Page 1 of 1

Hr. X - 2015 - FARINN

PostPosted: Wed 10. Jun 2015 16:52
by bimmer
Jæja þá er komið að þessu árlega. Ef það er nægur áhugi þá er planið
að Hr. X komi fljótlega - innan 1-2 mánaða.

Hann semsagt mætir til að mappa, delimita og hvaðeina sem menn vilja
láta krukka í mótortölvunni. Gríðarlega vinsælt að láta kreista meira
úr dísilbílum :wink:

Dæmi:

- eldsneytis og kveikjumöppun eftir breytingar
- eldsneytis og kveikjumöppun á stock bíl til að auka afl
- hraðatakmarkari fjarlægður
- rev limit hækkað
- launch control (E39 M5)
- full throttle shifting (E39 M5)
- "sport" stilling helst inni þótt drepið sé á bílnum (E39 M5)

Verðið er 500 evrur (*) ef vinnan er undir 4 tímum en ef svo ólíklega vill
til að þetta taki meira þá er hver auka klukkutími á 100 evrur. Það
má geta þess að það er í algjörum undantekningartilfellum sem vinnan
fer yfir 4 tíma og ef það gerist er það venjulega út af því að einhver
bilun er fyrir í bílnum.

Hvernig gengur þetta fyrir sig?

1. Senda póst á rngtoy@rngtoy.com

2. Pósturinn þarf að innihalda nafn og símanúmer eiganda, upplýsingar um
bílinn (tegund, árgerð, vél, breytingar ef einhverjar eru).


3. Ég safna saman lista og sendi á kallinn og hann segir til um hvað er hægt að gera.

Þegar þetta er komið á hreint borga menn staðfestingargjald sem
er 100 evrur og fæst ekki endurgreitt nema að Hr. X mæti ekki.

Þegar menn eru búnir að borga staðfestingargjaldið er hægt að
fara að bóka flug og negla dagsetningar endanlega.

Þannig að ef menn hafa áhuga - sendið póst á rngtoy@rngtoy.com - EKKI EP.

Það hefur verið mikil ánægja með vinnuna hjá karlinum hingað til :wink:

Hér eru nokkrar myndir frá fyrri heimsóknum:

Image

Image

Image

Image

Image

(*) Ath geta verið undantekningar með mjög nýlega & advanced bíla.

Ath. Öll viðskipti eru beint við Hr. X - ég er aðeins að auglýsa þetta fyrir hann og hvorki veiti þjónustuna né fæ greitt fyrir hana.

Re: Hr. X - 2015

PostPosted: Thu 25. Jun 2015 23:17
by bimmer
Er búinn að senda lista á kallinn með öllum fyrirspurnum sem hafa borist, sendi svör um leið og ég fæ þau.

Stefnir í að hann komi seinnipart júlí.

Re: Hr. X - 2015

PostPosted: Thu 16. Jul 2015 23:07
by bimmer
Minni á þetta - kallinn kemur í byrjun næstu viku.

Re: Hr. X - 2015

PostPosted: Wed 22. Jul 2015 06:16
by Angelic0-
Er hægt að koma mönnum að...

Re: Hr. X - 2015

PostPosted: Wed 22. Jul 2015 14:54
by bimmer
Angelic0- wrote:Er hægt að koma mönnum að...


Jebb.

Re: Hr. X - 2015

PostPosted: Fri 24. Jul 2015 18:27
by bimmer
Kallinn fór í dag - heimsóknin gekk vel.

Búið að gjörbreyta bílum - bæði með mappi og svo með því að laga þá.

Hellingur af nýjum hrossum á götunum núna og glaðir eigendur :wink:

Re: Hr. X - 2015 - FARINN

PostPosted: Fri 24. Jul 2015 18:37
by Alpina

Re: Hr. X - 2015 - FARINN

PostPosted: Sat 25. Jul 2015 05:00
by Angelic0-
andskotinn hafi það...

Re: Hr. X - 2015 - FARINN

PostPosted: Tue 28. Jul 2015 09:40
by tinni77
Alpina wrote:https://www.youtube.com/watch?v=31FYzT5dMxg


Haha steik