Page 1 of 1

Rally Design ??

PostPosted: Fri 31. Dec 2004 14:26
by Arnar
Ég fékk þennan fína "Rally design motorsport catalogue 2005" með síðasta blaði af "total bmw"
Það ert margt sniðugt í honum, en ég vara að spá hefur eitthver pantað eitthvað frá þeim eða notað eitthvað að vörum sem þeir eru að selja ?

Þeir eru að selja t.d. Wilwood bremsudót, OMP stóla, grírnhúða, stýri, ofl , Valeo kúplingar, frekar ódýr fjöðrunarkerfi t.d. gasdemparar og lækkunargormar 35mm hringinn á £179 og koni kerfi á £356

þeir eru með síðu á netinu :wink:

http://www.rallydesign.co.uk

PostPosted: Fri 31. Dec 2004 15:46
by gstuning
Heilt fjöðrunar kerfi þaðann kostar á E30 77þús inn komið (356pund)


Þarf ég að nefna að heilt kerfi frá GSTuning er frá 56þús ;)
að 73þús fyrir H&R Cup Kit

77þús er ekki beint ódýrt

PostPosted: Fri 31. Dec 2004 22:16
by hlynurst
gstuning wrote:Heilt fjöðrunar kerfi þaðann kostar á E30 77þús inn komið (356pund)


Þarf ég að nefna að heilt kerfi frá GSTuning er frá 56þús ;)
að 73þús fyrir H&R Cup Kit

77þús er ekki beint ódýrt


Hvað er innifalið í H&R cup kit?

PostPosted: Sat 01. Jan 2005 16:39
by gstuning
Demparar og gormar

Það er ekki eins stíft og coilovers en ekki eins mjúkt og plain lækkunarkit

PostPosted: Sat 01. Jan 2005 19:48
by Arnar
Ussuss, djöfull er dýrt að flytja þetta inn... það liggur við að það sé ódýrara að fara út yfir helgi og djamma, taka þetta síðan með sér heim í tösku :lol:
Það er orðið svo ódýrt að fljúga. En hefur eitthver hérna pantað frá þessum aðila ?
Eða eru allir farnir að versla bara í gegnum þig gunni :wink:

PostPosted: Sat 01. Jan 2005 19:55
by gstuning
Arnar wrote:Ussuss, djöfull er dýrt að flytja þetta inn... það liggur við að það sé ódýrara að fara út yfir helgi og djamma, taka þetta síðan með sér heim í tösku :lol:
Það er orðið svo ódýrt að fljúga. En hefur eitthver hérna pantað frá þessum aðila ?
Eða eru allir farnir að versla bara í gegnum þig gunni :wink:


Auðvitað versla menn hjá mér,
Styrkja heimbyggð ;)

Þegar maður hefur gott að bjóða á decent verði þá mun fólk átta sig á endanum að versla við mann, 1998 settum við stefán GSTuning á laggirnar, þetta er allt að koma :)

hvað myndirru gera ef eitthvað dót kemur skemmt til þín,
þú þarft að standa í veseni aldarinnar skal ég segja þér

Fá endurgreitt tollinn (sem er ekki auðvelt) VSK
Borga sjálfur flutning út (um 80€ á fjöðrun)
Vonast til að framleiðandinn sé til að gera gott við þig og kennir ekki flutningi um,
borga svo flutning tilbaka
og borga aftur toll og VSK

Það er mikið þægilegra að geta bara droppað rusli á einhvern annan og fá nýtt eða viðgerð í staðinn

PostPosted: Tue 04. Jan 2005 22:27
by Chrome
:) ég var akkurat að skoða spjallið hjá ykkur Gunni :) og hlakka til að fara að senda litla bróðir að versla til ykkar bræðra hann á einn vægast sagt illa farin E-30 sem er svona verið að ýta í uppgerð :) en er eitthvað verið að laga síðuna hjá ykkur? :? sé hana frekar illa hjá mér :(

PostPosted: Wed 05. Jan 2005 09:30
by gstuning
Chrome wrote::) ég var akkurat að skoða spjallið hjá ykkur Gunni :) og hlakka til að fara að senda litla bróðir að versla til ykkar bræðra hann á einn vægast sagt illa farin E-30 sem er svona verið að ýta í uppgerð :) en er eitthvað verið að laga síðuna hjá ykkur? :? sé hana frekar illa hjá mér :(


Hún sést vel hjá mér,,

PostPosted: Wed 05. Jan 2005 15:14
by Fyllikall
hmm, er gstuning með heimasíðu? Það væri gaman að skoða hnað þið eruð að bjóða uppá!
Ef þetta er kjánaleg spurning þá er ég kjáni þannig að mér er alveg sama! :D

PostPosted: Wed 05. Jan 2005 15:23
by gstuning
Gat wrote:hmm, er gstuning með heimasíðu? Það væri gaman að skoða hnað þið eruð að bjóða uppá!
Ef þetta er kjánaleg spurning þá er ég kjáni þannig að mér er alveg sama! :D


ef þú færir músarbendilinn þinn yfir WWW myndina í undirskriftinni minni þá fer það með þig beint á síðuna okkar gefandi að þú klikkir á myndina líka ;)

NOTE : auðvitað er hún ekki búinn