Page 1 of 5
BMW = Dópsali og kriminal???

Posted:
Sun 12. Sep 2004 11:24
by Schnitzerinn
Ég var eltur heim til mín af löggunni í gærdag og þeir stoppuðu aðeins frá húsinu mínu þegar ég var búinn að leggja og biðu í smástund en þegar ég horfði á þá og beið, þá fóru þeir. Og svo í nótt þegar ég var á leiðinni inní Reykjavík þá var ég eltur frá Skalla í Hafnarfirði að Hamraborgarbrúnni. Núna í morgun var ég að renna í hlaðið hér heima hjá mér og þá sé ég að það er "leynilöggubíll" sem bíður fyrir utan húsið mitt, nánar tiltekið rauður Suzuki Baleno með númerinu RE-205 horfir á mig fara útúr bílnum og fer síðan í burtu. Samkvæmt heimasíðunni
http://loggubilar.bravepages.com þá er þessi bíll í eigu Lögreglunar hér í Hafnarfirði. Ég prófaði að hringja og ætlaði að fá svör við þessum "ofsóknum", en mér var sagt að hringja á morgun.
Er það bara þannig að ef maður er 2 metrar á hæð og er á svörtum BMW að þá er maður settur undir smásjá lögreglunnar ?


Posted:
Sun 12. Sep 2004 11:33
by fart
Þeir eru kannski bara heitir fyrir þér.


Posted:
Sun 12. Sep 2004 11:35
by Schnitzerinn
Svona líka FUNheitir, ætli það verði ekki Víkingasveitin á morgun


Posted:
Sun 12. Sep 2004 11:43
by gunnar
ussussuss leiðinlegt að lenda í þessu
Sem betur fer hef ég nú alveg verið látinn vera á mínum dökka bmw.

Posted:
Sun 12. Sep 2004 12:25
by íbbi_
ég fæ sona í mínum líka, er búin að fá alsherjarleit með fíkniefnahunda 3 svar, og trúið mér þið viljið ekki fá sona kvikindi inní bílin!

Posted:
Sun 12. Sep 2004 12:40
by Prawler
ógeðslegt að fá þessa helv. hunda inn í bílinn. Var að koma úr Norrenu í sumar á Seyðisfirði var tekinn úr röðinni og inn i einhvern skúr þar sem þessir andsk. leituðu í bílnum hjá mér með tvo hunda, losuðu allar hlífar í vélarrúminu og inn í bílnum. Ég spurði þá afhverju þeir væru að leita hjá mér og svarið var "þú ert á BMW"!
ruglaðir helv. andsk.

Posted:
Sun 12. Sep 2004 13:08
by Alpina
Þið þarna ,Smartass,,,, eðlilegt að vera súr yfir leit..
en ef að tollgæslan og yfirvaldið nota ekki svona aðferðir þá myndi enn meira magn af þessum sora flæða inn í landið..
Standið frekar beinir i baki og ef þið hafið ekkert að fela þá er samviskan góð,,
Mitt mat er að á ÖLLUM innfluttum bílum ætti að nota,,þefdýr til að útiloka aðild að sakamáli,,
Take that

Posted:
Sun 12. Sep 2004 13:10
by Dr. E31
Prawler wrote:Ég spurði þá afhverju þeir væru að leita hjá mér og svarið var "þú ert á BMW"!
En afhverju altaf BMW?

Posted:
Sun 12. Sep 2004 13:12
by oskard
Dr. E31 wrote:Prawler wrote:Ég spurði þá afhverju þeir væru að leita hjá mér og svarið var "þú ert á BMW"!
En afhverju altaf BMW?
aumingja löggurnar eru bara ekki með meiri greind en þetta.
þið eigið bara að vorkenna þessum aumingja mönnum

Posted:
Sun 12. Sep 2004 13:15
by bjahja
Dr. E31 wrote:Prawler wrote:Ég spurði þá afhverju þeir væru að leita hjá mér og svarið var "þú ert á BMW"!
En afhverju altaf BMW?
Það er bara staðreynd að margir dópsalar eru á bmw, það er bara svoleiðis. Mjög gáfaður dópsali fengi sér corollu en ég efast um að mjög gáfaður dópsali sé til
Mér þætti nú svosem allt í lagi ef það væri leitað í bílnum mínum eða ég eltur ef þetta er það sem löggann þarf að gera til að reyna að draga úr dóopsölu

Posted:
Sun 12. Sep 2004 13:43
by Schnitzerinn
Þeir ættu þá allavega að hafa eitthvað "HINT" til að byrja með. Ég kem ekki nálægt dópi og hef aldrei gert það ! En það sem ég ætla að gera á morgun er að fara uppá stöð og spyrja hvað um sé að vera því ég er ekkert sérstaklega mikið fyrir að hitta einhverja löggimenn í leynileik hér fyrir utan hjá mér !!!

Posted:
Sun 12. Sep 2004 14:04
by XenzeR
Já þetta er mjög fyndið, alltaf þegar ég er að rúnta seint á nóttinu um helgar og mæti lögguni á svona 30 götu. þá hægir löggubíllin alltaf á sér og báðar löggunar stara á mig, ég hef nú bara gaman að þessu


Posted:
Sun 12. Sep 2004 14:06
by Kristjan
Labbaðu bara uppað þeim næst og spurðu þá hvern fjandan þeir séu að gera...

Posted:
Sun 12. Sep 2004 14:16
by Alpina
Kristjan wrote:Labbaðu bara uppað þeim næst og spurðu þá hvern fjandan þeir séu að gera...
án vafa sérlega ,,sniðugt

eða hvað

Posted:
Sun 12. Sep 2004 14:32
by jens
Alpina skrifar:
ef að tollgæslan og yfirvaldið nota ekki svona aðferðir þá myndi enn meira magn af þessum sora flæða inn í landið
Ég verð að vera sammála Alpina það er ýmislegt á sig leggjandi til að það megi koma í veg fyrir innfluttning á þessu helv..