriði held ég.