bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Djöfulli dýrt að láta smyrja https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=714 |
Page 1 of 2 |
Author: | Propane [ Mon 03. Feb 2003 19:48 ] |
Post subject: | Djöfulli dýrt að láta smyrja |
Fór í Oil Service í TB í dag. Það kostar hvorki meira né minna en 28þ krónur. Enginn BMW-Kraftur afsláttur þar. Get alveg eins farið í B&L næst eða gert þetta sjálfur. ![]() |
Author: | iar [ Mon 03. Feb 2003 19:57 ] |
Post subject: | |
Ég fór líka með þristinn minn um daginn í oil service hjá TB og það kostaði tæpar 25þús. Fannst það ekki mjög mikið miðað við hversu lítið (ekkert) viðhald er búinn að vera á honum hingað til. Eflaust gæti maður sparað sér einhvern aur ef maður hefði góða aðstöðu, tæki og kunnáttu. ![]() |
Author: | Propane [ Mon 03. Feb 2003 20:02 ] |
Post subject: | |
Jamm, ég hef bara ekki efni á að eyða neinu í bílinn. Mér finnst nóg að borga 20þ á mánuði í bensín. ég átti von á ca 15-20þ fyrir smurningu. En svona er þetta bara: Maður þarf að borga fyrir merkið og gæðin. |
Author: | Svezel [ Mon 03. Feb 2003 20:24 ] |
Post subject: | |
28þús...var eitthvað bilað eða hvað? Ég lét smyrja hjá mér 1.mars í fyrra og þá kostaði það 21.163kr og fannst mér nóg um. Þetta var óvanalega dýrt því þeir skiptu um filteranna í loftkælingunni og kostaði það 10þús kall. Síðan var inspection II hjá mér í nóvember en þá var gert svo mikið að ég sé ekki hvað smurningin kostaði. |
Author: | Bjarki [ Mon 03. Feb 2003 20:44 ] |
Post subject: | |
Þegar þú talar um filterana í loftkælingunni ertu þá ekki bara að tala um þessar tvær síur sem eru þarna hægri og vinstra megin, mjög líkar loftsíunni fyrir vélina? Ef það eru þær þá er þetta frekar dýrt!! |
Author: | Svezel [ Mon 03. Feb 2003 20:51 ] |
Post subject: | |
Jú þetta voru microfilterarnir sem eru í boxunum sitthvoru megin við vélina, alveg upp við rúðuþurrkurnar...eða það held ég. Nema þeir hafi verið að svindla á mér ![]() |
Author: | Propane [ Mon 03. Feb 2003 20:59 ] |
Post subject: | |
Þessar tvær síur eru frjókornasíur. Það var skipt um loftsíu hjá mér, settur á hann frostlögur, rúðuvökvi og olía og 3 ljósaperur. |
Author: | hlynurst [ Mon 03. Feb 2003 21:27 ] |
Post subject: | |
Ætli það hafi ekki bara verið ljósaperurnar sem bústuðu upp verðinu. ![]() |
Author: | Halli [ Mon 03. Feb 2003 21:32 ] |
Post subject: | |
Mér þætti gaman að sjá hvað er inní þessu verði sundurliðað ![]() |
Author: | Gunni [ Mon 03. Feb 2003 22:20 ] |
Post subject: | |
af hverju í ósköpunum fariði ekki bara á venjulega smurstöð til að láta smyrja ?? ég fór bara á esso og lét smyrja með mobil 1, það var skipt um olíusíu einnig. þetta kostaði mig 10 þúsund krónur. betra en 28 þúsund !! |
Author: | flamatron [ Mon 03. Feb 2003 22:32 ] |
Post subject: | |
Ég smyr alltaf sjálfur, 1000 kall sían,+ 4-5 þúsund olían. |
Author: | Bjarki [ Mon 03. Feb 2003 22:43 ] |
Post subject: | |
Ég smyr líka alltaf sjálfur prenta bara út eyðublöðin sem frá Bentley og geri allt sem á þeim stendur. Oil service, Insp. I eða Insp II. Ég hef ekki fjárhagslega burði til að vera með 13 ára bíl í þjónustuskoðunum og olíuskiptum hjá umboði eða smurstöðvum. |
Author: | Raggi M5 [ Mon 03. Feb 2003 23:02 ] |
Post subject: | |
Þvílíkt og annað eins verð mar!!! Það kostar 8 þúsund hjá mér með nýrri loftsíu ![]() |
Author: | Kull [ Mon 03. Feb 2003 23:40 ] |
Post subject: | |
Hvernig olíu notaru Raggi? |
Author: | GHR [ Tue 04. Feb 2003 00:11 ] |
Post subject: | |
Vááá, djöfull er þetta dýrt!!!!!!! Þið eigið bara að gera þetta sjálfir - þetta er ekkert mál og ef þið hafið ekki skúr er enginn vandi að gera þetta úti - 30 mín verk+ Annars geri ég þetta alltaf sjálfur, er tiltölulega nýbúinn að smyrja minn, setti 7.5 lítra af Havoline Ultra og olíusíu (1600 kr.) = 6000 kr. total Síðan núna þarf maður ekki alltaf að kaupa nýjar loftsíur, bara þvær manns gömlu (fljót að telja upp peningana) * Á eitthver hérna listann yfir það hvað er gert í inspection 1-2 fyrir sjöu og vill pósta honum hérna eða senda mér |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |