bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Thu 28. Mar 2024 08:41

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 1 post ] 
Author Message
 Post subject: Hr. X - 2023
PostPosted: Sat 06. May 2023 12:01 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15938
Location: Reykjavík
Sumar í lofti og þá er komið að þessu semi árlega. Ef það er nægur áhugi þá er planið
að Hr. X komi fljótlega - innan 1-2 mánaða.

Hann semsagt mætir til að mappa, delimita og hvaðeina sem menn vilja
láta krukka í mótortölvunni. Gríðarlega vinsælt að láta kreista meira
úr dísilbílum :wink:

Einnig hafa hybrid bílar verið teknir í gegn með góðum árangri.

Dæmi:

- eldsneytis og kveikjumöppun eftir breytingar
- eldsneytis og kveikjumöppun á stock bíl til að auka afl
- hraðatakmarkari fjarlægður
- rev limit hækkað
- launch control (E39 M5)
- full throttle shifting (E39 M5)
- "sport" stilling helst inni þótt drepið sé á bílnum (E39 M5)

Verðið er 600 evrur (*) ef vinnan er undir 4 tímum en ef svo ólíklega vill
til að þetta taki meira þá er hver auka klukkutími á 100 evrur. Það
má geta þess að það er í algjörum undantekningartilfellum sem vinnan
fer yfir 4 tíma og ef það gerist er það venjulega út af því að einhver
bilun er fyrir í bílnum.

Hvernig gengur þetta fyrir sig?

1. Senda póst á rngtoy@rngtoy.com

2. Pósturinn þarf að innihalda nafn og símanúmer eiganda, upplýsingar um
bílinn (tegund, árgerð, vél, breytingar ef einhverjar eru).


3. Ég safna saman lista og sendi á kallinn og hann segir til um hvað er hægt að gera.

Þegar þetta er komið á hreint borga menn staðfestingargjald sem
er 100 evrur og fæst ekki endurgreitt nema að Hr. X mæti ekki.

Þegar menn eru búnir að borga staðfestingargjaldið er hægt að
fara að bóka flug og negla dagsetningar endanlega.

Þannig að ef menn hafa áhuga - sendið póst á rngtoy@rngtoy.com - EKKI EP.

Það hefur verið mikil ánægja með vinnuna hjá karlinum hingað til, hann er búinn að koma næstum árlega frá 2007 :wink:
Hann er gríðarlega fróður og hefur gefið mönnum góð ráð varðandi breytingar og jafnvel hjálpað að finna útúr bilunum sem aðrir hér heima hafa ekki getað fundið útúr.

Hér eru nokkrar myndir frá í fyrra:

Image

Image

Europameister orðinn hrikalega flottur, verið að finna útúr rafmagnsmálum og mappi:
Image

Image

Image

Image

Image

Ekki bara 5 háskólagráður heldur er þetta fimmti bíllinn sem hann kemur með bíl í möppun til Hr. X :)
Image

Image

Image

Image

Image


(*) Ath geta verið undantekningar með mjög nýlega & advanced bíla.

Ath. Öll viðskipti eru beint við Hr. X - ég er aðeins að auglýsa þetta fyrir hann og hvorki veiti þjónustuna né fæ greitt fyrir hana.

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 1 post ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 19 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group