bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Bmw M5 e39 Angel eyes
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=62251
Page 1 of 1

Author:  arnarh [ Wed 03. Jul 2013 17:53 ]
Post subject:  Bmw M5 e39 Angel eyes

Jæja nú ætla ég að varpa fáfræði minni í dagsljósið varðandi þessi xenon og Angel eyes.
Ég geri mér grein fyrir því að pre facelift bílarnir koma með xenon ljósum og bílarnir eftir okt 2000 (að ég held)
koma með facelift ljósnum þ.e.a.s Angel eyes. Ég ætla að versla mér 1 par af Angel eyes
en ég er bara svo hrikalega grænn í þessu að mig langar að ráðfæra mig við mér fróðari menn um þetta áður
en ég æði af stað í þetta svo ég sitji ekki uppi með einhverja vitleysu.
Passa þessi ljós í alla e39 m5 bílana eða eru t.d USA ljósin öðruvísi og þarf ég að panta tengi sem passa fyrir einhverjar perur.
Ekki væri verra ef einhver gæti bent mér á síðu sem hægt er að nálgast Angel eyes nýtt/notað helst notað.


Með fyrirfram þökk Arnar Helgason

Author:  Eggert [ Wed 03. Jul 2013 18:23 ]
Post subject:  Re: Bmw M5 e39 Angel eyes

Hvort ertu að tala um að kaupa Angel eyes hringi í ljóskerin sem þú ert með núna, eða kaupa komplett tvö ljósker?

Angel eyes hringirnir eru frekar ódýrir.. kaupir þá bara af ebay.co.uk og þetta er plug&play. Vitleysa að vera að skipta út ljóskerjunum nema það sé eitthvað bilað/brotið/ónýtt.

Author:  arnarh [ Thu 04. Jul 2013 14:08 ]
Post subject:  Re: Bmw M5 e39 Angel eyes

Var að pæla í ljósinu komplett en skoða hinn valmöguleikann víst að han er billegri.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/