bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
getur einhver sagt mér um þennan 325 https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=7789 |
Page 1 of 2 |
Author: | SUBARUWRX [ Thu 14. Oct 2004 17:25 ] |
Post subject: | getur einhver sagt mér um þennan 325 |
þekkir einhver til þessa bmw? endilega póstið þ´vi sem þið vitið um hann og hver er munurinn á i og ix ?? http://www.bilasolur.is/bisImageServer.aspx?img=25830058&size=fullsize&watermark=bilasolur.is |
Author: | arnib [ Thu 14. Oct 2004 17:26 ] |
Post subject: | |
iX er fjórhjóladrifinn. |
Author: | SUBARUWRX [ Thu 14. Oct 2004 17:28 ] |
Post subject: | |
vá fljótur að svara, en eru þessir 325 fjórhjóladrifnu að virka eikkað ? er 300 þús enn alltof mikið fyrir þennan hann er ekinn 190 þús með leðri og er bsk, |
Author: | hlynurst [ Thu 14. Oct 2004 17:32 ] |
Post subject: | |
Hann er ekki bara með leðri heldur geðveikum M stólum. ![]() En fjórhjóladrifið er svo sem fínt á veturna en þyngir bílinn og hann ætti að vera hægari upp heldur en afturhjóladrifnir. IX bílarnir eru líka með læstu drifi. ![]() |
Author: | SUBARUWRX [ Thu 14. Oct 2004 19:03 ] |
Post subject: | |
veit einhver hvað þetta er að eyða þegar þetta er fjórhjóladrifið (veit að það á ekki að spá í því) og þekkir einhver meðferðina á þessu og hvort það sé vit í að versla þetta... |
Author: | O.Johnson [ Thu 14. Oct 2004 19:51 ] |
Post subject: | |
Ef hann er lítið eða ekkert riðgaður þá er þetta fínnt verð á svona bíl. |
Author: | hlynurst [ Thu 14. Oct 2004 20:03 ] |
Post subject: | |
Hann er aðeins ryðgaður, aðallega á afturbrettunum... skoðaði þennan bíl fyrir ekki svo löngu. Virtist vera þokkalega búinn miða við hvað hann er gamall.. |
Author: | Alpina [ Thu 14. Oct 2004 20:06 ] |
Post subject: | |
Er þet6ta ekki 87 bíll ,,,,,ef þetta er sá bíll sem að mig grunar ... þá var þetta fanta eintak fyrir 4 árum |
Author: | hlynurst [ Thu 14. Oct 2004 20:11 ] |
Post subject: | |
Þetta var víst '85 módel... fann hann á bilasolur.is ![]() |
Author: | Friðrik [ Thu 14. Oct 2004 22:47 ] |
Post subject: | |
já hmm.. sko ég var að spá í þessum bíl fyrir um hálfu ári og þá var sá eigandi búinn að eiga hann í tæpt ár en árið þar á undan höfðu eitthvað hátt í 10 átt bílinn ![]() |
Author: | O.Johnson [ Thu 14. Oct 2004 23:06 ] |
Post subject: | |
hlynurst wrote: Þetta var víst '85 módel... fann hann á bilasolur.is
![]() iX kom '86 þannig að hann getur ekki verið '85 |
Author: | oskard [ Thu 14. Oct 2004 23:07 ] |
Post subject: | |
O.Johnson wrote: hlynurst wrote: Þetta var víst '85 módel... fann hann á bilasolur.is ![]() iX kom '86 þannig að hann getur ekki verið '85 ETK segir að fyrstu hafi komið 85 |
Author: | olithor [ Fri 15. Oct 2004 22:56 ] |
Post subject: | Re: getur einhver sagt mér um þennan 325 |
Djöfull sá ég flottan 325ix í kringlunni í dag, voru á honum eldri hjón. hvítur 4.dyra með sílsakitti. Var á gömlu H númeri. rosalega smekklegur |
Author: | Schulii [ Sat 16. Oct 2004 01:01 ] |
Post subject: | |
Ég er búinn að eiga tvo 325ix E30. Sá fyrri var virkilega skemmtilegur. Með körfustólum og bara mjög snyrtilegri innréttingu. Og talandi um vinnslu að þá hef ég svosem ekki samanburð á venjulegum 325i með sömu M20 vélinni en allavega virkaði þessi MJÖG vel. Ég fór allavega 1/4 míluna á 15.3 sem er þokkalegur tími. Það sem er auðvitað mikill + varðandi hröðun er að bíllinn er með svo frábært upptak. Þú missir þennan bíl ekkert í neitt spól eða neitt slíkt. Hann einfaldlega flýgur af stað! Ég var að kaupa mér annan 4ra dyra E30 325ix. Hann lítur ekki eins vel út og gamli ix-inn minn en hann virkar alveg svakalega vel. Sérstaklega eftir að ég fór með hann til manns sem ég þekki og er mjög fær í að meðhöndla BMW. Og eitt að lokum. Ég get alveg sagt þér það að það er sko ekki leiðinlegt að vera á 168 hestafla fjórhjóladrifnum BMW að leika sér í snjó þegar hann kemur ![]() Eyðslan er frá 11 uppí svona 14 l/100km. Fer auðvitað eftir akstri. Eitt sem er gott að vita líka en það er að ix bílarnir eru töluvert frábrugðnir hinum 6cyl E30 bílunum varðandi mjög margt. T.d. er olíupannan á vélinni öðruvísi og það er ekki sjálfgefið að varahlutir úr E30 sem varða drif og vél og slíkt passi á milli. En það eru aðrir hérna sem vita meira um það heldur en ég. Ef þetta er gott eintak og þú kaupir hann er ég viss um að þú munir ekki sjá eftir því. Mín reynsla er BARA góð af þessum bílum. |
Author: | arnib [ Sat 16. Oct 2004 01:13 ] |
Post subject: | |
Rétt er það Skúli að vél og hlutir tengdir drifi og slíku eru öðruvísi að mörgu leyti í iX bílnum. Þó er hægt að nota afturdrif á milli bílanna, en þau eru þó samt ekki með samskonar læsingu. iX bíllinn er líka frábrugðinn hvað varðar fjöðrun, en það þarf að skoða það sérstaklega ef að það á að kaupa nýja (sport-) fjöðrun í bílinn. Sama gildir þá um strut-brace og slíkt, þar sem að munurinn liggur í hvernig strut-turnarnir eru í bílunum. Að öðru leyti eru bílarnir að mestu leyti eins, body partar og allt slíkt passar á milli. |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |