Page 1 of 1
Z3/E30 LSD eða soðið drif á Compact?

Posted:
Tue 23. Apr 2013 23:51
by Gunnars1
Sælir meðlimir, hef verið að skoða hverjir möguleikar mínir eru á læstu drifi, veit að drif af Z3 og E30 virka á Compact en veit nú ekki um neinn sem er að selja þannig og er nú ekkert moldríkur í augnablikinu.
Þannig ég hef verið að skoða það að sjóða drifið, hef lesið á erlendum síðum að ef suðan er góð þá getur þetta enst í langan tíma. Mig grunar nú að ég sé enn með 316/318 drif, og hef heirt að compact sé með litla drifið.
Hver eru álitin á þessu öllu saman? er einhver hérna sem kann að sjóða drif og hefur gert það áður á þessum bílum? langar mjög mikið að fara út í driftið.
Re: Z3/E30 LSD eða soðið drif á Compact?

Posted:
Wed 24. Apr 2013 07:39
by IvanAnders
Getur alveg reddað þér sumarið á soðnu drifi, en þetta er ógeð í daglegum akstri, og myndi kaupa LSD sem fyrst!
Re: Z3/E30 LSD eða soðið drif á Compact?

Posted:
Wed 24. Apr 2013 09:48
by auðun
nei það brotnar strax litla drifið með 190 hp motor. Skal ábyrgjast það að litla drifið brotni strax. bara æfa sig a opnu. Nota þyngdina ekki aflið
Re: Z3/E30 LSD eða soðið drif á Compact?

Posted:
Wed 24. Apr 2013 13:40
by Aron123
getur prufað að sjóða drifið, ég var með soðið drif á e36 323 coupe og ég fór með 2 öxla(litla drifið)
þetta getur alveg enst hjá þér, þar sem compact er léttari.
Re: Z3/E30 LSD eða soðið drif á Compact?

Posted:
Wed 24. Apr 2013 17:57
by Angelic0-
drifið er ekki vandamálið með litla drifið, það eru hjöruliðirnir í minni öxlunum sem að gefa sig í þessu

Re: Z3/E30 LSD eða soðið drif á Compact?

Posted:
Wed 24. Apr 2013 23:20
by Gunnars1
Þakka fyrir commentin

Compactinn er nú ekki beint daily hjá mér, meira sem dund bíll og helgar leikfang
Ef ég set soðið drif undir hann, gæti ég ekki styrkt hitt og þetta í kringum drifið svo það fari nú ekki að valda einhverjum skaða?
Re: Z3/E30 LSD eða soðið drif á Compact?

Posted:
Thu 25. Apr 2013 09:26
by Alpina
Gunnars1 wrote:Þakka fyrir commentin

Compactinn er nú ekki beint daily hjá mér, meira sem dund bíll og helgar leikfang
Ef ég set soðið drif undir hann, gæti ég ekki styrkt hitt og þetta í kringum drifið svo það fari nú ekki að valda einhverjum skaða?
Er þetta ekki orðið að allmikilli aðgerð ??
Re: Z3/E30 LSD eða soðið drif á Compact?

Posted:
Thu 25. Apr 2013 10:02
by IvanAnders
Það er búið að svara þér, litlu öxlarnir munu gefa sig, og drifið líka.
Þarft stórt drif og öxla, mátt svo alveg sjóða það þar til þú finnur þér læsta keisingu.
Re: Z3/E30 LSD eða soðið drif á Compact?

Posted:
Thu 25. Apr 2013 21:30
by Aron123
IvanAnders wrote:Það er búið að svara þér, litlu öxlarnir munu gefa sig, og drifið líka.
Þarft stórt drif og öxla, mátt svo alveg sjóða það þar til þú finnur þér læsta keisingu.
drifið heldur alveg ef þetta er soðið vel. öxlarnir gefa sig þó
ég myndi bara sjóða drifið og sjá hvað gerist, ekki geturu leikið þér mikið með opið drif hvort sem er.
Re: Z3/E30 LSD eða soðið drif á Compact?

Posted:
Fri 26. Apr 2013 11:23
by siggigunni
sjóddu bara helvítis drifið og út að spóla!, ef það brotnar keyptu annað og sjóddu það. Endurtaktu svo ferlið út í hitt óendanlega og hættu að hlusta á team væloemekkisjóðadrifiðbmw hérna inná.
Að því gefnu að þetta sé leikfang sem ég geri ráð fyrir þar sem hann er afturbekkslaus.
Re: Z3/E30 LSD eða soðið drif á Compact?

Posted:
Fri 26. Apr 2013 16:49
by IvanAnders
siggigunni wrote:sjóddu bara helvítis drifið og út að spóla!, ef það brotnar keyptu annað og sjóddu það. Endurtaktu svo ferlið út í hitt óendanlega og hættu að hlusta á team væloemekkisjóðadrifiðbmw hérna inná.
Að því gefnu að þetta sé leikfang sem ég geri ráð fyrir þar sem hann er afturbekkslaus.
Siggi Gunni minn...
Það er enginn að banna honum að sjóða drifið, það er öllum skítsama hvað hann gerir við litla compact drifið sitt, reynslan er hins vegar sú að öxlarnir munu ekki halda lengi, og drifið gefur sig líklega líka fyrir rest, þess vegna er verið að mæla með því að hann fari bara í stóra drifið strax, ódýrara og minna vesen þegar uppi er staðið

Re: Z3/E30 LSD eða soðið drif á Compact?

Posted:
Fri 26. Apr 2013 16:59
by Aron123
það gerist ekkert við drifið, ef eitthvað brotnar þá er það öxull. en það þarf ekkert að vera því bíllinn er svo léttur.
ég seigi bara go for it!
Re: Z3/E30 LSD eða soðið drif á Compact?

Posted:
Sat 27. Apr 2013 17:32
by auðun
braut mási ekki 4 lítil drif eitt sumarið.
Re: Z3/E30 LSD eða soðið drif á Compact?

Posted:
Sat 27. Apr 2013 19:44
by Angelic0-
Aron123 wrote:það gerist ekkert við drifið, ef eitthvað brotnar þá er það öxull. en það þarf ekkert að vera því bíllinn er svo léttur.
ég seigi bara go for it!
Er búinn að prófa þetta bæði á Compact og venjulegum E36.... hjöruliðirnir endast tvær beygjur án þess að spóla.... ef að þú spólar á öllum hornum endast þeir lengur

Re: Z3/E30 LSD eða soðið drif á Compact?

Posted:
Tue 30. Apr 2013 14:34
by siggigunni
Siggi Gunni minn...
Það er enginn að banna honum að sjóða drifið, það er öllum skítsama hvað hann gerir við litla compact drifið sitt, reynslan er hins vegar sú að öxlarnir munu ekki halda lengi, og drifið gefur sig líklega líka fyrir rest, þess vegna er verið að mæla með því að hann fari bara í stóra drifið strax, ódýrara og minna vesen þegar uppi er staðið

[/quote]
enda bara smá grín hjá mér.. átti nú bara við að hann þyrfti ekki að vera hræddur við að sjóða drifið svona til að byrja með, allt í lagi að byrja á því og skipta svo í stórt þegar það fer.