Page 1 of 1
Verð að fá mér sexu....

Posted:
Tue 04. Feb 2003 16:17
by oskard
Jæja núna er ég orðin algjörlega veikur fyrir
sexum og ég held barasta að ég verði að eignast
svoleiðis græju.
Sá
628 á sölu hérna kannist þið við þennan eða vitið þið um
einhvern sem er til sölu fyrir ekkert voðalega mikið
af peningum ?


Posted:
Tue 04. Feb 2003 16:30
by saemi
Já, þessi bíll er alveg ágætis gripur, að því að mér hefur sýnst. Hann er frekar snyrtilegur, var tekinn í gegn fyrir nokkrum árum. Hann er að vísu gamla gerðin (byggður á E12), en það munar ekki svo í akstri.
Ég myndi veðja á þennan bíl ef þú ætlar að fá bíl undir hálfri milljón.
Ef maður vill eitthvað meira, flytja inn eða soleiz þá verður maður að punga út svona 500.000.- og uppúr. Og maður fær ekki góðan bíl nema fyrir lágmark 1.000.000.- hingað kominn.
Sæmi

Posted:
Tue 04. Feb 2003 16:36
by Djofullinn
En hvernig er það Sæmi, er þessi gamla gerð eitthvað öðruvísi útlitslega séð?

Posted:
Tue 04. Feb 2003 16:36
by oskard
Hann þarf ekkert að vera góður, bara ekki grindarskakkur og boddyið
má ekki vera riðgað til andsk* þá er ég sáttur (gangfær er gott).
Ættla mér að sprauta, setja nýja vél, nýjan kassa osfv


Posted:
Tue 04. Feb 2003 16:41
by Djofullinn
Það er til einhver brúnn 628 sjúskaður, veit einhver um þann bíl??

Posted:
Tue 04. Feb 2003 16:45
by saemi
Munurinn er svo til enginn. Afturstuðarinn er öðruvísi.
Annars eru það bara framsvunturnar sem eru öðruvísi. Að innan er líka nýrri innrétting eftir 82.
Held ég sé ekki að gleyma neinu!

Posted:
Tue 04. Feb 2003 16:46
by Djofullinn
Þá skiptir það nú litlu... en veist þú ekkert um þennan brúna Sæmi?
Er það kannski bíllinn sem var auglýstur á 100 þús í DV fyrir nokkrum mánuðum?

Posted:
Tue 04. Feb 2003 16:47
by saemi
Brúni bíllin er í uppgerð. Ég sá hann í vetur nýsprautaðan (í sama kúkabrúna litnum) upp á stórhöfða. Hann er orðinn vel ryðbættur !

Posted:
Tue 04. Feb 2003 17:01
by Djofullinn
Það er nú gott, fyrir bílinn sko

Posted:
Tue 04. Feb 2003 17:10
by saemi
.. en ef þú ætlar að fara að sprauta, setja nýja vél í og kassa osfrvs.. passaðu þig þá !
Það væri ódýrara að koma bíl hingað inn undir milljón, nema þú ætlir að fá ánægjuna út úr þessu.
Athugaðu það, að ef þú þarft að kaupa ný frambretti, þá er stykkið á hátt í 100.000.- kall !
Svo nema þú sprautir sjálfur, þá er góð sprautun allavega 300.000.-
Þetta er svo bara einstaka tölur, ... fullt fullt fullt af dóti í viðbót.
en það er alltaf gaman að föndra !
Sæmi

Posted:
Tue 04. Feb 2003 17:40
by oskard
Þetta verður föndur bíll og ég geri allt sjálfur þannig að sprautun
og svoleiðis dót er alls ekki svo dýrt.
Og þetta verður alls ekki stock bíll undir húddinu ættla að setja
einhvað monster þangað.
Þetta er semsagt annaðhvort að fá sér sexu eða e30 og setja
e36 m3 vél + supercharger.
Væri skemtilegra að eiga sexuna held ég


Posted:
Mon 10. Feb 2003 11:43
by Stefan325i
eg held að eg viti um einn bláan 628i hér á reykjanesinu, ég skal athuga með hann hvort hann sé enn til.4
Re: Verð að fá mér sexu....

Posted:
Mon 10. Feb 2003 15:35
by Raggi M5
oskard wrote:Jæja núna er ég orðin algjörlega veikur fyrir
sexum og ég held barasta að ég verði að eignast
svoleiðis græju.
Sá
628 á sölu hérna kannist þið við þennan eða vitið þið um
einhvern sem er til sölu fyrir ekkert voðalega mikið
af peningum ?

'eg held að þetta sé bíllinn sem er í keflavík núna, það er allavega ein hvít sexa hérna í kef, mjög snyrtileg.