Page 1 of 1

m3 e36 "BO"

PostPosted: Fri 18. Jun 2004 22:59
by Duce
jæja hvernig voru menn að fíla spólið hja m3 ?

allavegana fékk ég gæsahúð þegar hann var að þrykkja milli 3-4 i

bullandi mökki , án efa spól keppninar .. annars fékk ég hálfgerðan

móral vegna þjösns en það kosta víst að vera gr00ve ... :wink:

PostPosted: Fri 18. Jun 2004 23:16
by gunnar
Hann stútaði víst kúplingu og eitthverju fleiru ;)

PostPosted: Sat 19. Jun 2004 12:08
by Logi
:puke: mig langaði bara að fara og kasta upp eftir að hafa horft á þetta :? Mér fannst þetta of mikið!

PostPosted: Sat 19. Jun 2004 20:50
by saemi
Það eina sem var flott við þetta var hljóðið í vélinni. Þá gat maður lokað augunum og látið sem það væri verið að gera eitthvað af viti.

Ekki að spóla í öllum gírum upp í 4ða gír, kúpla svo þegar hann er að missa snúninginn niður til að ná vélinni aftur á snúning og sleppa kúplingunni. :roll: :roll: :roll:

Læsingunni í drifinu var allavega stútað big time

How stupid can people get :?:

PostPosted: Sat 19. Jun 2004 20:52
by Kristjan
Þeir sögðust hafa tappað olíunni af drifinu og hún hafi verið svört og öll í pínulitlum málmögnum....


#-o

PostPosted: Sat 19. Jun 2004 22:26
by flamatron
OJ,ég var að horfa á þetta.. :bawl:
Hvílíkur auli að vera að þessu, svo var hann bara á útslættinum.. aftur og aftur og aftur og aftur,... Vélin í m3 hefur klikkað mikið vegna þess að menn eru að "redline"'a hana.. :x
Focking GIMP.!!!

PostPosted: Sun 20. Jun 2004 00:47
by bjahja
Þessi gaur er bara pappakassi dauðans :evil:

PostPosted: Sun 20. Jun 2004 01:32
by Haffi
algjör apy.

PostPosted: Sun 20. Jun 2004 07:40
by fart
Haffi wrote:algjör apy.


:?: s.s. api í fleirtölu.. lol

PostPosted: Sun 20. Jun 2004 13:06
by Duce
ég fór eftir þetta venjulega tímamökk en sá á videoi herna að hann fór

aftur og það var alveg sorglegt

PostPosted: Sun 20. Jun 2004 16:10
by HelgiPalli
Seinna skiptið var alveg hræðilegt -- binda spotta aftan í bíl, setja í fyrsta og standa svo bara gjöfina.. :-s

Ekki það að fyrra skiptið hafi verið mikið skárra. Þetta er eins og að skeina sér á fimmþúsundköllum fyrir framan fullt af fólki

PostPosted: Sun 20. Jun 2004 23:24
by Jss
Eftir að hafa horft á video-ið af þessu þá líður manni bara illa. :(

PostPosted: Mon 21. Jun 2004 14:44
by jens
Þetta er ömurleg meðferð á annars flottum bíl.