Page 1 of 3

Verkefnið komið af stað.

PostPosted: Wed 26. Feb 2003 12:52
by Stefan325i
Jæja nú eru hjólin farinn að snúast. Intercoolerinn komin í og verið að tengja mælana, fer í bæin að kaupa restina á föstudag, og set hann á pústvextæðið ef ég fæ pústpakningarna frá b&l svo á bara að tengja allt turbó dótið saman um helgina og vona að allt gangi upp l :wink:

PostPosted: Wed 26. Feb 2003 12:54
by GHR
Verður gaman að sjá árangurinn. Vona bara að þú ''sprengir'' ekki upp mótorinn eða bræðir úr :lol:

Veit um einn náunga sem setti túrbínu úr Fiat Uno í Toyota Corolla GTI og er búinn með tvær vélar :? , virkaði samt víst þrælvél en hann var ekki með intercooler (????) Don't ASK þannig að hann hefði verið að fá mun meira út úr þessu en ella, en sumir eru bara skrýtnari en aðrir :wink:

PostPosted: Wed 26. Feb 2003 13:43
by Djofullinn
Glæsilegt! Maður verður síðan að fá að skoða þetta hjá þér :)

PostPosted: Wed 26. Feb 2003 15:48
by siggiii
Frábært ef þetta gengur upp.

PostPosted: Wed 26. Feb 2003 18:51
by gstuning
þetta kemur allt í ljós :wink:

ég stefni á að setja hann í 250 hö til að byrja með og svo sjá til hvað er hægt að gera :twisted:

PostPosted: Thu 27. Feb 2003 14:27
by bjahja
Maður bíður spenntur :D

PostPosted: Thu 27. Feb 2003 16:43
by hlynurst
To be continue...

PostPosted: Fri 28. Feb 2003 23:51
by Raggi M5
Stebbi geturu ekki sýnt okkur myndir af þessu hjá þér :wink:

Update

PostPosted: Sat 01. Mar 2003 22:38
by gstuning
Jæja
keyptum ryðfríjar pípur og beygjur fyrir helgi,
og silicone hosur
einnig E36 320i tps og MAF,
Einnig keypti stefán 911 Turbo blow off ventill, er upgrade fyrir GT4 Celicur og er líka standard í 944 Turbo, Þannig að ekkert slæmt djönk þar,
Original BOSCH partur sem kostaði undir 5þús 8)
Nógu gott fyrir Porsche nógu gott fyrir GST
Ætlum að láta nægja að vera með MAF í staðinn fyrir að reyna MAP þar sem að MAF flæðir slatti vel

Fyrir valinu varð E36 320i MAF sem er 70mm inn og út, sem fittar beint í stock innsog gummí sokkinn, ákváðum að halda stærðunum niður í bíli til að reyna að smíða þröngt kerfi fyrir mjög early boost, draumur að fá max boost af stað fyrir 2500rpm, meikar bílinn mikið meiri "togara" :) og miklu miklu minna turbo lag

Einnig 320i Throttle Position Sensor, Sem er fyrir SMT6 tölvuna svo hún viti hversu mikið er verið að gefa í , því að M20B25 er bara með idle, open, wot rofa, sem sökkar feitt,
næstum búnir að smíða adapter plötu fyrir hann undir throttle body-ið, svo smíðar stefán nýjar old style TPS inní bílinn á bensín pedallan fyrir ECU-ið(hann virkar þannig að það gefst idle samband þegar pedallin er alveg uppi, og svo WOT samband þegar hann er alveg niðri)

Meira í sambandi við kerfið, við ætlum að hafa allt kerfið 50mm frá túrbo að E36 MAF til að vera með eins snemmt max boost og hægt er á án þess að skemma max power eða of hitun, kerfið ætti að styðja 300hp í 50mm formi, annars verður bara E36 325i MAF og allt draslið sett í 80mm :)

Stefán er búinn með víranna í mælanna,
það er búið að sækja olíupönnuna og á hana er drain komið og sæti fyrir hita skynjarann, hún fer í á morgun,
Og við ætlum að rífa gömlu pústgreinina af og svo á mánudag þegar stefán nær í nýjar pústgreinar á pósthúsið þá setjum við loks í alvöru túrbínu á vélina, og með því að klára það er hægt að still smt6 tölvuna fyrir að meika E36 320i MAF virka Í staðinn fyrir gamla AFM, og hægt að keyra á pústverkstæðið og klára pústið(fitta downpipe og O2) svo draga hann til baka, til að vera ekki að snúa opinni túrbínu, og þá klárum við pípurnar og allt er klárt, svo verður tjúnað með O2 í gangi, ætli við leyfum stock tölvunni ekki að vera með O2 tengdan núna, þar sem að það er tengi fyrir honum, auðveldar henni að finna réttar stillingar fyrir lausagang og mengun,

Svo dyno dagur í Apríl/Maí þegar ég verð vonandi búinn að setja mína í og nýja pústið og laga vanosið 8)
Þá koma nýjar og betri tölur enn 225hp :evil:

PostPosted: Sat 01. Mar 2003 23:41
by Djofullinn
Þið eruð vonandi búnir að taka myndir af öllu prósessinu? Alltaf gaman að eiga svoleiðis :)

PostPosted: Sun 02. Mar 2003 12:34
by Stefan325i
það verða teknar myndir í kvöld og vonand næ ég að pósta því sem fljótlegast, jæja það þíðir ekkert að vera að eiða timanum best að fara að dryfa sig í skúrinn svo þetta verði nú einhvetíman búið. :wink:

Image

PostPosted: Sun 02. Mar 2003 15:39
by Halli
glæsilegur bíll

PostPosted: Sun 02. Mar 2003 15:55
by bjahja
Virkilega flottur.
Ég ætla einhverntíman að fá mér svona E30 project :)

PostPosted: Sun 02. Mar 2003 21:01
by arnib
Þetta er geðveikt kúl project, þannig að ég segi bara
eins og hinir, er ekki örugglega búið að taka fullt af myndum af ferlinu ? ;)

PostPosted: Sun 02. Mar 2003 23:23
by oskard
Ég ættla að stela upskriftinni ef þetta virka :lol: :lol: :lol: