Page 1 of 1
Verðmat BMW 523

Posted:
Tue 20. Jul 2004 21:12
by Birkir Örn
Ég var að velta því fyrir mér hvort þið gætuð hjálpað mér að meta bíl.
Hvað mynduð þið borga fyrir:
BMW 523
1996
Ekinn 53.000
Sjálfskiptur
Tjónlaus og nær engar lakkskemmdir
16" felgur
Svartur
Leður, Loftkæling og Topplúga.
Einhverjir aðrir smotterís aukahlutir frá framleiðenda.
Vel með farinn bíll í alla staði.
Hvað væri sanngjarnt að borga fyrir svona tæki?
Kv. Birkir

Posted:
Tue 20. Jul 2004 21:21
by Kristjan
Viðmiðunarverðið er eitthvað í kringum 1.2 milljónir.. ætli það sé ekki sniðugt að bæta nokkrum hundraðköllum ofaná það..

Posted:
Tue 20. Jul 2004 23:22
by íbbi_
hmm ekkert ekin náttla, ætli 1300-1400 væri ekki eitthvað nærri lagi

Posted:
Wed 21. Jul 2004 06:55
by fart
Ég hef nokkra reynslu í þessu.
Minn 96 523i fór á 1300kall stgr. Hann var keyrður 140þús, með 16" álfelgum, beinskiptur.
Þessi bíll ætti alveg að ná slatta hærra verði þar sem hann er með leðri, lúgu og það hefur gleymst að keyra hann.
Ég myndi skjóta á svona 1450-1500 kall lágmark. Þetta hljómar eins og algjör MOLI.

Posted:
Wed 21. Jul 2004 07:52
by jonthor
Sammála, 1500k staðgreitt er örugglega nærri lagi fyrir svona bíl. Finnst reyndar ekkert ólíklegt að eigandinn geti jafnvel fengið enn hærra fyrir hann.

Posted:
Wed 21. Jul 2004 17:03
by íbbi_
hmm, já það er að sjálfsögðu hægt að setja meira á hann, ég persónulega myndi skjóta á að hann færi á sona 150k meira en sambærilegur bíll ekin 100þús meira, 1500 væri eflaust alveg sjarngjarnt, er þetta bíll til sem þú ert að spðá í að losa þig við eða kaupa?

Posted:
Thu 22. Jul 2004 16:09
by Birkir Örn
íbbi_ wrote:er þetta bíll til sem þú ert að spðá í að losa þig við eða kaupa?
Kannski bæði!
Annars takk fyrir verðráðleggingarnar, mikil hjálp í þeim.

Posted:
Thu 22. Jul 2004 18:26
by íbbi_
úú keep me posted