Jæja,,,
eftir þessar þrætur um hp vs tog.. þá sökti ég mér í þetta,, fékk aðstoð frá ágætum aðila og vill koma allaveg mínu sjónarmiði á framfæri..
Tog = Kraftur * vegalengd, einingin í Evrópu (SI einingarstaðall) er Nm (newton metrar),
Newton er eðlisfræðilegt hugtak fyrir kraft (F=m*a), eða massi (kg) * hröðun (m/s2).
Hestöfl er ekkert annað en mælieining fyrir það hve mikla vinnu (W=E/t) vélin getur skilað á tímaeiningu. Hestöflin fást síðan eftir því hve oft á sek vélin skilar ákveðnu togi.
Eða eins og Kevin McClelland segir:
"Horsepower sells engines and cars. But torque moves the car." - Kevin McClelland, Flowmaster Mufflers
Til að reikna út hestöfl er hægt að notast við formúluna:
P(hö)= T * w eða P(hö)=(T (ft lbf eða Nm)* f(snún/mín))/5252
P= afl
T= tog
w= vinkil hraði
5252= fasti fyrir ft lbs
Þ.a. hér þarf að vita togið til að reikna út hestöflin sbr það sem er gert í dýnóbekkjum.
Segjum að við séum með vél sem gefur af sér gríðarlegt tog, en snýst mjög hægt (lágur snúningur), þá verða hestöflin ekki sérstaklega mörg.
Eða ef vélin er með lítið tog, en snýst mikið (hár snúningur), gætum við fengið mjög mörg hestöfl.
Ef við skoðum stóra V8 vél sem er með mikið tog á lágum snúningi, sem þýðir að hún skilar fleiri hö og skilar meiri vinnu á lágum snúningi, en hefur venjulega lága afl kúrfu og hámarkssnúningurinn er ekki hár, þ.a. á hærri snúningi skilar hún takmörkuðum hestöflum miðað við vél sem gæti haldið góðri tog kúrfu allt upp í 10.000 til 11.000 snún/mín (RPM).
Ef við skoðum 4 cyl vél sem er með minna tog og þar með ekki mörg hestöfl á lágum snúningi sem venjulega snýst mikið (eða meira en V8 sem var skoðuð áðan), þá getur hún skilað jafn mörgum hö eins og V8 sem er með meira tog. Skoðum bara vélar sem eru notaðar í mótorsportinu eins og Hayabusu mótorar og aðrar sem snúast kannski upp í 18.000 snún/mín, þær geta skilað mjög mörgum hestöflum, eins og við þekkjum, þó svo að togið sé ekki mikið.
Þannig að þessu má sjá að hestöfl eru bara fall af toginu á ákveðnum snúningi vélar. Þetta er kannski það mikilvægasta í umræðunni um hestöfl vs tog.
Í bransanum er þetta alltaf til umræðu og hér eru nokkrar hugleiðingar manna sem hafa reynslu og þekkingu á þessu svona til gamans og fróðleiks:
"I build an engine for strictly horsepower! It's easier to get the car down the track with more power. Horsepower gives you more miles-per-hour, and a better e.t." - Joe Sherman, Joe Sherman Racing Engines
Torque And Horsepower GuideEven on a high-rpm race engine, torque matters-it just peaks higher ... a lot higher. This
"Horsepower is what pushes, pulls, shoves, or drags our rides through the friction-filled world. If we want to go faster, it takes more horsepower. If we want to go slower, it takes less horsepower." - Harold Bettes, SuperFlow
"It takes torque to get a car moving." - Dick Miller, Dick Miller Racing
"Want to run faster? It's all about horsepower! But if you have more torque, you'll have more horsepower!" - Judson Massingill, School of Automotive Machinists
Hver hefur rétt fyrir sér? eflaust hafa hafa margir rétt fyrir sér, fer bara eftir því hvernig við skoðum þetta og hvað menn vilja.
- Allt byrjar þetta með eðlisfræði hugtökunum „Krafti“ og „Vinnu.“
eða eins og Sv.H Motorsport segir .. When you open the bonnet ,, and the more cylinder.. the more respect
_________________ Sv.H E30 CABRIO V12 M70B50 ///ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507 E34 550 V12 JML(OO[][]OO) http://alpina.123.is/pictures/Sabine Schmitz wrote: "Fear disturbs your concentration."
|