bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Ecotek https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=84 |
Page 1 of 3 |
Author: | Svezel [ Thu 19. Sep 2002 18:59 ] |
Post subject: | Ecotek |
Ég var bara að spá í því hvort menn hefðu einhverja reynslu af þessum Ecotek ventlum sem Bílbox selur. Það sem ég hef lesið af netinu er nokkuð gott en virkar þetta eitthvað í raun, þ.e. minnkar eyðslan eitthvað og virkar þetta á bimma? |
Author: | Guest [ Thu 19. Sep 2002 19:06 ] |
Post subject: | |
ég hef heyrt talað um þetta en þekki ekki sjálfur. Við erum með sömu vél þannig að ég væri verulega til í að heyra hvort þetta virki hjá þér ef þú færð þér þetta. ![]() |
Author: | Gummi [ Thu 19. Sep 2002 19:07 ] |
Post subject: | |
Anonymous wrote: ég hef heyrt talað um þetta en þekki ekki sjálfur.
Við erum með sömu vél þannig að ég væri verulega til í að heyra hvort þetta virki hjá þér ef þú færð þér þetta. ![]() Var ekki skráður inn annars er þetta ég gummi. |
Author: | Svezel [ Mon 23. Sep 2002 12:03 ] |
Post subject: | |
Jæja ég er búinn að setja þetta í bílinn og líst bara vel á. Ég er nú bara rétt búinn að prófa þetta og ég finn srax mun á gjöfinni og eyðslumælinum. Læt ykkur vita þegar ég hef betri reynslu af þessu. |
Author: | bebecar [ Mon 23. Sep 2002 12:23 ] |
Post subject: | |
Hvernig finnur þú mun á gjöfinni? Þurfti þú einn eða tvo ventla? |
Author: | Svezel [ Mon 23. Sep 2002 15:11 ] |
Post subject: | |
Hann er aðeins sneggri upp en áður en ég er samt aðallega að spá í eyðsluna. Ég þurfti bara einn ventil þar sem ég er með minna en 2,6L vél en þú myndir t.d. þurfa tvo í M5inn. p.s. flott mynd af M5inum í fréttablaðinu ![]() |
Author: | bebecar [ Mon 23. Sep 2002 16:53 ] |
Post subject: | |
Takk fyrir það! Einn búin að hringja! Já, ég var búin að tékka á þessu og ég þarf tvo ventla í minn. |
Author: | Svezel [ Wed 25. Sep 2002 08:06 ] |
Post subject: | |
Ég er núna búinn að hafa þetta í 2 daga og er ennþá að stilla hann til en núþegar er eyðslan um líter minni og ég er samt búinn að keyra heldur þyngra á gjöfinni. Það tekur víst smá tíma að stilla hann almennilega því hann er að slípast til og svoleiðis þannig að eysðlan á að minnka meira svo mér líst bara vel á þetta. |
Author: | bebecar [ Wed 25. Sep 2002 10:52 ] |
Post subject: | |
Hvað er þá eyðslan hjá þér mikil núna? Finnst þér hann vera snarpari líka? Ég er að spá alvarlega í skella mér á þetta....... |
Author: | Svezel [ Wed 25. Sep 2002 11:15 ] |
Post subject: | |
Hann er augljóslega aðeins snarpari, missti hann t.d. óvart í spól í gær sem hefur ekki gerst áður ![]() Hann var að eyða svona 15 en er núna í 13,5 - 14. Ég held að hann sé að eyða meira en hann á að gera út af kertunum. Kertin eru orðin dálítið slöpp að ég held en ég er búinn að kaupa ný kerti en gafst upp á því að skipta sjálfur þegar opnaði kveikjulokið. Hann fer fljótlega check svo þá læt ég skipta um kertin. Svo er þetta ekki svo dýrt, 11.900kr í komið og ábyrgð ef þú ert ekki ánægður. |
Author: | bebecar [ Wed 25. Sep 2002 11:28 ] |
Post subject: | |
Já.... eyðslan á mínum er svona 16.5 til 17.5 það væri nú til mikils vinnandi að ná því niður um einsog einn líter eða meira. Svo ég tali nú ekki um ef hann verður snarpari.... Ég er með splunku ný kerti þannig að það ætti ekki aðv era problem... Breyttist vélarhljóðið eitthvað? |
Author: | Svezel [ Wed 25. Sep 2002 12:29 ] |
Post subject: | |
Ég varð nú ekki var við neitt sérstaklega breytt vélarhljóð en það heyrist svona hljóð eins og það sé verið að sjúga síðustu dropana úr kókdós þegar maður slær af. Ég heyri það reyndar ekki nema ég sé með opið húddið þannig að þetta pirrar mann ekkert. Hvernig kerti ertu með bebecar? Ég keypti Autolite platínukerti hjá Benna sem eiga að vera mjög góð en mér finnst ég vera að syndga aðeins með því að nota ekki Bosch ![]() |
Author: | Bjarki [ Wed 25. Sep 2002 12:33 ] |
Post subject: | |
Ef eyðslan færi niður um 21,6% eins og stendur á síðunni, væntanlega mjög breytilegt eftir vélum, þá væri það mjög þjóðhagslega hagkvæmt ef allir myndu fá sér svona ventil!! Minn bíll er núna að eyða 15,2 l/100 km sem mér finnst vera mjög lítið fyrir svona stóran og þungan bíl, þetta er bara innanbæjar og sparakstur. Ef ég gæti minnkað eyðsluna um bara 15% og farið undir 13 l/100 km með þennan bíl þá ætti maður að fá sér svona ventil strax í dag. M.v. minn akstur myndi þetta þýða ca 25 þús krónur í sparnað á einu ári. |
Author: | bebecar [ Wed 25. Sep 2002 13:09 ] |
Post subject: | |
Ég keypti náttúrulega bara Origianl BOSCH kerti í hann, maður þorir ekkert að hrærar í þessu tæki maður! Já, ef eyðslan færi niður um 21.6% hjá mér þá myndi ég hætta við að selja! Hann væri þá ekki að eyða nema 14 innanbæjar!!!!! En málið er að við þyrftum tvo ventla, ekki bara einn. En ég er mjög áhugasamur um þetta, búin að fá tilboð og langar mikið að drífa bara í þessu. Ég ætla samt fyrst að sjá hvernig þetta kemur út hjá Svezel. Hver er endingin á þessu apparati annars? |
Author: | Svezel [ Wed 25. Sep 2002 20:14 ] |
Post subject: | |
Það er hægt að lesa allt um þetta hér |
Page 1 of 3 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |