bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

BMW kraftur og forráðamenn
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=6600
Page 1 of 1

Author:  Markus [ Mon 28. Jun 2004 08:31 ]
Post subject:  BMW kraftur og forráðamenn

Ég hef verið gangrýndur hér á vefnum fyrir að vera að bjóða mönnum aðstoð með að finna varahluti frá Danmörku. Sérstaklega hefur "óskard" látið heyra í sér. Ég veit ekki hvort hann sé forsvarsmaður fyrir BMW Kraft vefinn, ef svo er þá er það til skammar fyrir vefinn. Maðurinn er ekki í andlegu jafnvægi.
Ég hef sent forráðamönnum póst þar sem ég skýri nákvæmlega hvað ég er að bjóða BMW eigendum, en engin svör fengið.

Mér finnst þessi vefur ekki vera þess virði að eyða mínum tíma í og það er synd að fáir einstaklingar fái að eyðileggja hann með barnalegum skrifum eða bulli.

Author:  arnib [ Mon 28. Jun 2004 09:30 ]
Post subject: 

Heyrðu vinur hættu nú aðeins að vera svona þver.

Þú hefur ekki verið gagnrýndur fyrir að bjóða uppá þjónustu, það er frábært mál að þú gerir það og þetta hefur án efa gagnast einhverjum.
Ég gæti sjálfur vel hugsað mér að nota þína þjónustu einhverntíman, en ég efast þó um að almennt geti þín verð verið samanburðar hæf við partasölur hérna heima.

Það sem þú ert gagnrýndur fyrir er hvernig þú notar þennan vef eins og hann sé spjallborð sem snýst um varahlutaþjónustuna þína í danmörku.

Eins og hefur komið fram hérna áður er sér þráður efst tileinkaður þinni þjónustu. Þú hefur fengið póst þess efnis að vera ekki að pósta í hvert einasta topic borðsins, en samt geriru það ?

Þið virðist báðir (þú og bróðir þinn) líta sem svo á að þú sért að gera BMW menningunni á íslandi stóran og mikinn greiða, í raun sért þú sambærilegur við jólasveininn sjálfan, en veistu við getum því miður ekki litið á þetta sömu augum. Þú rukkar 'vægt gjald', hvað, 4000 kr og uppúr fyrir þína þjónustu, og þar af leiðandi er þetta lítill einfaldur rekstur.

Það verður því komið fram við þig nákvæmlega eins og ef að Bílabúð Benna myndi bjóða öllum sem óska eftir bíl - upp á nýjan Porsche.

Mér finnst ekkert skrýtið að fólk verði pirrað.

Já, Óskar er einn af forsvarsmönnum þessa vefs, og það er ég líka.

Ofangreindur texti er þó mín skoðun - ekki endilega BMWKrafts.

Author:  O.Johnson [ Mon 28. Jun 2004 21:49 ]
Post subject: 

Chill :-$
Ég er að fara að nýta mér þessa þjónustu sem hann er að bjóða og ég er að spara mér ca 50.000 kr.
Gæti ekki verið annað en sáttur við hann

Author:  Tommi Camaro [ Mon 28. Jun 2004 22:32 ]
Post subject: 

ég er ekki sáttur vegna þessa að sjá þessa pósta inn hverjum einast vef sem einhver er að leita að einhverju. notaðu bara PM , síðan þegar maður biður um verð á segiru bara einhverja danskar krónur en það er ekkert sem mig langar að vita mig langar bara vita hvað hluturinn kostar í mínar hendur með þinni þóknunn. þetta er flott og gott framtak en ef þ´ætlar að bjóða uppá svona þjónustu þá þarftu að klára dæmið til enda. þetta er sniðugt og ég er sjálfur að þessu að flytja in drasl fra usa. þetta er eins og þegar ég var í rabba hérna í denn þá þýðir lítið að segja kunnanum dollaraverðið.
kær kveðja tommi camaro

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/