bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Auto, Motor und Sport, Heft 20 2004 https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=7454 |
Page 1 of 1 |
Author: | Nökkvi [ Thu 16. Sep 2004 19:02 ] |
Post subject: | Auto, Motor und Sport, Heft 20 2004 |
Nýjasta Auto, Motor und Sport var að koma inn um lúguna og mér datt í hug að deila með ykkur svona helstu BMW fréttunum úr stærsta bílablaði Þýskalands. ______________________ BMW M5 Aðal BMW fréttin í þessu hefti er Fahrbericht á nýja M5 bílnum. Þetta er ekki full prófun á honum en samt nokkuð ítarleg grein. Blaðamanni finnst í þegar hann sest fyrst upp í bílinn og startar með venjulegum lykli (enginn starthnappur hér) hægagangurinn vera þíður. Að taka af stað rólega er lítið mál og því er bíllinn líka góður í í stop and go umferð. Þrátt fyrir háan snúning vélarinnar er aldei hávaði inni í bílnum en fyrir utan hljómar hann hins vegar mjög aggressívur. Hröðunin er alltaf jöfn og það koma aldrei neinir kippir á ákveðnum snúningi, bara fullt og nóg af afli. Sjö þrepa skiptingin var þróuð frá grunni til að vera SMG sem er ólíkt fyrri SMG skiptingum. Sá sem áður hafði efasemdir um sjálfskiptingar sannfærist við þessa prófun. Búið er að stytta skiptitímann mikið. Það er hægt að skipta um gír með stöng í miðjunni eða með tökkum í stýrinu. Þrátt fyrir góða sjálfskiptingu er samt sportlegra að skipta sjálfur. Til þess að komast að því hversu snöggur M5 er í 100 km/klst. velur maður sjálfvirka startprógrammið: Slökkva á DSC, halda gírstönginni fram, gefa í botn, sleppa gírstönginni ![]() Blaðamaður nennir ekki að telja upp allan listann sem er gott við þennan bíl en nefnir mjög góðar bremsur og góða neutral stýringu. Við fyrstu kynni fullkominn bíll. Og að lokum, af því V-10 vélin þarf allt það loft sem hægt er, er ekki hægt að fá þokuljós! Tæknilegar upplýsingar (þær helstu) Þyngd: 1830 kg Dekk: 255/40ZR19 framan, 285/35ZR19 aftan Afturhjóladrif með læsingu V-10, 4999 cm3 Bore and stroke: 92,0 x 75,2 mm Þjöppun: 12,0 : 1 373 kW (507 hö) við 7750 sn/min. 520 Nm við 6100 sn/min 0-100 km/klst.: 4,7 s Hámarkshraði: 250 km/klst. Eyðsla: 14,8 l/100km Verð frá aðeins: 86.200 EUR _____________________________________ BMW 535d Önnur nokkuð stór grein er um nýja 535d. 535d er í raun ekki rétt því vélin er bara 3,0 l. 530d nafnið er hins vegar frátekið fyrir venjulegu 3ja lítra dieselvélina sem er 218 hö. Munurinn er “Variable Twin Turbo”. Tvær túrbínur eru í bílnum, sú minni fyrir lágan snúning, báðar vinna á meðal snúning og sú stærri fyrir snúning fyrir ofan 2500 og skilar allt að 1,8 bar í þrýsting. Vélin er 272 hö og 560 Nm við 2000 sn/min. (530d er 500 Nm). Með svona tölum fyrir dieselvélar verða bensínbílar í framtíðinni bara fyrir sérvitringa sem vilja ekkert annað. Til sönnunar, 3ja lítra bensínvélin frá BMW er “bara” 231 hestafl. Þessi vél brýtur öll lögmál, m.a. með því að vera 14 hö aflmeiri en 4ra lítra V8 diselvélin frá BMW. Sjálfskipting verður staðalbúnaður og þá væntanlega 6 þrepa. Engir dauðir punktar eru í upptakinu við að taka af stað, bíllinn lifnar við rétt ofan við hægaganginn. Bíllinn togar svo mikið að maður trúir því ekki að þetta sé bara 3ja lítra vél og bíllinn sé 1,8 tonn. Óvenjulegt fyrir dieselvél er líka að vélin snýst allt að 5000 sn/min. Hröðunin er 0-100 á 6,8 sek og 0-160 á 16 sek. Áður þurfti maður að eiga Shelby Mustang til að ná þessum tölum! 200 km/klst er lítið mál og ef gefið er í þá fæst ennþá hröðun. Bíllinn er mjög hljóðlátur, við 100 km/klst. mælast aðeins 61 dB og við 140 km/klst. 67 dB. Eyðslan er skv. verksmiðju 7,5 l/100km sem er heilum líter yfir 530d. Við prófunina var eyðslan hins vegar 10,2 l/100 km. Nokkuð gott samt fyrir stóran bíl sem kemst á 250 km hraða. BMW hefur alltaf rukkað fyrir mikinn kraft og svíkur okkur heldur ekki núna. 535d kostar 8000 EUR meira en 530d en sjálfskiptingin er reyndar staðalbúnaður í 535d. Tæknilegar upplýsingar: 6 cyl línudieselmótor með tveimur túrbínum, 2993 cm3 200 kW (272 hö) við 4400 sn/min 560 Nm við 2000 sn/min (meira en M5 ![]() Hámarkshraði: 250 km/klst. 0-80 km/klst: 4,6 sek 0-100 km/klst: 6,8 sek 0-160 km/klst: 16,2 sek Bremsuvegalengd úr 100 km/klst. (kaldur/heitur): 40/41 m Eyðsla í prófun: 10,2 l diesel Verð frá aðeins: 49.300 EUR _________________________________ Aðrar BMW fréttir í blaðinu: Smá pistill um að hægt verði að kaupa M pakka fyrir ásinn. Kemur væntanlega á markað næsta vor. Í pakkanum verða m.a. nýir fram- og afturstuðarar, lækkun, 18” felgur (breiðari að aftan), leðurstýri, sportsæti o.fl. Verð ekki komið. Z4 er að fá meiri samkeppni, Volkswagen ætlar að setja á markað roadster eftir 3 1/2 ár sem verður með V6 vél í miðjunni og afturhjóladrifinn. Farangursgeymslan verður í húddinu. Svo kemur nýr Audi TT 2006. ___________________________________ Vona að einhver hafi gaman af þessu en ég lofa engu með að gera þetta reglulega. Sjáum til hverju maður nennir. Svo ef einhver vill vita meira þá er bara að hafa samband. |
Author: | Kull [ Thu 16. Sep 2004 19:09 ] |
Post subject: | |
Flott framtak, get ekki beðið eftir að skoða þessa bíla. |
Author: | jth [ Thu 16. Sep 2004 20:04 ] |
Post subject: | |
Glæsileg skrif! ![]() Þetta komment er auðvitað algjör snilld - ég er búinn að sjá marga þræði á m5board þar sem menn hafa verið að velta f.sér hvar þokuljósin væru, og hvort að þau kæmu í endanlegu pródúktinu. ![]() "...af því V-10 vélin þarf allt það loft sem hægt er, er ekki hægt að fá þokuljós!" Gaman að heyra af x35d vélinni - verðlagning á henni verður mjög spennandi. Ef minnið svíkur mig ekki eru 3ja lítra bensín og díselvélar á mjög svipuðu, ef ekki sama verði - og nú kemur fram að sterkari díselvélin verði um 8k evrum dýrari!! Þessi vél á eftir að verða hreinasta snilld, og verður ábyggilega til þess að eyða leigubílaímynd díselbíla ![]() Eyðslan á díselvélinni verður að teljast góð f.svo aflmikla vél - ræddu Þjóðverjarnir eitthvað um mengun? (Er BMW að spila þessari vél út á kostnað eyðslu og mengunar til þess eins að sýna sportlega díselvél - eða býður hún hagstæða mengun eins og aðrar nýrri kynslóðar díselvélar?) |
Author: | finnbogi [ Thu 16. Sep 2004 20:11 ] |
Post subject: | |
jth wrote: (Er BMW að spila þessari vél út á kostnað eyðslu og mengunar til þess eins að sýna sportlega díselvél - eða býður hún hagstæða mengun eins og aðrar nýrri kynslóðar díselvélar?)
ég held það ég meina ´þessar dísel vélar frá BMW eru bara snilld og svo maður gleymir ekki ásnum hva 2L dísel í honum er að skila góðum tölum vá ![]() ![]() |
Author: | gunnar [ Thu 16. Sep 2004 20:31 ] |
Post subject: | |
[quote="jth"]Glæsileg skrif! ![]() Þetta komment er auðvitað algjör snilld - ég er búinn að sjá marga þræði á m5board þar sem menn hafa verið að velta f.sér hvar þokuljósin væru, og hvort að þau kæmu í endanlegu pródúktinu. ![]() "...af því V-10 vélin þarf allt það loft sem hægt er, er ekki hægt að fá þokuljós!" Gargandi snilld! ![]() |
Author: | Jss [ Thu 16. Sep 2004 20:40 ] |
Post subject: | |
Frábært framtak, hafði mjög gaman af að lesa þetta, hefði tekið töluvert lengri tíma að lesa þetta á þýskunni. ![]() Mátt endilega endurtaka þetta ef aðrar skemmtilegar/áhugaverðar greinar koma í blaðinu. ![]() ![]() |
Author: | Nökkvi [ Fri 17. Sep 2004 07:39 ] |
Post subject: | |
jth wrote: Eyðslan á díselvélinni verður að teljast góð f.svo aflmikla vél - ræddu Þjóðverjarnir eitthvað um mengun? (Er BMW að spila þessari vél út á kostnað eyðslu og mengunar til þess eins að sýna sportlega díselvél - eða býður hún hagstæða mengun eins og aðrar nýrri kynslóðar díselvélar?)
Það var nú ekki rætt beint um mengun enda frekar lítil prófun á 535d. Hef samt trú á að þessi vél uppfylli EURO 4 staðalinn sem allir eru að keppast við í dag að ná. Það er samt erfitt fyrir dieselvélar nema að vera með Partikelfilter (sótagnasía???) en það getur vel verið að þessi vél sé með þannig búnaði. |
Author: | jonthor [ Fri 17. Sep 2004 08:05 ] |
Post subject: | |
Brill og skemmtileg lesning! |
Author: | mags [ Sun 19. Sep 2004 16:15 ] |
Post subject: | |
Fínt framtak ![]() Var að horfa á e-h konar sjónvarpsútgáfu af þessu testi hjá Auto Motor und Sport núna rétt áðan á VOX og hljóðið úr bílnum er alveg svaðalegt... bæði að aftan og framan. Þeir voru að keyra hann á fullu á þröngum fjallavegum og það var virkilega flott að horfa á þetta tekið innan úr bílnum. Innréttingin var nú líka alveg til að slefa yfir... ljóst leður og parkett á mælaborðinu (kannski ekki það sportlegasta en virkilega glæsilegt). Eitthvað voru þeir síðan að tala um að þyngd bílsins gefi fyrirheit um M5 CSL... hefur einhver heyrt eitthvað meira um það? |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |