Page 1 of 1
heimasíða

Posted:
Sun 09. Feb 2003 23:44
by Guest
Getur einhver leiðbeint mer vernig ég get fengið mer heimasiðu
skoðaði linkana sem þeir póstuðu bmw750 en eg skil þetta ekki sorry


Posted:
Sun 09. Feb 2003 23:52
by Halli
þetta er ég gleymdi að skrá mig inn

Posted:
Mon 10. Feb 2003 11:27
by Svezel
Ég myndi segja að það væri einfaldast að fara á síðuna
www.cardomain.com og
skrá sig þar inn.
Skráningin skýrir sig nokkuð sjálf, bara svipuð og skráningin hérna á bmwkrafti. Síðan þegar þú ert búinn að skrá þig þá fær maður heimasíðupláss þar sem maður getur uploadað myndum og búið til cardomain heimasíðu á netinu. Allar upplýsingar hvernig fara skal að eru á síðunni svo þetta ætti ekki að taka lengri tíma en svona 10mín.
Vona að þetta hjálpi.

Posted:
Mon 10. Feb 2003 11:46
by Djofullinn
Ég tek undir þetta sem Svezel var að segja,
þetta er einfaldasta leiðin til þess að setja myndir á netið.
Það eru líka ágætis leiðbeiningar þarna

Posted:
Mon 10. Feb 2003 17:35
by Halli
takk strákar þetta er orðið einsog bræðrafélag


Posted:
Mon 10. Feb 2003 17:47
by Svezel
He he BMWbræður


Posted:
Mon 10. Feb 2003 17:52
by Halli
er búin að skrá mig hvernig fæ ég mitt heimasíðusvæði?


Posted:
Mon 10. Feb 2003 18:45
by Svezel
Þú skráir þig inn með notendanafninu og leyniorðinu sem þú fékkst úthlutað. Þá ættir þú að sjá link til vinstri á síðunni sem á stendur:
"Return to member lobby and customize your page"
Þú smellir á þennan link og þá færðu möguleikann á því að búa til eigin síðu. Það er heimasíðusmiður á síðunni með leiðbeiningum hvernig eigi að búa til síðu svo þetta ætti að vera frekar einfalt eftir það.

Posted:
Mon 10. Feb 2003 19:01
by Halli
þakka þér innilega fyrir


Posted:
Mon 10. Feb 2003 19:07
by Svezel
Minnsta mál, hef hvort eð er ekkert betra að gera


Posted:
Tue 11. Feb 2003 20:09
by Halli
Er búin að fá svæði nú þarf eg að fá
myndirnar inn en eins og alltaf þá kann
ég ekki tölvur og ég eiga ekki saman
sorry

Posted:
Tue 11. Feb 2003 20:56
by Svezel
Þegar þú ert búinn að búa til nafn á síðuna í "summary" þá smellir þú að 1 fyrir aftan "Edit page:".
Þá kemur svona einfaldur heimasíðuritill á skjáinn og hægra megin er rammi sem stendur á "Add Images".
Þar smellir þú á "Browse" og velur myndir af harða disknum hjá þér.
Síðan smellir þú á "Upload Image" og þá er myndin komin í gagnabankann á síðunni.
Núna getur þú skrifað eitthvað sniðugt í miðju rammann og notar skipunina <IMG # C>, <IMG # R> eða <IMG # L> til að setja inn myndir þar sem þú setur númer myndarinnar(1,2,...) í stað # og C, R og L standa fyrir miðjujöfnun, hægrijöfnun og vinstrijöfnun.
Svo þegar þú ert búinn þá smellir þú á "Update This Page" neðst á skjánum.
Síðan getur smellt á "vehicle info" og sett inn upplýsingar um bílinn og þá ætti allt að vera klárt.

Posted:
Thu 13. Feb 2003 22:34
by Halli
það kemur ekkert þar sem þú skrifar
Núna getur þú skrifað eitthvað sniðugt í miðju rammann og notar skipunina , eða til að setja inn myndir

Posted:
Thu 13. Feb 2003 23:41
by Svezel
Búinn að laga þetta, smá html conflict
