Page 1 of 3

ATH ATH ATH BÍL STOLIÐ !!!!!!!

PostPosted: Fri 10. Sep 2004 21:42
by force`
750il svartur hvarf í dag eða í kvöld,
allar upplýsingar vel þegnar,
tilkynni þennann bíl stolinn ef engar upplýsingar berast innan
klukkutíma, ef sá sem hefur vogað sér að taka hann, er gert að
skila honum HEILUM á þann stað sem honum var stolið frá og
verður hann ekki KÆRÐUR !


Sá hinn sami hefur klukkutíma eða tvo til að hafa samband við MIG
beint í síma 844-6717, allar upplýsingar verða trúnaðarmál
ef svo fer, en vantar þær STRAX!

Takk fyrir

PostPosted: Fri 10. Sep 2004 22:02
by Djofullinn
OMG! Ekki er það Force? :evil:
Ef ekki hvað er númerið á bílnum svo fólk sé ekki að hringja í þig útaf öllum svörtum 750 bílum sem það sér í kvöld :)

PostPosted: Fri 10. Sep 2004 22:02
by Eggert
Hmm, er hægt að stela svona bíl án þess að hafa lykil að honum? :?

Ég vona að hann komist til skila. :roll:

PostPosted: Fri 10. Sep 2004 22:38
by Eggert
Hvaðan var hann tekinn? Var hann fyrir utan heimili eða á bílastæði í almenningseigu, jafnvel í eigu fyrirtækis?

Búinn að tala við vöku eða lögregluna og athuga hvort þeir hafa nokkuð dregið hann í burtu einhverra hluta vegna?

Ef honum var virkilega stolið, þá er það náttla bara fúlt. En það á ekki að vera auðvelt að stela svona apparati nema maður lykla.

PostPosted: Sat 11. Sep 2004 01:03
by force`
Þessi bíll er enn í óskilum,
og þetta er ekki FORCE...... sem betur fer.
En hver veit hvort honum verði stolið næst fyrst
þeir eru þetta djarfir að taka 750 bíl.

Þessi bíll er númerslaus, kolsvartur, rúðulaus og innréttingarlaus,
á 15" felgum, með tan bílstjórasæti í.

Húddið er merkislaust, engin ljós,
engin grill í kringum ljósin,
krómgrillið er enn á sínum stað,

og vil ég vinsamlegast biðja ykkur um að spread the word.
Lögreglan getur lítið gert enda ekki áríðandi mál fyrir þeim,
en ef hann finnst ekki á morgun þá er nánst hægt að bóka það
að hann sé horfinn fyrir fullt og allt.

PostPosted: Sat 11. Sep 2004 10:03
by Djofullinn
Hann hlítur að hafa verið dreginn í burtu!
Hver fer að hafa fyrir því að ræna óökuhæfum bíl :roll:
En ef honum var stolið þá er nú eitthvað mikið að þeim sem tók hann

PostPosted: Sat 11. Sep 2004 15:45
by íbbi_
ég trúi þessu ekki :evil: ég var að fá allt framan á minn af þessum fuc*ing helvíti!

sorry árdís, leiðinlegt :(

PostPosted: Sat 11. Sep 2004 16:14
by force`
Djofullinn wrote:Hann hlítur að hafa verið dreginn í burtu!
Hver fer að hafa fyrir því að ræna óökuhæfum bíl :roll:
En ef honum var stolið þá er nú eitthvað mikið að þeim sem tók hann



mér sýnist nú á öllum förum sem eru þarna í kring að
annaðhvort hafi stýrislásinn verið brotinn, eða einhver hreinlega
haft lykil að honum.
ég vona bara , eins sjaldgæfir bílar og þetta eru , að þeir sitji uppi með
hann og hafi samband við mig bráðlega og skili mér honum,
ég er reiðubúin að fyrirgefa á meðan það er ekki meira skemmt
en stýrislásinn og að allt annað sé í lagi.

Það er samt eitt að þeir ná bílnum aldrei í gang,
það er búið að eyða þvílíkri vinnu í að reyna að koma
honum í gang en það gekk ekki.


Þetta er verulegt tjón fyrir mig á marga vegu.

PostPosted: Sat 11. Sep 2004 17:13
by jens
Ætla ekki að vera með samsæriskenningar en það er 700 bíll á uppboði hjá TM.HF sem vantar afturenda á,
hvernig var afturendinn hjá þér :oops:

http://www.tmhf.is/tjon/utbod/tjonabilar/

PostPosted: Sat 11. Sep 2004 18:13
by force`
bíllinn er alveg stráheill boddylega séð, það vantar
reyndar á hann brettin.

PostPosted: Sun 12. Sep 2004 15:16
by Alpina
eitthvað að frétta af 750

PostPosted: Sun 12. Sep 2004 21:37
by force`
nei ekki orð.........
það er enn verið að leita,
og er búin að vera að reyna að láta sem flestar partasölur vita...
ef þið heyrið eitthvað vonandi hafiði samband við mig.. :(

PostPosted: Mon 13. Sep 2004 22:19
by Tommi Camaro
eitthvað í fréttum??

PostPosted: Tue 14. Sep 2004 00:35
by force`
Nei ekkert,
fékk ábendingu sem ég tékkaði á en það var 735 bíll,
grét mig nærri til bana þegar ég sá að þetta væri ekki minn bíll.

PostPosted: Tue 14. Sep 2004 08:47
by gunnar
Miklar líkur að þessum bíl hafi verið komið fyrir innandyra þar sem ég held að sá sem myndi stela svona bíl viti það að eigandi þessa bíls mun leita hans ansi mikið þar sem iðulega er það ekki eitthverjir bessevissar sem er sama um bílinn sinn sem eiga svona græju...