Sælir.
Það var brotist inn í bílinn minn á planinu fyrir utan hjá mér í Grafarvoginum þriðjudagskvöldið 1 apríl síðastliðinn. Ég lagði bílnum fyrir utan um 21:00 og kom að honum kl 2 um nóttina. Þetta hefur þá líklegast verið nýlega skeð þar sem að glerbrotin voru enn að detta úr rúðunni.
Það var einungis einum hlut stolið; Escort Passport 9500ix blár (
https://www.escortradar.com/passport9500ix/ ); Radarvari, sogskálarfesting og snúra til að tengja í sígarettukveikjara.
Þetta eru aðilar sem hafa vitað að ég væri með svona í bílnum þar sem að hann var lagður upp við vegg og með nokkuð stóran trukk á vinstri hlið. Því var ekki séns að sjá að bíllinn væri með slíkt apparat nema að fara að bílstjóra hurð bílsins.
Aðeins fyrr um kvöldið var einnig brotist inn í íbúð í Grafarvoginum og þar er talað um að hafi verið hvítur sedan Civic, árg sirka 2000, með enga númeraplötu framaná. Mögulega tengjast þessir atburðir.
http://menn.is/svavar-var-raendur-ollu-ur-ibudinni-lysir-eftir-manni-hund-og-bil-myndir/Mér voru hinsvegar að berast þær upplýsingar frá nágranna mínum að það hafi verið blár eldri BMW, með opið púst og stickerbombað hægra frambrettið, að sniglast mjög grunsamlega hérna í götunni einmitt um þetta leitið.Eflaust ekki margir svoleiðis hér í umferð. Mér skilst að það séu 2 sem passi við þessa lýsingu, annarsvegar 2 dyra og svo 4 dyra en það þarf ekki að vera 100%. Þar sem þið eruð nú BMW samfélag Íslands þá leita ég til ykkar í von um ábendingar. Fullum trúnaði er heitið. Megið endilega senda mér einkaskilaboð.