Page 1 of 1
850ia

Posted:
Sun 22. Sep 2002 17:41
by Guest
á kassi.is er til sölu 850 bíll, vita menn eitthvað um þennan bíl, og hvað væri raunhæft að borga, allar ráðleggingar vel þegnar

Posted:
Sun 22. Sep 2002 18:50
by bebecar
Ef þetta er þessi vínrauði þá hef ég séð hann og ég held að það sé tjónabíll, ég veit ekkert um ástand hans, en ég sá hann einu sinni á bílasýningu í höllinni og þá var hann eitthvað skakkur en það gæti verið að það sé búið að laga hann síðann þá. Hann er allavega á skikkanlegu verði miðað við hinn bílinn.
Sá blái kom inn í gegnum Bíla og List og hann var í súperstandi þá eftir því sem ég best veit. Það var aðeins búið að "rice"- a hann þegar ég sá hann síðast en það ætti að vera góður bíll. Mig minnir að hann hafi samt ekki verið svona dýr þegar þeir seldu hann. Þú gætir spurt hann Trausta að því sem var í Bílar og list en hann er að vinna hjá Bílfang.

Posted:
Sun 22. Sep 2002 19:05
by Guest
það er sá blái, það er sett á hann 3.5 mill. sem mér finnst reyndar allt of hátt, sá svipaðan bíl á mobile.de á rúmlega 10.000 €

Posted:
Sun 22. Sep 2002 19:44
by bebecar
Ég er nú ekki að fullyrða það en mig minnir að þeir í Bílar og list hafi boðið mér hann á 2.5, ég bara man það ekki, það eru sirka 2 ár síðan held ég.

Posted:
Sun 22. Sep 2002 21:08
by Djofullinn
Er ég eitthvað blindur eða? Ég sá engan 850 á kassa


Posted:
Sun 22. Sep 2002 21:34
by Gunni
Djofullinn wrote:Er ég eitthvað blindur eða? Ég sá engan 850 á kassa

hehe ég held þú sért blindur

þetta er á bilakassi.is undir bilasölur


Posted:
Fri 27. Sep 2002 23:12
by Dr. E31
Halló, ég er eigandi vínrauða 850i bílsinns, og hann er bara í fínu formi, engin skekkja eða neitt svoleiðis, bara smotterí, bilaður afturrúðuhitari og svona. Þessi verð á 850 bílunum eru algjör brandari, 1890þ uppí 3200þ, ég meina wooo, ha. Ég fékk minn á 1350þ, bara bargain. (Já hann var tjónaður en ég finn ekki fyrir því, það hefur verið gert vel við hann)
Ingi

Posted:
Fri 27. Sep 2002 23:25
by Gunni
Dr. E31 wrote:Halló, ég er eigandi vínrauða 850i bílsinns, og hann er bara í fínu formi, engin skekkja eða neitt svoleiðis, bara smotterí, bilaður afturrúðuhitari og svona. Þessi verð á 850 bílunum eru algjör brandari, 1890þ uppí 3200þ, ég meina wooo, ha. Ég fékk minn á 1350þ, bara bargain. (Já hann var tjónaður en ég finn ekki fyrir því, það hefur verið gert vel við hann)
Ingi
Ertu ekki ennþá með hann á flottu felgunum sem voru á honum ?? geðveikar

hvað er langt síðan þú keyptir hann ?? mig minnir að hann hafi verið ansi lengi á sölu áður en hann seldist. þetta er geðveikt flottur bíll. ég dáðist að honum á hverjum degi í langan tíma, ég var að vinna í húsi við hliðina á fyrri (sennilega) eiganda. Hvernig er það, á ekkert að mæta á honum næst og leyfa manni að sjá ?? allavega massabíll


Posted:
Fri 27. Sep 2002 23:32
by bebecar
Velkominn á svæðið Ingi....
Ég vona að ég hafi ekki móðgað þig

1350 er ekki mikið fyrir svona grip, það verður að segjast eins og er.
Endilega láttu sjá þig.... þessir bílar eru alltaf smartir, sérstaklega í lúkkinu!

Posted:
Fri 27. Sep 2002 23:41
by Dr. E31
Jú, hann er ennþá á þeim,og verður á þeim, vantar bara stærri afturdekk, þau sem eru undir eru pínulítið of mjó. Ég keypti hann í byrjun júní. Ég skal kíkja einhverntíman á samkomu. (ef ég er ekki í vinnuni

)
Ingi