bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

BSK vs SSK
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=68188
Page 1 of 1

Author:  antonornpals [ Thu 05. Feb 2015 21:08 ]
Post subject:  BSK vs SSK

Sælir hvort mynduð þið velja BSK eða SSK bmw 3 e90 320i ?? og helst rökstyðja svarið hehe

Author:  Kristjan [ Thu 05. Feb 2015 22:46 ]
Post subject:  Re: BSK vs SSK

SSK af því að ég er latur gamall durgur og vil geta drukkið kaffið mitt á leiðinni í vinnunni án þess að leggja það frá mér.

Author:  BjarkiHS [ Thu 05. Feb 2015 23:57 ]
Post subject:  Re: BSK vs SSK

SSK vegna þess að 320i er ekki nógu öflugur til að leika sér eitthvað af viti.

Author:  D.Árna [ Sat 07. Feb 2015 14:47 ]
Post subject:  Re: BSK vs SSK

Svarið við þessari spurningu felst meira í því hvernig týpa þú ert,

Sumir nenna einfaldlega ekki bsk að þurfa vera skipta um gíra endalaust þá sérstaklega innanbæjar í rvk.

E90 320i er engin spyrnugræja neitt, hefur flott útlit og allt það en ef þú ert að hugsa um bíl til að leika þér á er þetta klárlega ekki rétti bíllinn í það, en ef þú varst ekkert að spá í því að þá eru þetta ágætis bílar, skiptir eiginlega ekki máli hvort hann sé ssk eða bsk fer bara eftir því hvað heillar þig meira.

Author:  IvanAnders [ Sat 07. Feb 2015 14:58 ]
Post subject:  Re: BSK vs SSK

Prófaðu bara bæði. Og ef annað er ekki að gera mikið meira fyrir þig en hitt eftir það, láttu þá bara eintakið ráða!

Author:  Hjalti123 [ Sun 08. Feb 2015 12:55 ]
Post subject:  Re: BSK vs SSK

BjarkiHS wrote:
SSK vegna þess að 320i er ekki nógu öflugur til að leika sér eitthvað af viti.

Eru bsk bílar semsagt bara til svo að maður geti "leikið" sér?

Myndi klárlega fá mér bsk, mikið sprækari og skemmtilegri þannig.

Author:  Angelic0- [ Tue 10. Feb 2015 16:09 ]
Post subject:  Re: BSK vs SSK

er ekki 6gíra ZF skipting í sjálfskiptu bílunum...

Sé ekki fyrir mér að þú finnir mikinn mun, og þessi mýta um að sjálfskiptingar steli hestöflum er bara steypa...

It's your preference, ég segi ekki að 545i megi ekki vera beinskiptur, en ég efast um að ég myndi tíma að fórna þessum lúxus fyrir beinskiptan, þarf bara að fitta M5 drif og vona að þetta fari ekki að nöldra með e'h villur á skiptinguna :) hehehe

Author:  Andri sti [ Tue 10. Feb 2015 19:38 ]
Post subject:  Re: BSK vs SSK

það er fín ssk í e90 6 þrepa . með steptronic og sport mode,

myndi allan daginn taka ssk . líka uppá endursölu seinna meir.

Author:  eythoringi [ Wed 11. Feb 2015 00:32 ]
Post subject:  Re: BSK vs SSK

Ég myndi taka bsk. Bara útaf mér finnst mikið leiðinlegra að keyra ssk, hvort sem ég er að krúsa eða leika mér.

Author:  D.Árna [ Wed 11. Feb 2015 00:44 ]
Post subject:  Re: BSK vs SSK

eythoringi wrote:
Ég myndi taka bsk. Bara útaf mér finnst mikið leiðinlegra að keyra ssk, hvort sem ég er að krúsa eða leika mér.

x2

Author:  íbbi_ [ Thu 12. Feb 2015 22:13 ]
Post subject:  Re: BSK vs SSK

ef þú getur ekki ákveðið þig, þá geturu verslað sjálfskiptan bíl og settu súpuskál á milli sætana og hrærðu í henni meðan þú keyrir um. það er svipuð upplifun

Author:  -Hjalti- [ Fri 13. Feb 2015 03:53 ]
Post subject:  Re: BSK vs SSK

besta lýsing ever

Author:  Danni [ Sun 15. Feb 2015 18:51 ]
Post subject:  Re: BSK vs SSK

Allir þristar eiga að vera BSK IMO.

Author:  Alpina [ Sun 15. Feb 2015 20:21 ]
Post subject:  Re: BSK vs SSK

Danni wrote:
Allir þristar eiga að vera BSK IMO.

:wink:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/