bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Þrír töffara stöðvaðir í Keflavík! https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=679 |
Page 1 of 2 |
Author: | bebecar [ Thu 30. Jan 2003 09:05 ] |
Post subject: | Þrír töffara stöðvaðir í Keflavík! |
Þvílíkt fréttamat hjá Bylgjunni. Lögreglan stöðvaði þrjá TÖFFARA á rúntinum með kveikt á aukaljósum (þokuljósum) sem ekki má nota nema í slæmu skyggni.... Sektin er 5000 krónur. Jæja... voru þetta nokkuð bimmar? |
Author: | Svezel [ Thu 30. Jan 2003 09:07 ] |
Post subject: | |
Must be a slow news day... |
Author: | Djofullinn [ Thu 30. Jan 2003 09:11 ] |
Post subject: | |
Hafa þeir virkilega ekkert betra að gera þessar löggur.... |
Author: | saevar [ Thu 30. Jan 2003 09:59 ] |
Post subject: | |
hmm... Maður hættir þá kanski að nota þokuljósin á rúntinum í KEF. En þetta er nú samt svoldið fyndið af því að ég hef oft séð lögguna með þokuljósin sjálf, sérstaklega á nýja Vollanum. |
Author: | Bjarki [ Thu 30. Jan 2003 12:32 ] |
Post subject: | |
Ég hef séð löggur með þokuljós. Það eru einnig mjög margir sem eru alltaf með þessi ljós hérna í Reykjavík m.a. leigubílstjórar og miðaldra menn ekki bara "töffarar". Ég var einu sinni í "töffaraleik" í Kópavogi og var rukkaður um 5þ af löggunni þar fyrir að vera með kveikt á þokuljósum um leið og þeir tóku mig fyrir of hraðan akstur á Smiðjuvegi. Alltaf frekar skítt að sjá hversu margir nota þessi ljós án þess að vera stopaðir af löggunni. Þokuljós í svuntunni á fólksbílum trufla mig ekki en það er mjög pirrandi þegar jeppakallar hafa kveikt á þokuljósum sem eru í sömu hæð og aðalljós t.d. terrano II. |
Author: | saemi [ Thu 30. Jan 2003 15:11 ] |
Post subject: | |
Hmmmm. .. hvað er þetta með að hafa kveikt á þokuljósunum ![]() Mér finnst að þokuljós eigi að vera kveikt ... í ÞOKU ![]() Ég er ekki alveg að skilja töffið í hinu ![]() Sæmi |
Author: | bjahja [ Thu 30. Jan 2003 15:12 ] |
Post subject: | |
Ég er altaf með kveikt á kösturunum, en ég heyrði þetta í morgun. Kannski ætti maður að hætta að vera svona töffari og slökkva á þessu. En ég skil ekki þessa stæla að vera að sekta mann fyrir svona smámuni. |
Author: | bebecar [ Thu 30. Jan 2003 15:14 ] |
Post subject: | |
Sumum finnst flóðlýsingin af þessu töff, ég get sosem skilið það. En ég nota þokuljós ekki nema í slæmu skyggni sjálfur... mér finnst þetta smá hégómi nefnilega og þar sem ég er nú að berjast við að vera ekki hégómafullur þá hef ég slökkt! En annars var nú búið að ræða það hérna og annarsstaðar að í dagsbirtu má hafa kveikt á þokuljósum ef það er slökkt á aðalljósum. Það má hinsvegar ekki eftir að skyggja tekur því þá á að vera kveikt á aðalljósum og ekki má hafa kveikt á hvorutveggja í einu nema úti sé slæmt skyggni. |
Author: | GHR [ Thu 30. Jan 2003 15:14 ] |
Post subject: | |
Mér persónulega finnst virkilega flott að hafa þokuljósin og bara park ljósin uppi. Allavega keyri ég alltaf með þannig - ef ég nenni nú yfir höfuð að kveikja ljósin á daginn - algjör óþarfi - bara óþarfa slit á alternatornum |
Author: | Djofullinn [ Thu 30. Jan 2003 18:36 ] |
Post subject: | |
Ég held að þetta hafi nú ekkert með töffaraskap að gera... Sumir fá sér spoiler, sumir fá sér álfelgur aðrir kveikja bara á þokuljósunum ![]() Mér finnst það persónulega mjög flott, sérstaklega á BMW. |
Author: | Halli [ Thu 30. Jan 2003 18:44 ] |
Post subject: | |
Ég er sammála síðasta ræðumanni |
Author: | Bjarki [ Thu 30. Jan 2003 20:11 ] |
Post subject: | |
Já ég er sammála þetta eru bara mínar augabrúnir og mitt spoilera-kitt!! |
Author: | saemi [ Thu 30. Jan 2003 21:55 ] |
Post subject: | |
Hehe, já ég er bara orðinn gamall sennilega ![]() Mér finnst bara það að nota þokuljósin að framan þegar það er ekki þoka, svona næsti bær við fólkið sem setur þokuljósin á að aftan og heldur að það sé með kveikt á afturrúðu hitaranum ![]() Bara af því að táknin eru svipuð og það er ekki alveg klárt á hvað allir takkarnir þarna í mælaborðinu gera ... En jújú, ég skil svosem að öðrum geti fundist þetta töff. Ég er bara svo hreinn og beinn að ég get ómögulega gert eitthvað sem hefur engan tilgang, eitthvað sem var alls ekki hannað með þetta í huga. Svo getur þetta líka verið óþægilegt fyrir aðra, sem er jú ástæðan fyrir að löggan er að stoppa menn sem eru með þetta kveikt ... ![]() Sæmi stífi... eehhh já eða... |
Author: | iar [ Thu 30. Jan 2003 22:59 ] |
Post subject: | |
Þokuljósin að framan komu sér vel síðasta sumar þegar pera fór öðru megin að framan. Þá gat maður keyrt um löglegur með slökkt aðalljós og kveikt þokuljós þar til maður drattaðist að kaupa sér peru. ![]() Annars nota ég þau aldrei, þetta eru jú þokuljós ![]() |
Author: | Þórður Helgason [ Thu 30. Jan 2003 23:09 ] |
Post subject: | Ljós, til hvers í ósköpunum?? |
Góð þokuljós erum ómetanleg við réttar aðstæður. En þessi svuntuljós, af hverju að kalla þau þokuljós, heilt yfir? Sum eru þokuljós, önnur kastarar eða þaðan af vitlausari ljós, að ekki sé minnst á vanstillinguna, og í mörgum tilfellum er enginn styrkur í svuntunni og þau sveiflast upp og niður. Í a.m.k. annað hvert skipti sem maður mætir bíl með þessi ljós kveikt, þá fýkur í mann, vegna þess að þau hálf blinda mann. Sjálfur ek ég ég á Starex með svona ljósum (original) og þau eru (lýsa)mjög neðarlega og frábærlega skorin í efri kant, þannig að ég nota þau hiklaust í slæmu skyggni og þaðan af verri aðstæðum. Svo eru það afturljósin, Þau eru hálfu verri. Maður hefur lent í því að þora ekki að fara fram úr bíl með þau vegna þess að maður sá ekki baun, og með fjögur lítil börn reynir maður að keyra ekki eins og asni. Er einhver sammála?? |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |