Page 1 of 1

Hver á.....??

PostPosted: Wed 12. Feb 2003 00:10
by BMW
hver er það sem á bmw-750 grænan síndist mér með numerið YM-676 :?: þessi bíll var fyrir utan lögreglu stöðina í vestmannaeyjum og dóp hundurinn og allt var kallað á staðinn sá ég :( , þetta er ekki bíll úr eyjum.... :!:

PostPosted: Wed 12. Feb 2003 09:40
by bebecar
Hvað er með dílera og 7 línur frá BMW... geta þeir ekki bara haldið sig á einhverjum amerískum pimpmóbílum!

PostPosted: Wed 12. Feb 2003 09:49
by Haffi
Ég man bara hvernig það var á gamla 520 e34 bílnum mínum... hann var með dökkar filmur allann hringinn og soldið vígalegur! Fólk horfði á mann með skelfingarsvip þegar maður keyrði um eins og aðal dealerinn væri mættur á svæðið.
Svo var þessi 6cyl m20 vél ekkert lágvær soldið mikið ventla tikk og heyrðist vel í opnu pústi :)

PostPosted: Wed 12. Feb 2003 12:35
by GHR
bebecar wrote:Hvað er með dílera og 7 línur frá BMW... geta þeir ekki bara haldið sig á einhverjum amerískum pimpmóbílum!



Góður :lol: , en alveg sammála t.d. eru BMW 750 bílarnir stimplaðir sem dópride. Verð bara hálf smeykur þegar ég fer að keyra minn í sumar, löggan alltaf eitthvað að fylgjast með manni og vill örugglega leita í bílnum - og reynir að setja út á allt sem þeir sjá s.s. dökk afturljós, sprungnar perur o.s. frv
Ég man eftir grein í Morgunblaðinu seinasta sumar. Þar var mynd af 5 BMW 7 línum sem voru í geymslu hjá Lögreglunni eftir dópistamál eitthver :? - bara fyndið

Reyndar eru þetta svo vígalegir bílar og dópdealarnir vilja vera evil looking og töff :twisted:
Einnig eru þetta ekki með þeim ódýrstu í rekstri og fáir hafa efni á að reka þetta nema vera með pleanty high incomes - sem og dópistar gera :wink: - og ekki má gleyma powerinu til að stinga lögguna af :lol:

PostPosted: Wed 12. Feb 2003 13:48
by Raggi M5
Fyrri eigandinn á mínum var alltaf að lenda í því að fíknó stoppaði hann til þess að leita í bílnum, samt hef ég aldrei lent í því, halda samt örugglega margir það þegar ég hef verið stoppaður í kef útaf hraða eða eikkað :D

PostPosted: Wed 12. Feb 2003 15:06
by gstuning
fyrsta kvöldið mitt á blæjunni árið 2000 þegar ég fékk hann og fór að rúnta í rvk, þá var ég stoppaður 3svar og einu sinni leitað að dópi,

PostPosted: Wed 12. Feb 2003 15:33
by saevar
Ég hef nú aldrei verið stoppaður á bimmanum. Ekki nema bara í hliðinu upp á velli. Löggan var alveg að trompast þegar ég sagðist ekki geta opnað skottið og það væri ekki hægt að komast í skottið í gegnum sætið. Þeir voru byrjaðir að hóta mér að bíllinn yrði tekin og þeir myndu opna hann sjálfir. 8)

PostPosted: Wed 12. Feb 2003 15:43
by bjahja
Ég hef heldur aldrei verið stoppaður, kannski breytist það núna þegar ég er komin á svartan bimma 8)

PostPosted: Wed 12. Feb 2003 18:52
by rutur325i
jújú ....
maður kannast við þetta , maður keyrir niðrí bæ um helgar og er á svörtum bmw þá eru frekar miklar líkur að maður verði stoppaður.
Ég lenti einu sinni í því að vera stoppaður 3. sinnum á 3 tímun þ.e.a.s einu sinni á á klukkutíma, og var orðinn svoldið pirraður á þessu enda sagði ég löggunni sem stoppaði mig í þriðja skiptið að vinsamlegast láta mig vera, og ég væri ekki með neitt í bílnum því fíknó stoppaði mig í annað skiptið og leitaði í bílnum, Löggan virti það nú og bað mig afsökunar og sagði mér að fara varlega :) Þetta er samt ótrúlega pirrandi..... :x

PostPosted: Wed 12. Feb 2003 19:03
by GHR
Núna er bíllinn minn kominn á númer (djöfull er hann flottur 8) ) og ég ætla athuga hversu langt líður þangað til að löggimann stoppi mann :x
Hann er líka óskoðaður þannig að hún verður örugglega mjög fljót :cry:

PostPosted: Wed 12. Feb 2003 19:05
by bjahja
Er bílnum þínum ekki lagt rétthjá vöku, ég sá hann áðan lítur mjög vel út 8)

PostPosted: Wed 12. Feb 2003 19:16
by GHR
bjahja wrote:Er bílnum þínum ekki lagt rétthjá vöku, ég sá hann áðan lítur mjög vel út 8)


Júbb, hann var þar áðan. Var að kíkja í heimsókn til bróður míns sem vinnur á réttingarverkstæðinu þar.
Takk fyrir það, mér finnst hann líka orðinn skuggalega fallegur - loksins kominn með rétt andlit. Vantar bara ljóskastarana, en þeir koma seinna :wink:

PostPosted: Wed 12. Feb 2003 19:23
by bjahja
Já hann er skuggalega flottur og bara skuggalegur yfir höfuð 8)

PostPosted: Wed 12. Feb 2003 22:29
by Kull
Minn bíll ætti að passa vel inní þetta enda á 18" felgum á sumrin og með vel skyggðar rúður. En á þessu eina ári sem ég hef átt hann hef ég aðeins verið stoppaður einu sinni. Það var rétt fyrir jólin þegar þeir voru með mikið átak gegn ölvunarakstri og voru bara rétt að tékka hvort mar væri fullur, tók örstuttan tíma og löggan var mjög kurteis og fín. Löggan hefur svosem tékkað á manni á ferðinni en ég hlýt að vera með svo saklaust andlit bara :)

PostPosted: Wed 12. Feb 2003 22:34
by Svezel
Ég hef nú alveg verið látinn í friði af löggunni en einu sinni þegar ég var að rúnta með vinum mínum (við erum allir um og yfir 190cm og 90kg+) þá spurði einhver gaur hvort við værum að selja dóp... 8)

Er að spá í filmur og lækkun í sumar svo þá verður kannski aldrei friður :roll: