Page 1 of 1
Hvar eruði að kaupa aukahluti á bílana ykkar?

Posted:
Wed 01. May 2013 00:26
by toriRh
ég sá einhverstaðar spjallþráð um schmiedmann síðuna, en hún væri ekki að vera nógu áreiðanleg
þannig að ég fór að spegúlera hvar þið væruð að panta ykkur aukahluti og felgur og annað slíkt
eruði að flytja þetta inn sjálfir eða?
og eitt annað, hvar mæliði með því að ég filmi bílinn?
Re: Hvar eruði að kaupa aukahluti á bílana ykkar?

Posted:
Wed 01. May 2013 01:42
by bjarkibje
VIP að filma
Kaupi allt á Ebay eiginlega
Re: Hvar eruði að kaupa aukahluti á bílana ykkar?

Posted:
Wed 01. May 2013 08:51
by Daníel Már
Ekkert af schmiedmann ef þeir eiga vöruna til á lager, ef ekki þá gæti það reynst annað mál
pantaði gorma frá þeim og þeir voru komnir á sirka sólarhring til mín!
Re: Hvar eruði að kaupa aukahluti á bílana ykkar?

Posted:
Wed 01. May 2013 08:55
by ppp
http://www.khoalty.com/ Hérna síðast núna fyrir viku. Góð verð þarna.
Re: Hvar eruði að kaupa aukahluti á bílana ykkar?

Posted:
Wed 01. May 2013 10:42
by Orri Þorkell
autohausaz.com þeir eru með góð verð. Ekki kaupa að schmiedmann nema það séu OEM BMW hlutir, aftermarket hjá þeim eru bara rusl
Re: Hvar eruði að kaupa aukahluti á bílana ykkar?

Posted:
Wed 01. May 2013 15:14
by SteiniDJ
Ég er farinn að liðka til þýskuna í vara- og aukahlutakaupum. Yfirleitt er þetta nokkuð ódýrara þarna úti og þarf bara smá googleFu til að finna ágætis díla.

Re: Hvar eruði að kaupa aukahluti á bílana ykkar?

Posted:
Thu 02. May 2013 00:11
by ViggiRS
Svona smá friendly tip í kaupum á ebay í þýskalandi, ef þið notið chrome vafrarann þá geturðu látið hann auto þýða síðurnar alltaf á ensku svona ef að menn eru ekki með menntaskólaþýskuna á hreinu

Re: Hvar eruði að kaupa aukahluti á bílana ykkar?

Posted:
Thu 02. May 2013 00:40
by toriRh
Oki nice, takk fyrir ábendingar.. ég kíkji á þetta allt saman.
Re: Hvar eruði að kaupa aukahluti á bílana ykkar?

Posted:
Thu 02. May 2013 06:07
by Danni
Síðan ef þú þekkir einhvern sem er að fara til Bandaríkjanna eða er þar og hefur tök á að senda þér hluti heim, þá er
www.getbmwparts.com BMW umboð sem selur varahluti í gegnum netið á mjög góðu verði. Bara orginal hlutir í boði þar. En þeir senda ekki utan USA.
Re: Hvar eruði að kaupa aukahluti á bílana ykkar?

Posted:
Sat 04. May 2013 01:00
by HAMAR
Bilanaust, their eru med gekt flotta limmida og allt.

Re: Hvar eruði að kaupa aukahluti á bílana ykkar?

Posted:
Sat 04. May 2013 01:12
by olinn
HAMAR wrote:Bilanaust, their eru med gekt flotta limmida og allt.

Klárlega, ég kaupi alltaf turbo og GTR límmiðana í bílanaust

Re: Hvar eruði að kaupa aukahluti á bílana ykkar?

Posted:
Sat 04. May 2013 01:16
by toriRh
Hahah okei nú mun ég bara versla við Bílanaust, þeir hljóma bara aðeins of vel!

Re: Hvar eruði að kaupa aukahluti á bílana ykkar?

Posted:
Sat 04. May 2013 12:23
by jon mar
Ebay.de/co.uk/com , Pelicanparts.com , Turnermotorsport.com , Schmiedmann og eitthvað víðar, svo á erlendum forums
Svo stundum bara á kraftinum
