bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Eyðsla https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=763 |
Page 1 of 3 |
Author: | Svezel [ Sat 08. Feb 2003 19:33 ] |
Post subject: | Eyðsla |
Ég var að taka bensín áðan og mældi í leiðinni eyðsluna og hún var um 12.5l/100km. Nú veit ég ekki hvað ykkar bílar eru að eyða eða hvað er eðlilegt fyrir 520 en mér finnst þetta bara nokkuð gott miðað við færð og svona. Hvað eru bílarnir annars að eyða hjá ykkur og finnst ykkur þetta ekki bara fín eyðsla? p.s. ég er bara helvíti ánægður með bílinn núna og fer ekki að skipta í bráð þegar hann eyðir svona. Einnig þreif ég hann að utan í gær og djúphreinsaði teppin í dag svo hann er bara helvíti fínn ![]() |
Author: | hlynurst [ Sat 08. Feb 2003 19:44 ] |
Post subject: | |
Minn er örugglega að eyða svona 14-16 lítrum núna. Ég keyri í vinnuna og það er svona innan við 2 km. Þannig að bíllinn fær aldrei að hita sig sem er auðvitað svolítið slæmt. En samt ótrúlega sáttur við eyðsluna því ég bjóst við meira. Það er líka yndislegt að keyra þessa bíla úti á landi... tölvan sýndi einu sinni 7,9 lítra þegar ég keyrði til laugavatns og til baka, reyndar ekkert hratt. En það var mjög gaman. |
Author: | siggiii [ Sat 08. Feb 2003 20:10 ] |
Post subject: | |
Minn er með 14-15 Lítra á hundraðið en ég vona að hann fari niður í 12-14. |
Author: | hlynurst [ Sat 08. Feb 2003 20:14 ] |
Post subject: | |
Ertu þú að gefa honum mikið inn??? Mér finnst hann eyða svolítið mikið hjá þér... ![]() |
Author: | siggiii [ Sat 08. Feb 2003 20:19 ] |
Post subject: | |
Nei ég reyni að aka mjög skikanlega ![]() |
Author: | hlynurst [ Sat 08. Feb 2003 20:20 ] |
Post subject: | |
Performance & Consumption Cyl / CC BHP MPH 0-60 MPG 1991-1999 BMW 328i 6/2793 193 147 7.3 32.7 1988-1996 BMW 520i 6/1990 129 131 10.4 28.7 Kannski er þetta ekkert svo vitlaust... þessar tölur er teknar af http://www.parkers.co.uk Skrýtið.... 520i 28.7 mílur á galloninu. 328i 32.7 mílur á golloninu. |
Author: | hlynurst [ Sat 08. Feb 2003 20:21 ] |
Post subject: | |
Er E34 ekki samt kraftmeiri en 129 hö??? |
Author: | siggiii [ Sat 08. Feb 2003 20:34 ] |
Post subject: | |
Jú e34 520IA er 150 hö ![]() |
Author: | Bjarki [ Sat 08. Feb 2003 23:50 ] |
Post subject: | |
E34 520i með "nýju" vélinni er 150 hestöfl vélin á undan er 12 ventla og 129 hestöfl. Minn bíll er búinn að vera að eyða 16.6 l/100km á seinustu tveimur tönkum sparakstur bara innanbæjar í Reykjavík. Hann hækkaði sig um einn l/100 km þegar það kólnaði. Meðaleyðslan síðan ég keypti hann er 14,7 l/100km ein ferð út á land. Það er ágætt fyrir bíl sem er 1570 kg. |
Author: | Haffi [ Sun 09. Feb 2003 02:18 ] |
Post subject: | |
var það ekki E34 89 sem var með M20 vélinni sem var 129hp ? ![]() |
Author: | bebecar [ Sun 09. Feb 2003 10:51 ] |
Post subject: | |
Er sjöan ekki þyngri 1570 kíló??? |
Author: | oskard [ Sun 09. Feb 2003 12:58 ] |
Post subject: | |
Það er allsekki mikið bílinn minn er skráður 1280kg en hann er náttúrulega með 90kg af framhjóladrifi ![]() |
Author: | bebecar [ Sun 09. Feb 2003 13:39 ] |
Post subject: | |
Shiii maður. Eigin þyngd á mínum er að ég held 1690 kíló. Ég hef séð þá alveg uppí 1750 með 3.6 lítra vélinni. |
Author: | Bjarki [ Sun 09. Feb 2003 17:04 ] |
Post subject: | |
Veit ekki alveg með þessa þyngd, það stendur 1570 kg í skráningarskírteininu en 1600 kg skv. Owners Manual. Veit ekki hvað er réttara. Svo á ég þýska bók um BMW bíla með svona tæknilegum upplýsingum og þar stendur "Leergewicht 1720kg" ![]() |
Author: | Gunni [ Sun 09. Feb 2003 18:38 ] |
Post subject: | |
Bjarki wrote: Veit ekki alveg með þessa þyngd, það stendur 1570 kg í skráningarskírteininu en 1600 kg skv. Owners Manual. Veit ekki hvað er réttara. Svo á ég þýska bók um BMW bíla með svona tæknilegum upplýsingum og þar stendur "Leergewicht 1720kg"
![]() þristurinn minn er 1400 kíló, sjöan hlýtur að vera slatta þyngri en það. |
Page 1 of 3 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |