bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
520IA https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=680 |
Page 1 of 1 |
Author: | siggiii [ Thu 30. Jan 2003 14:27 ] |
Post subject: | 520IA |
Getur einhver sagt mér hvort borgi sig fyrir mig að keyra í SPORT eða ECONOMY innanbæjar eiðslulega séð ![]() |
Author: | GHR [ Thu 30. Jan 2003 14:35 ] |
Post subject: | |
Þegar ég átti bílinn þinn ![]() Hann var reyndar að eyða alveg skuggalegu litlu hjá mér, kannski 11-12 lítra (og ekki í neinum afaakstri) - síðan jókst eyðslan aðeins hjá Daníeli að hans sögn (kannski pústið eða ,,loftsían'') ps. Vona að þú sért búinn að taka ,,loftsíuna'' úr bílnum. Þegar ég ætlaði að kaupa loftsíu þá var hún ekki til og ég setti bara svona síu eins og þeir nota í torfærunni til að hindra vatn ![]() |
Author: | Djofullinn [ Thu 30. Jan 2003 14:43 ] |
Post subject: | |
Fyrst þegar ég fékk hann var hann líka bara að eyða 11-12 lítrum, var alltaf með stillt á Eco, síðan eftir að pústið fór að vera með læti þá byrjaði hann að eyða meiru. Ég hafði hann samt í Sport þegar ég keyrði útá landi, það var miklu betra fannst mér. |
Author: | siggiii [ Thu 30. Jan 2003 14:45 ] |
Post subject: | |
Jú jú þegar ég lét vélar stilla bílinn þá var skipt um síu ofl . |
Author: | GHR [ Thu 30. Jan 2003 14:53 ] |
Post subject: | |
Ég vona bara líka að nýji minn eyði jafn litlu bensíni. Maður má nú alltaf láta sig dreyma ![]() Babecar og Raggi M5 = Hvað eru ykkar bílar að eyða??? |
Author: | Djofullinn [ Thu 30. Jan 2003 16:20 ] |
Post subject: | |
Hehehe bjartur gummi ![]() |
Author: | Bjarki [ Thu 30. Jan 2003 16:46 ] |
Post subject: | |
Hvernig fer vélarstilling fram á bíl með beinni innspýtingu og Motronic ![]() Er ekki bara málið að skipta reglulega um síur og vökva og athuga hvað er að ef motronic ljósið byrjar að loga. |
Author: | Alpina [ Thu 30. Jan 2003 18:24 ] |
Post subject: | |
Ég hélt að ég sjálfur vissi hitt og þetta en,, þarna er ég mátaður út í horn,, ´MOTRONIC-ljós?????????? Segðu mér??? Sv.H |
Author: | Bjarki [ Thu 30. Jan 2003 19:58 ] |
Post subject: | |
Kannski aldrei kallað motronic-ljós frekar Check Engine Light. Kemur ef það koma villuboð frá DME (Digital Motor Electronics) kerfinu. Þá getur maður ýtt á bensíngjöfina og séð villkóðan út frá ljósinu sem blikkar á sérstakan máta fyrir hverja villu eða tengt bílinn í tölvu og lesið úr því hvað er í gangi. Ég hef reyndar aldrei lent í þessu en eru það þá ekki oftast bara einhverjir skynjarar sem eru farnir súrefnis, loftflæðis, hita o.s.frv. En það sem á átti við maður fer ekki með svona bíl á stilliverkstæði sem færir einhverjar nokkrar skrúfur í blöndungnum og stillir bílinn og hann gengur miklu betur á eftir ![]() |
Author: | GHR [ Thu 30. Jan 2003 22:20 ] |
Post subject: | |
Ætli þeir skipta ekki bara um kerti, kveikjulok, kveikjuhamar, olíu, loftsíu og annað sem er orðið lélegt s.s háspennukefli. Jafnvel hreinsa eldsneytiskerfið og loftgöngin með carb. cleaner os.frv |
Author: | bjahja [ Fri 31. Jan 2003 01:04 ] |
Post subject: | |
BMW 750IA wrote: Ætli þeir skipta ekki bara um kerti, kveikjulok, kveikjuhamar, olíu, loftsíu og annað sem er orðið lélegt s.s háspennukefli. Jafnvel hreinsa eldsneytiskerfið og loftgöngin með carb. cleaner os.frv
"Bara" ![]() |
Author: | bebecar [ Fri 31. Jan 2003 08:47 ] |
Post subject: | |
Minn er yfirleitt með 17.5 en ef það er mikið af rauðum ljósum á tanknum þá getur hann skriðið uppí 18.5 með slæmri færð. ÉG hef ekki fengið hann yfir það. Hann fer svo alveg niður í tæpa 16 innanbæjar ef það er lítil umferð og góð færð. Þetta er allt með sama akstrinum. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |