Hef oft látið mig dreyma um að kaupa E36 cabrio (svona fyrst maður býr erlendis). En rosalega eru þeir dýrir. Alveg 30-50% (reyndar alveg upp í 100%) dýrari en sambærilegir non-cabrio bílar. Fannst þetta svo mikið að ég athugaði hver er munurinn á nýjum bílum og viti menn.
318i 3.140.000
318ic 3.430.000
318i cabrio 4.130.000
--> 30% munur á saloon og cabrio!
Svo er meiri en 30% munur á eldri bílunum vegna þess að cabrio bílarnir eru sjaldgæfir og vinsælir. Magnað! Svosem bara eðlilegt, markaðurinn ræður jú verðinu! Gott dæmi um hvað það segir lítið að líta alltaf á viðmiðunarverð!


