Page 1 of 1

Brotist inn í bíl þriðjudagskvöldið 1 apríl

PostPosted: Sun 06. Apr 2014 15:14
by hjaltih
Sælir.

Það var brotist inn í bílinn minn á planinu fyrir utan hjá mér í Grafarvoginum þriðjudagskvöldið 1 apríl síðastliðinn. Ég lagði bílnum fyrir utan um 21:00 og kom að honum kl 2 um nóttina. Þetta hefur þá líklegast verið nýlega skeð þar sem að glerbrotin voru enn að detta úr rúðunni.

Það var einungis einum hlut stolið; Escort Passport 9500ix blár ( https://www.escortradar.com/passport9500ix/ ); Radarvari, sogskálarfesting og snúra til að tengja í sígarettukveikjara.


Þetta eru aðilar sem hafa vitað að ég væri með svona í bílnum þar sem að hann var lagður upp við vegg og með nokkuð stóran trukk á vinstri hlið. Því var ekki séns að sjá að bíllinn væri með slíkt apparat nema að fara að bílstjóra hurð bílsins.


Aðeins fyrr um kvöldið var einnig brotist inn í íbúð í Grafarvoginum og þar er talað um að hafi verið hvítur sedan Civic, árg sirka 2000, með enga númeraplötu framaná. Mögulega tengjast þessir atburðir.
http://menn.is/svavar-var-raendur-ollu-ur-ibudinni-lysir-eftir-manni-hund-og-bil-myndir/


Mér voru hinsvegar að berast þær upplýsingar frá nágranna mínum að það hafi verið blár eldri BMW, með opið púst og stickerbombað hægra frambrettið, að sniglast mjög grunsamlega hérna í götunni einmitt um þetta leitið.


Eflaust ekki margir svoleiðis hér í umferð. Mér skilst að það séu 2 sem passi við þessa lýsingu, annarsvegar 2 dyra og svo 4 dyra en það þarf ekki að vera 100%. Þar sem þið eruð nú BMW samfélag Íslands þá leita ég til ykkar í von um ábendingar. Fullum trúnaði er heitið. Megið endilega senda mér einkaskilaboð.

Re: Brotist inn í bíl þriðjudagskvöldið 1 apríl

PostPosted: Sun 06. Apr 2014 15:24
by Danni
Hmmm er það ekki gamli 320i hans Ágústs Inga?

Re: Brotist inn í bíl þriðjudagskvöldið 1 apríl

PostPosted: Sun 06. Apr 2014 15:27
by hjaltih
Danni wrote:Hmmm er það ekki gamli 320i hans Ágústs Inga?


Mér var einmitt bennt á hann, en sá bíll er með vinstra frambrettið stickerbombað. Ég bar það undir nágranna minn og hún sagðist vera 100% á að þetta væri hægra frambrettið þar sem að hún sá það þegar hann keyrði út götuna (hægri hliðin snéri að henni).

Re: Brotist inn í bíl þriðjudagskvöldið 1 apríl

PostPosted: Sun 06. Apr 2014 19:51
by AronT1
Image

??

Re: Brotist inn í bíl þriðjudagskvöldið 1 apríl

PostPosted: Sun 06. Apr 2014 20:29
by hjaltih
AronT1 wrote:Image

??


Heyrðu, þessi smellpassar nú bara við lýsinguna.

EDIT: Búinn að sjá fleiri myndir af þessum bíl, hann er með hvítt bretti en ekki stickerbombað.

Re: Brotist inn í bíl þriðjudagskvöldið 1 apríl

PostPosted: Mon 07. Apr 2014 07:38
by lallijohns
Gaman af því að bíllinn minn fór ekki langt uppá búkkúm inní skúr þetta kvöld :) eh-544

Re: Brotist inn í bíl þriðjudagskvöldið 1 apríl

PostPosted: Mon 07. Apr 2014 12:27
by Hjalti123
Er einhver E36 með stickerbombað hægra frambretti? Hef bara séð vinstra

Re: Brotist inn í bíl þriðjudagskvöldið 1 apríl

PostPosted: Mon 07. Apr 2014 12:41
by rockstone
Hjalti123 wrote:Er einhver E36 með stickerbombað hægra frambretti? Hef bara séð vinstra


já ég líka bara séð einn coupe og einn sedan, stickerbombaðir v/m

Re: Brotist inn í bíl þriðjudagskvöldið 1 apríl

PostPosted: Tue 08. Apr 2014 02:36
by Danni
Gæti verið að nágranninn hafi séð framan á bílinn og kallað það hægra megin því það var þeim megin ef maður stendur fyrir framan bílinn.

Það er alveg nokkuð algengara en maður heldur að fólk veit ekki að maður á alltaf að miða við eins og maður sitji inní bílnum.

Re: Brotist inn í bíl þriðjudagskvöldið 1 apríl

PostPosted: Tue 08. Apr 2014 17:30
by hjaltih
Já ég er búinn að heyra í fleirum um að það séu bara bílar með á vinstra bretti. Sýnist nú bara 2 bílar koma til greina, annarsvegar 2 dyra og hinsvegar 4 dyra.