Okkur vantar myndir!Undanfarin ár hafa meðlimaskírteini BMW Krafts prýtt mynd af Bíl Ársins á undan sem kosin var af meðlimum og tilkynntur á árshátíð.
Seinustu tvö ár hefur þetta skipulag klikkað en úr því stendur að bæta á næsta ári. Þetta árið er orðið of seint að skipuleggja árshátíð en okkur langar samt til þess að hafa einhvern íslenskan bíl á næsta meðlimaskírteini.
Við biðjum ykkur um að senda okkur mynd sem þið teljið vera efni í meðlimaskírteini ársins 2015.
Þegar innsendingarfresti líkur þá mun ég útbúa prufu af öllum myndunum eins og þær myndu líta út á meðlimaskírteini og sett inn kosningu þar sem þið veljið síðan myndina sem fer á teinið.
Innsendandi þarf að eiga réttinn á myndinni sjálfur og vera tilbúinn að gefa BMW Krafti eignarrétt af myndinni líka. Með því að senda inn mynd er það talið sem samþykki.
Þið getið sent mér myndirnar í PM eða klikkað
hér til að senda e-mail, en látið þá notendanafn fylgja með svo ég viti hver er að senda.
Innsendingarfrestur er til 12. des næstkomandi.
Hér eru síðustu 9 meðlimaskírteini.