Ég er staddur í Borg óttans í heimahúsi þar sem ég varla þekki húsráðendur, en þegar ég gekk inn á bílaplanið við húsið, sá einhvern þann allra fallegasta bmw sem ég hef einhverntíman séð BMW 540i, dökkblár og svo fallegur að það geislaði nánast af honum. mér er boðið að ganga í bæinn og fljótlega eftir það hefjast umræður um þennan fallega bíl, þar sem ég kemst að því að hann er með 4.4 l. vél og tæp 300 hp, litli sveitastrákurinn gapti og slefaði nánast yfir allri þeirri dýrð sem bíllinn hafði upp á að bjóða. svo endar umræðan um bílinn og hugar beinast að málefnum heimsins og EM í svolítla stund. haldiði svo ekki að húsráðandi bjóði mér að prófa gripinn!!! ha!!! 18 ára strák að norðan sem hann hafði aðeins þekkti í 10 - 15 mín. og auðvitað greip maður nú tækifærið og þáði boðið. OG vááááááááááááááááá þvílík djöfulsins orka og aksturseiginleikar. við fórum smá rúnt um kópavoginn hann læt mig alveg prófa það hvað billinn hafði upp á að bjóða og ég titra eiginlega enn eftir rúntinn, krafturinn, þægindin, togið, akstureiginleikar og bara allt. ekki hægt að lýsa slíkri lífsreynslu.... ég mund sennilega aldrei keyra eins góðan bíl og þennan og varla eins kraftmiklan.... ég vildi bara að fleiri fengju að njóta þessa og skora á menn til að prófa þessa týpu og reyna að kaupa hana ekki... ég er alveg í skýjunum yfir þessu, að bláókunnugur maður leyfi bláókunnugum dreng að keyra bil upp á tæpa 2 millur.
Ég þakka kærlega fyrir mig!
