Jæja nú ætla ég að varpa fáfræði minni í dagsljósið varðandi þessi xenon og Angel eyes.
Ég geri mér grein fyrir því að pre facelift bílarnir koma með xenon ljósum og bílarnir eftir okt 2000 (að ég held)
koma með facelift ljósnum þ.e.a.s Angel eyes. Ég ætla að versla mér 1 par af Angel eyes
en ég er bara svo hrikalega grænn í þessu að mig langar að ráðfæra mig við mér fróðari menn um þetta áður
en ég æði af stað í þetta svo ég sitji ekki uppi með einhverja vitleysu.
Passa þessi ljós í alla e39 m5 bílana eða eru t.d USA ljósin öðruvísi og þarf ég að panta tengi sem passa fyrir einhverjar perur.
Ekki væri verra ef einhver gæti bent mér á síðu sem hægt er að nálgast Angel eyes nýtt/notað helst notað.
Með fyrirfram þökk Arnar Helgason
