Page 1 of 3

Bílinn nánast klár :)

PostPosted: Sun 09. Feb 2003 18:35
by GHR
Jæja, núna er glæsivagninn nýsprautaður og SHINY. Ég er orðinn svo ánægður með hann núna - hann er orðinn stórglæsilegur og allt byrjað að virka sem skildi - vélin þrælvinnur og er orðin þýð og góð (þurfti bara að fá að vera aðeins í gangi og keyra hann :wink:
Hann kom bara út í dag og er kominn aftur heim í skúr og þetta kostaði mig aðeins 15-20 % af mánaðarlaununum :D ,,sem er gott''
Núna vantar mig bara annað framgrillið (er bara rétt ókomið frá T.B) og eitt nýra (gamla orðið frekar slappt)

Já sprautunin tókst bara þrælvel og búinn að setja nánast allt saman s.s. stuðarann (hann var alltaf laus á köntunum) og þarna komst ég að því að það er ekkert að leka nema stýrið (hélt að auto og vélin væri að dropa en þetta var víst bara stýrið:)

Núna vantar bara djúpar 18" felgur og þá er bíllinn orðinn gjörsamlega sjúkur.

Ég tók nokkrar myndir en veit ekki hvernig ég á að setja þær hingað inn til að sýna ykkur, þarf ekki eitthvað netsvæði sem getur geymt myndirnar???

PostPosted: Sun 09. Feb 2003 19:35
by joipalli
Þú getur skráð þig á http://photos.yahoo.com/

Það er mjög einfalt og þægilegt

PostPosted: Sun 09. Feb 2003 20:26
by Svezel
Ég vil fara að sjá myndir af græjunni, hann er örugglega orðinn svaðalega flottur hjá þér svona nýsprautaður og fínn.

Þú getur líka skráð þig á cardomain.com og dælt myndum inn á eigin heimasíðu þar.

PostPosted: Sun 09. Feb 2003 21:10
by GHR
Jæja, prófum

Image



Image


Image


Image


Image



Image



Image



Image




Image



Image

PostPosted: Sun 09. Feb 2003 21:12
by GHR
Eins og þið sjáið kannski þá vantar enn mestmegnis af frampartinum en ég á þetta allt til, var bara ekki búinn að setja neitt á þegar myndirnar voru teknar (alveg nýbakaðar myndir :wink: )

Helvíti fínt, enginn litamismunar né neitt

Hvernig líst ykkur á ????

PostPosted: Sun 09. Feb 2003 21:21
by iar
Glæsilegur vagn!! Til lukku! :-)

PostPosted: Sun 09. Feb 2003 21:35
by Djofullinn
Glæsilegt Gummi!!! Ég verð að kíkja á hann hjá þér við tækifæri :P

PostPosted: Sun 09. Feb 2003 22:44
by Bjarki
Úff þvílíkur dópsalabíll!! Ekki slæmt hvar keyptir þú lakkið?

PostPosted: Sun 09. Feb 2003 23:30
by Guest
til lukku með þetta
var allur bíllin málaður?

PostPosted: Sun 09. Feb 2003 23:53
by Halli
þetta er ég fyrir ofan sorry

PostPosted: Mon 10. Feb 2003 00:26
by Guest
Anonymous wrote:til lukku með þetta
var allur bíllin málaður?


Nei, það þurfti ekki. Hann leit mjög vel út að mestu, en svona til öryggis svo það myndi ekki koma neinn litamismunur, þá var allur framparturinn og út báðar framhurðirnar sprautaðar (liturinn var jafnaður út á hurðunum - ekki heilsprautað).
Hitt var allt í topp standi (þ.e.a.s. lakkið)

PostPosted: Mon 10. Feb 2003 00:49
by GHR
Og þetta mun vera ég þarna fyrir ofan - engu skárri en þú Halli :oops: :lol:

Halli: Bíllinn var svona fyrst


Image


Image


Frábært núna þegar maður kann að setja þessar myndir hérna inn.
Væri samt eflaust best að hafa þetta eins og á kvartmila.is - þá er hægt að browse harðadiskinn og finna myndina þar inn. Mun þægilegra og fljótlega. En það er víst ekki alltaf sól :(
Vona bara að ég sé ekki að setja of margar myndir inn sem taka mikið pláss :?:

PostPosted: Mon 10. Feb 2003 01:45
by sh4rk
Til lukku með bimmann hann er orðinn glæsilegur hjá þér

PostPosted: Mon 10. Feb 2003 12:05
by GHR
Takk fyrir hrósið strákar :D

PostPosted: Mon 10. Feb 2003 17:12
by siggiii
Til lukku :D