Page 1 of 4

Hvað eruð þið gamlir og hvernig bíl eigið þið ?

PostPosted: Wed 29. Jan 2003 12:45
by Stefan325i
Ég er 23 ára rafvirki á heima í keflavík, er annar eigandin á Gstuning
og á 325i 1986 4dyra.


Image

PostPosted: Wed 29. Jan 2003 13:25
by Gunni
Ég er 20 ára grænmetisstarfsmaður, en er á leið í háskóla í haust. Ég á 325i Lorenz árg 1992 bsk 2ja dyra, með leðri og lúgu.
Image

PostPosted: Wed 29. Jan 2003 13:27
by Djofullinn
Ég er 23 ára tölvuviðgerðarmaður hjá ATV og bý í Reykjavík. Ég á BMW 525i E34 M50 nýorðinn beinskiptur og bráðum með læst drif.... hann er svartur.

PostPosted: Wed 29. Jan 2003 13:29
by saemi
Ég vísa í neðangreinda umræðu um sama efni:

http://www.bmwkraftur.com/spjall/viewtopic.php?t=14

En svona þess utan:

Sæmundur Stefánsson
29 ára, Flugmaður


Image
E-24 635csi



Image
E-28 M5




Image
E-23 745i

Og fleira og fleira .... www.islandia.is/smu fyrir heimasíðuna mína

PostPosted: Wed 29. Jan 2003 13:36
by bebecar
SÆMI RÚLAR!

Hann er allavega með stærsta flotann og merkustu bílana!

Ég sé um birgðaeftirlit og birgðakerfi hjá stóru fyrirtæki. :wink:

Og er að verða 31 árs og á ennþá BMW M5 1990 módel.
Ingvar

PostPosted: Wed 29. Jan 2003 13:47
by saemi
Ehehehe, takk Ingvar.. það eru svona komment sem fá mann til að brosa aftur, eftir grátur og gnístan tanna við bilanaleit !

Þá hættir maður við að selja allt draslið og kaupa sér einn nýjan 540i :lol:

Já.. þegar ég leit nú á þetta áðan, þá varð mér nú hugsað til þess að þetta er ágætis samsetning ... 745i, 635csi, M5 !

Það verður samt flottara þegar þetta verður orðið 745i, M635csi og M5 8) .. bíðið bara .... hihihihihi

PostPosted: Wed 29. Jan 2003 14:13
by Allan E36
Ég er 18 316 81 árg svartur ætla að bæta við mig á næstunni
er mikið eldri bílanna, langar að vísu í 750iA 12v 91 Það er draumurinn

PostPosted: Wed 29. Jan 2003 14:27
by bjahja
Ég er 18 ára nemi.
BMW 323 97 beinskiptur lúga. (Ég er í Verzló þannig að ég varð að kaupa flottan og dýran bíl :D)

PostPosted: Wed 29. Jan 2003 15:04
by bebecar
Sæmi, gamlir bílar rúla og nýjir bílar bila líka! :lol:

Síðan er smá munur í viðbót... gamlir bílar rýrna ekki í verði eins og nýjir!

Heyrðu, þú þyrftir nú eiginlega að fá M á sjöuna líka skooooo....

En auðvitað er þetta geggjuð samsetning.

Þú ert með um 750 HESTÖFL í fjölskylduflotanum!!! Þú þyrftir að selja alla þrjá til að fá góðan 540i - það borgar sig engan vegin, myndir alltaf sjá eftir því. Haltu frekar áfram að byggja upp flotann og öppgreidann...

Eftir 7-10 ár verður hann eftirfarandi samsetning.

Alpina B10 Biturbo....
745i
og kannski Alpina B7 Coupé!

PostPosted: Wed 29. Jan 2003 15:36
by gstuning
Ég er 23ára kerfistjóri fyrri eigandi að GSTuning :)
Bý í keflavík,
Ég á 325i ´87 Blæjubíl með S50B30 vél, skemmdur
Einnig nýlega 325is ´89 ameríkutýpu,

Ég vil bara E30 bíla,
Væri til í að eiga einn touring með M30 3,5 vél, stock vél og stock bíll annars, svona country cruiser,

Núverandi 325is : Verður suddalega moddaður en samt street bíll,

Til í annan blæjubíl : þá með V8 M60 vél og "17 Felgur, body stock, svona sunnudagsbíll með tog, og þokkalega gott power,

Svo 320is E30 190hö, myndi race á þessum þegar brautin kemur, þessi myndi rústa 2lítra flokknum ef vélar væru stock, allt race í honum og léttur eins og hægt er án þess að skipta yfir í eitthvað dýrt eins og Carbon dót,

Einnig væri IX fínn fyrir veturinn,
"16x7,5 með 225 vetrar dekkjum myndi virka fínt,
Ekki lækkaður eða breyttur, nema kannski mjög mild turbo kerfi, eða 2,7 conversion.

Og bílskúr undir allt þetta og fleiri projects,
Ég er mjög veikur fyrir að eiga 318i turbo svona um 240hö væri flott, allt stock nema bara turbo kerfi og Quaife læsing að aftan og slatti góð dekk, súper stuð að spyrna á því :) flestir yrðu allaveganna hissa

PostPosted: Wed 29. Jan 2003 16:16
by GHR
Ég er 18 ára og bý í Reykjavík (Efra-Breiðholt) og á BMW 750IA '93 sem ég er bara aðeins að dunda mér í og stefni á að klára fljótlega.
Annars vinn ég bara hjá Nóatúni núna, en stefni á flugmanninn enda kominn aðeins á stað ( er einkaflugmaður með 100 tíma í lofti ) og flugið hefur alltaf átt hug minn og verið í fjölskyldu minni (öfunda þig Sæmi :x )
Einnig er ég í Borgarholtsskóla, á bóknámsbraut (Náttúrufræðibraut)

Kveðja

Guðmundur Haukur

PostPosted: Wed 29. Jan 2003 16:39
by hlynurst
Ég er 21 árs lagerstafsmaður.
Á 328 E36 '96.
Image

PostPosted: Wed 29. Jan 2003 17:03
by Halli
Eg er 28 gamall vörubilstjóri og langt lærður bifvélavirki
Ég á bmw 325i 1994 4dyra
Bmw 325i 1990 2dyra
Bmw 318i 1987 4dyra

PostPosted: Wed 29. Jan 2003 18:26
by Bjarki
Ég er 21 árs vélaverkfræðinemi í HÍ.
Á 730iA '90 ekinn 180þ ég er alltaf að betrumbæta eitthvað og laga. Lakkaði t.d. viðarlistana sem eru úr ekta viði en ekki plasti eins og mörgum bílum. BMW er alvöru 8)
Image

PostPosted: Wed 29. Jan 2003 18:34
by Svezel
Ég er tvítugur verkfræðinemi í HÍ og á 1998 E39 520iA
Image