bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

535d - sigrar 545i á Hockenheim!
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=7535
Page 1 of 2

Author:  jth [ Thu 23. Sep 2004 13:18 ]
Post subject:  535d - sigrar 545i á Hockenheim!

Stórgott review um 535d, reyndar á þýsku.

535d virðist ekki eftirbátur 545i, þvert á móti! Í greininni eru sýndar hröðunartölur og millihröðunartölur, þar sem fram kemur að 535d skilur 545i eftir í hvaða gír sem er (80-120,80-140,80-160,etc)! Það er ekki fyrr en eftir 160 sem 535d fer að missa afl og 545i fer að sækja á.

Eins og mikið hefur verið rætt um 535d hér og annars staðar er ljóst að þetta verður stórkostlegur bíll! Hann er með Partikelfilter og uppfyllir því Euro-4, eins og við vorum að velta fyrir okkur nýlega.

Merkilegustu niðurstöðurnar í greininni eru þó þessar:
535d fór Hockenheim (litla hring) hraðar heldur en 545i. Á síðu 4 í greininni er hægt að sjá hámarkshraða bílanna á hverjum kafla og hröðun í gegnum beygjur.

Lesið greinina, hún er skemmtileg en mér finnst þó eins og eitthvað sé bogið við hana. Hröðunartölur 545i 0-100 km/klst skv.grein (mælingum þeirra) eru óeðlilega lélegar: Þeir mæla hann í 6,6s en skv. BMW er 545i 5,8s.

Svo fær sá prik í kladdann sem sér stærstu og mest áberandi villuna (fyrstu málsgrein) :lol:

http://bmwkraftur.pjus.is/iar/Fra_JTH/E60_535d_test/SA1.JPG
http://bmwkraftur.pjus.is/iar/Fra_JTH/E60_535d_test/SA2.JPG
http://bmwkraftur.pjus.is/iar/Fra_JTH/E60_535d_test/SA3.JPG
http://bmwkraftur.pjus.is/iar/Fra_JTH/E60_535d_test/SA4.JPG
http://bmwkraftur.pjus.is/iar/Fra_JTH/E60_535d_test/SA5.JPG
http://bmwkraftur.pjus.is/iar/Fra_JTH/E60_535d_test/SA6.JPG

Author:  oskard [ Thu 23. Sep 2004 13:27 ]
Post subject: 

v6?

Author:  Kull [ Thu 23. Sep 2004 13:28 ]
Post subject: 

oskard wrote:
v6?


Skandall!! :P

Author:  jth [ Thu 23. Sep 2004 13:36 ]
Post subject: 

oskard wrote:
v6?


Þokkalega! Prik í kladdann hjá Óskari :wink:

Engu að síður, ekki láta fyrstu málsgreinina aftra ykkur frá því að lesa greinina. Að dísel bíllinn skuli sigra flaggskip 5-línunnar eru hreint magnaðar fréttir.

Sérstaklega í ljósi þess að díselbíllinn var 10k evrum ódýrari.... :lol:

Author:  jonthor [ Thu 23. Sep 2004 13:59 ]
Post subject: 

Sama er uppi á teningnum í nýja þristinum, það er reyndar augljósara þar. 335d v.s. 330i

En 6,6 í hundrað hlýtur að vera vitlaust, meira að segja 540 gamli er 6,0 ef ég man rétt!

Author:  gunnar [ Thu 23. Sep 2004 14:04 ]
Post subject: 

Rosalegt alveg hreint :shock:

Author:  oskard [ Fri 24. Sep 2004 11:43 ]
Post subject: 

Ég man eftir bæklingi sem Lexus á íslandi dreifði út um allt þegar
IS200 var í sem mestri sókn hjá þeim þar var einmitt líka sagt
með stórum feitum stöfum að hann væri með v6 :)


...eða er hann með v6 og það stóð línu 6a í bæklinum... ég man
þetta nú ekki allveg :oops:

Author:  gtturbo [ Fri 24. Sep 2004 14:16 ]
Post subject: 

oskard wrote:
Ég man eftir bæklingi sem Lexus á íslandi dreifði út um allt þegar
IS200 var í sem mestri sókn hjá þeim þar var einmitt líka sagt
með stórum feitum stöfum að hann væri með v6 :)


...eða er hann með v6 og það stóð línu 6a í bæklinum... ég man
þetta nú ekki allveg :oops:


IS200 er með 6strokka línuvél!

Author:  íbbi_ [ Fri 24. Sep 2004 15:09 ]
Post subject: 

sem virkar ekki baun...

Author:  norwich [ Wed 09. Feb 2005 02:28 ]
Post subject: 

Þessi bíll er algjört phenomen

tímaritinu diesel car þá er þetta fljótasti diesel bíllinn í dag og rúmmlega það.

Hann er 6.5 sec í hundrað :shock:


hámarkshraða 250km innsiglað þar

og eyðir ekki nema 10l. í innanbæjarakstri sem er ekki dick :shock:

BMW 545i er sagður vera 5.8 í hundraðið og eyðir 16.3l innanbæjar.

No contest for me :wink:

Author:  fart [ Wed 09. Feb 2005 10:58 ]
Post subject: 

Eitt stórt atriði varðandi 535d er að hann er með dual exhaust aftur úr stuðaranum, en ekki eitthvað púst sem minnir á limp dick bakvið stuðaran.

Ég gæti alveg hugsað mér svona bíl. Hann er ekki ódýr úti.. en hann er samt í 30% tollinum er það ekki.

Author:  gstuning [ Wed 09. Feb 2005 11:02 ]
Post subject: 

fart wrote:
Eitt stórt atriði varðandi 535d er að hann er með dual exhaust aftur úr stuðaranum, en ekki eitthvað púst sem minnir á limp dick bakvið stuðaran.

Ég gæti alveg hugsað mér svona bíl. Hann er ekki ódýr úti.. en hann er samt í 30% tollinum er það ekki.


og brátt verður ekki þungaskattur heldur :)

Author:  Kull [ Wed 09. Feb 2005 11:09 ]
Post subject: 

fart wrote:
Eitt stórt atriði varðandi 535d er að hann er með dual exhaust aftur úr stuðaranum, en ekki eitthvað púst sem minnir á limp dick bakvið stuðaran.

Ég gæti alveg hugsað mér svona bíl. Hann er ekki ódýr úti.. en hann er samt í 30% tollinum er það ekki.


Allir bílar með stærri en 2.0L vélar eru með 45% vörugjaldi.

Author:  fart [ Wed 09. Feb 2005 11:14 ]
Post subject: 

Líka diesel?

AF hverju minnti mig að diesel væri cappaður við 3.0 þar sem að bensín er cappaður við 2.0.

Kanski var það þannig??

Author:  arnib [ Wed 09. Feb 2005 11:49 ]
Post subject: 

fart wrote:
Líka diesel?

AF hverju minnti mig að diesel væri cappaður við 3.0 þar sem að bensín er cappaður við 2.0.

Kanski var það þannig??


Því var haldið fram á þræðinum um Innflutningsreiknivélina, en síðan hafði það (því miður) ekki við nein rök að styðjast.
Tollskráin minnist ekki á neitt nema rúmtak vélar. :?

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/