bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Thu 22. May 2025 22:14

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 18 posts ]  Go to page 1, 2  Next
Author Message
PostPosted: Sun 24. Oct 2004 11:19 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Sun 18. Apr 2004 22:26
Posts: 316
Location: Ísland
Auto, Motor und Sport, Heft 21 2004

BMW gegn Mercedes

Forsíðufréttin að þessu sinni er um nýjar tegundir frá BMW og Mercedes. Samtals munu koma næstum 20 nýjir bílar frá þessum framleiðendum fram til 2008.

Nýji þristurinn mun koma næsta vor og verður hann töluvert rúmbetri en núverandi bíll og munar þar mestu um að hann er 8 cm breiðari. Touring útgáfan mun síðan verða sýnd á bílasýningunni í Frankfurt næsta haust. Í byrjun verður boðið upp á fjórar vélar, tvær fjögurra og tvær sex strokka frá 150 til 258 hö. Nýja diesel vélin úr 535d kemur seinna.

Nýr S klassi frá Mercedes kemur á næsta ári og til að svara því mun BMW gera eitthvað við sjöuna, í það minnsta vélarlega. Talað er um að 12 strokka vélin muni fá Biturbo til þess að keppa við öflugustu S klassa bílana. Einnig er talað um að V10 vélin úr M5 verði tjúnuð í 600 hö fyrir væntanlegan M6.

Í undirbúningi hjá BMW er einnig nýr bíll sem flokkast ekki undir neitt sem til er núna hjá þeim. Þessi bíll gengur undir nafninu “Raum Konzept” sem mætti þýða sem “rýmishugmynd”. Bíllinn verður byggður á lengdri fimmu og verður sennilega fjórhjóladrifinn og einrýmisbíll (Touring). Talað er um markaðssetningu árið 2008.

Ásinn hefur selst vel í upphafi í Þýskalandi og nú er farið að bíða eftir fleiri útgáfum. 2005 koma reyndar engar nýjar útgáfur nema hvað fimm dyra bíllinn fær 6 strokka vél. 2006 mun hins vegar koma 3ja dyra útgáfa sem verðu enn þrengri afturí. 3ja dyra bíllinn mun fá aðeins öðruvísi grill og afturljós og verður til að byrja með aðeins boðinn með 6 strokka vélum. Hvaða fleiri útgáfur af ásnum verða í boði er ekki ljóst ennþá.
_____________________________________________________________

BMW 535d á móti Mercedes E 400 CDI

Þrátt fyrir færri strokka og að vera minni keppir línusexan við V8 diesel frá Mercedes vegna tveggja túrbína. Línu sexan er 272 hö og 560 Nm og er 50 kg léttari en V8 vélin frá BMW. Um þessa vél skrifaði ég um daginn í þræðinum Auto, Motor und Sport, Heft 20.

Strax við 1500 sn/min nær vélin 530 Nm togi. 535d vélin er í raun bara 3ja lítra. Mercedes vélin er hins vegar 4,0 l eins og nafnið gefur til kynna og er V8. Hún er 260 hö og einnig 560 Nm við 1700 sn/min. Á pappírnum eru þessir bílar svipaðir. 0-100 km/klst á 6,8 sek (BMW) og 7,2 sek (Mercedes) og báðir eru þeir takmarkaðir við 250 km/klst. hámarkshraða. BMW vélin þykir hins vegar svara sneggra en áður hefur þekkst hjá diesel vélum. Hún snýst að 5000 sn/min og það heyrist varla að þetta sé dieselvél, nema þá helst í hægagangi. V8 vél Mercedes nær ekki að halda í við línu sexuna hvað varðar aflnýtingu. Mjög góð 5 þrepa sjálfskiptingin hjá Mercedes hjálpar hins vegar til við að koma aflinu til skila. 6 þrepa sjálfskiptingin hjá BMW sem kemur sem staðalbúnaður er stillt sportlegar en hjá Mercedes. BMW vélin eyðir minna, 10,4 l/100 km á móti 11,6 l/100 km hjá Mercedes.

BMW-inn þykir höndla betur, m.a. vegna þess að hann er 100 kg léttari að framan. Hann er líka allur miklu léttari í akstri. Mercedes fær hins vegar plús fyrir loftpúðafjöðrunina. Maður finnur meira fyrir veginum í BMW. Blaðamanni finnst stjórntækin (takkar o.s.frv.) betra í Mercedes en þeir eru líka allmennt á móti i-Drive þannig að þetta kemur ekki á óvart. Samtals vinnur BMW 535d m.a. vegna minni mengunar, að vera ca. 8000 EUR ódýrari og ódýrari tryggingar.

Niðurstaða:...............BMW 535d.......Mercedes E 400 CDI
Boddýið (100).................80.......................80
Notkun (50)....................39.......................44
Akstursþægindi (100).......86......................90
Vél og drifás (100)...........81......................73
Akstursöryggi (100).........83.......................77
Bremsur (50)...................47......................48
Umhverfi (50)..................29......................21
Kostnaður (100)...............89......................74
Samtals (650).................534....................507

1. BMW 535d: Kostir 535d eru týpískir fyrir BMW, sportlegur, góð vél, gott að keyra og góð handling. Vegna betra verðs og minni mengurnar vinnur hann örugglega.
2. Mercedes E 400 CDI: 400 CDI er með allt annan karakter en 535d, þægilegri og einfaldari í notkun. Hann tapar á vél, kostnaði og mengun.

Helstu tæknilegar upplýsingar:
.........................BMW 535d.................Mercedes E 400 CDI
Vél:...................6 strokka línuvél.........V8
Afl:....................200 kW (272 hö).........191 kW (260 hö)
Tog:...................560 Nm við 2000 sn....560 Nm við 1700 sn
Þyngd:...............1800 kg......................1941 kg
0-100 km/klst......6,8 sek......................7,2 sek
Eyðsla í prófun:...10,4 l/100 km.............11,6 l/100 km
Grunnverð:.........51.830 EUR................60.158 EUR
_____________________________________________________________

Aðrar smáfréttir sem tengjast BMW

Háhraða vetnisbíll frá BMW

BMW hefur framleitt hugmyndabíl sem ber nafnið H2R og er knúinn með V12 vetnisvél sem er 285 hö. Aðeins eitt eintak verður til af þessum bíl. Fjallað var um hann á þræðinum Vetnis Power Hann var við prófanir á einhverri háhraðabraut í Frakklandi og fór hringinn á 11,993 sek. og hélt meðalhraða upp á 300,2 km/klst. BMW stefnir ennþá á að bjóða núverandi sjöu með vetnis/bensínvél.
_____________________________________________________________

Þristurinn var þriðja söluhæsta tegundin í Þýskalandi í ágúst og féll um eitt sæti úr nr. 2. Þetta má væntanlega skýra þannig að nýr þristur kemur næsta vor og því halda hugsanlegir kaupendur að sér höndum. Fimman er 9. söluhæsta tegundin og X5 er í 46. sæti af þeim 50 tegundum sem eru á þessum lista. Samtals er BMW í fjórða sæti bílaframleiðenda í Þýskalandi.
_____________________________________________________________

Vona að einhver hafi nennt að lesa þetta. Meira seinna.
Kveðja,

_________________
Nökkvi
BMW E36 Alpina B3 3,0 cabrio
Seldir: BMW E46 328i '99, BMW E39 540i '96, Audi Cabrio 2,0 '93, BMW E36 325i Coupé '93
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 24. Oct 2004 11:24 
Snilld :!:


Top
  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 24. Oct 2004 12:39 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Posts: 2807
Location: Reykjavík
Tek undir orð Óskars :!:

:)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 24. Oct 2004 14:08 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Ein mega M5 Kraftwagen
Mestur allra vagna
einhverntíman ich haben
öðlast slíkra gagna

:idea: :idea: :idea: :idea: :idea:

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 24. Oct 2004 20:29 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Posts: 3878
Location: Mosó city
Alpina wrote:
Ein mega M5 Kraftwagen
Mestur allra vagna
einhverntíman ich haben
öðlast slíkra gagna

:idea: :idea: :idea: :idea: :idea:


hehehe 8)

_________________
E53 X5 4.4i


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 24. Oct 2004 21:09 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Posts: 8506
Location: 101 RVK
Sehr gut

_________________
Enginn BMW


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 24. Oct 2004 21:20 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
Djöfull gaman að lesa þetta 8)

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 24. Oct 2004 21:34 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Posts: 5727
Location: Mosfellsbær
Þetta er alger snilld hjá þér Nökkvi! Frábært framtak! :clap:

Nökkvi wrote:
Nýji þristurinn mun koma næsta vor og verður hann töluvert rúmbetri en núverandi bíll og munar þar mestu um að hann er 8 cm breiðari. Touring útgáfan mun síðan verða sýnd á bílasýningunni í Frankfurt næsta haust. Í byrjun verður boðið upp á fjórar vélar, tvær fjögurra og tvær sex strokka frá 150 til 258 hö. Nýja diesel vélin úr 535d kemur seinna.


335d *slef*

_________________
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 25. Oct 2004 10:15 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Posts: 4811
Location: Hafnarfjörður
iar wrote:
Þetta er alger snilld hjá þér Nökkvi! Frábært framtak! :clap:

Nökkvi wrote:
Nýji þristurinn mun koma næsta vor og verður hann töluvert rúmbetri en núverandi bíll og munar þar mestu um að hann er 8 cm breiðari. Touring útgáfan mun síðan verða sýnd á bílasýningunni í Frankfurt næsta haust. Í byrjun verður boðið upp á fjórar vélar, tvær fjögurra og tvær sex strokka frá 150 til 258 hö. Nýja diesel vélin úr 535d kemur seinna.


335d *slef*


Tek undir það. :D :twisted:

_________________
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 25. Oct 2004 11:11 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Jss wrote:
iar wrote:
Þetta er alger snilld hjá þér Nökkvi! Frábært framtak! :clap:

Nökkvi wrote:
Nýji þristurinn mun koma næsta vor og verður hann töluvert rúmbetri en núverandi bíll og munar þar mestu um að hann er 8 cm breiðari. Touring útgáfan mun síðan verða sýnd á bílasýningunni í Frankfurt næsta haust. Í byrjun verður boðið upp á fjórar vélar, tvær fjögurra og tvær sex strokka frá 150 til 258 hö. Nýja diesel vélin úr 535d kemur seinna.


335d *slef*


Tek undir það. :D :twisted:


Jebb,, myndi segja að það ætti að vera eitthvað sem allir verða sáttir við

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 25. Oct 2004 11:45 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
já... 3 lína með 270hö twin turbo dieselvél hljómar bara vel!

gaman að lesa samanburðin á benzinum og bimmanum, eitt sem ég hef tekið eftir þar sem maður ósjálfrátt er alltaf berandi þessi merki saman er að mér er farið að þykja nýju benzarnir flottari að innan en bmw, sem er alveg þveröfugt við það sem áður hefur verið,

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 25. Oct 2004 15:17 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Wed 19. May 2004 12:59
Posts: 425
Gaman að lesa þetta :)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 25. Oct 2004 23:52 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Wed 18. Feb 2004 22:33
Posts: 33
Þ.a. BMW vinnur þetta aðallega á því að vera ódýrari og menga minna :wink: .

Ég held að ég hafi séð sambærilegt test einhvern tímann og 500E og M5 sem sá síðarnefndi rétt hafði þar sem hann skoraði mun fleiri stig fyrir að vera ekki eins dýr.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 26. Oct 2004 08:41 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Posts: 3217
Location: Vesturbærinn
E 220T wrote:
Þ.a. BMW vinnur þetta aðallega á því að vera ódýrari og menga minna :wink: .

Ég held að ég hafi séð sambærilegt test einhvern tímann og 500E og M5 sem sá síðarnefndi rétt hafði þar sem hann skoraði mun fleiri stig fyrir að vera ekki eins dýr.


Nei.

BMW vinnur þetta af því að:
:arrow: Hann kostar 86% af verði Benzins.
:arrow: Hann eyðir minna
:arrow: Hann mengar minna
:arrow: Hann er sneggri
:arrow: Hann er kraftmeiri

:arrow: 6þrepa sjálfskipting á móti 5þrepa
:arrow: Höndlar betur

Lastu ekki greinina? :)

Og síðast en ekki síst vinnur hann af því að hann er BMW! (kannski pínulítið hlutdrægt) 8)

_________________
BMW E46 328i


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 26. Oct 2004 08:56 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Posts: 1638
Location: Reykjavík
Eina sem Benzinn er að vinna eru akstursþægindi og notkun. Merkilegt, það eru þeir eiginleikar sem Afi leitar helst að í bíl! 8)

_________________
JÞS
- 323i coupe - '96


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 18 posts ]  Go to page 1, 2  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 20 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group