Page 1 of 1

Smá saga um bmw-töffara sem endaði á staur........

PostPosted: Tue 18. Feb 2003 00:15
by lalli maggi
Jæja ég lenti í rosalegu atviki áðann, Ég var staddur á ljósonum hjá staldrinu og var það hliðinná mér þessi mjög lagalegi bimmi.... 5??i ok ég var þarna á minni gti corollu og voru náungarnir á bmwnum einhvað að atast í mér sendandi puttann og svoleiðis, síðann þruma þeir af stað meina ok þeir stinga mig af en, rúsínan í pylsuendanum er.......... þessi bimmi endaði för sína á ljósastaur hjá pizza-hut alveg í klessu... Ætlaði að vera cool og taka beygjuna upp búsaðarveginn á ferðinni en beygði of snemma og endaði á staurnum .. Ég held að ég sé ekkert að ykja of mikið þear ég segi að húddið hafi verið í skottinu á bílnum og ansi flott listaverk í frammrúðunni ( 3 hausa för) þannig að það er einhver með höfuðverk núna hehehehehe....

PostPosted: Tue 18. Feb 2003 00:33
by Raggi M5
Hvernig var þessi bíll á litinn? Gamallt eða nýlegt body?
Mér fynnst þetta nú ekkert vera neitt hlátursefni samt sem áður...

....

PostPosted: Tue 18. Feb 2003 00:49
by lalli maggi
eins og þinn 88+

PostPosted: Tue 18. Feb 2003 08:44
by fréttahaukurinn
Er þetta ekki sami áreksturinn?

Bylgjan. Þri. 18. feb. 07:46
Náði ökumanninum á hlaupum
Ökumaður bifreiðar missti stjórn á bíl sínum á gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar í gærkvöld. Ökumaðurinn hljóp af vettvangi en lögreglan náði honum á hlaupum. Maðurinn er grunaður um ölvun við akstur.

PostPosted: Tue 18. Feb 2003 09:14
by Bjarki
Þetta var svartur e34 bimmi ég keyrði þarna framhjá áður en bíllinn var dreginn í burtu þá voru þarna tveir löggubílar og einn bíll frá slökkvuliðinu. Ég ætlaði að sjá skráningarnúmerið á bílnum en það var engin númeraplata að aftan. Síðar um kvöldið keyrði ég þarna framhjá og þá var búið að draga bíllinn og hreinsunardeildin að hreinsa svæðið. Maður sá strax að þarna höfðu "ofurhugar" verið á ferð enda akstursskilyrði eins og best verður á kosið á þessum árstíma.

PostPosted: Tue 18. Feb 2003 09:15
by Haffi
bölvaðir vitleysingar sem keyra undir áhrifum !!
Vona að allir séu í lagi though.

PostPosted: Tue 18. Feb 2003 09:58
by lalli maggi
Enn í haldi lögreglu eftir að hafa stungið af frá árekstri




Tveir menn, sem reyndu að stinga af á hlaupum frá árekstri í gærkvöldi, sitja enn í haldi lögreglunnar í Reykjavík. Mennirnir eru grunaðir um ölvun og jafnvel að hafa verið undir áhrifum fíkniefna. Annar mannanna ók bílnum en hinn var farþegi í framsæti. Fyrrverandi lögreglumaður hljóp mennina tvo uppi.
Áreksturinn varð á mótum Bústaðavegar og Reykjanesbrautar um ellefuleytið. Sjónarvottar sáu mennina grípa eitthvað úr skotti bílsins áður en þeir hlupu burt. Að sögn lögreglu er ekki vitað hvað mennirnir gripu úr skottinu og hefur ekkert fundist á vettvangi.

Tveir farþegar sem voru í aftursæti bílsins hlutu minniháttar meiðsl.

PostPosted: Tue 18. Feb 2003 11:47
by Just
Gott að þessir hálfvitar náðust, þeir hefðu þess vegna getað klesst á annan bíl með leiðinlegum afleiðingum :evil:

PostPosted: Tue 18. Feb 2003 12:58
by flamatron
nákvæmlega :evil:

PostPosted: Tue 18. Feb 2003 16:20
by iar
Þvílíkur hálfvitaskapur, gott að þeir slösuðu enga nema sjálfa sig.

Líklega verið að reyna að vinna Darwin verðlaunin í ár. :wink:

PostPosted: Wed 19. Feb 2003 19:46
by íbbi
veit að þetta passar nú kannski ekki alveg inní en á síðasta föstudag sá ég þennan líka sjúka 3rd gen Trans am (jafnvel bird) fara í döðlur á lækjargötuni.. var eitthvað að þrykkja og þrusaði aftan á sýndist mér kyrrstæðan peugeot 206.. sást lítið sem ekkert á pjúgganum við fyrstu sýn en transinn í köku bókstaflega,

transinn lék nefnilega sama leik og akkurat alveg eins trans aminn sem ég átti.. fór bara undir bílin pjúggin endaði uppá topnum á transanum :roll:


sad samt.. þetta var einn af þeim bílum sem flazzaði glæsilegri uppgerð beint í feisið á manni :( sýndist mér.. var einmit að dást af honum fyrr um daginn