bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Eyðsla á 17" vs 18" https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=61081 |
Page 1 of 1 |
Author: | Orri Þorkell [ Sat 20. Apr 2013 00:05 ] |
Post subject: | Eyðsla á 17" vs 18" |
málið er að ég er með 17" sem ég nota á veturna, 235 45 toyo harðskelja, á þeim dekkjum er hann að eyða 8.5 og hefur gert í allan vetur mjög svipað. Fylli alltaf tankinn og reikna út frá km. Svo er ég með 18" sumarfelgur, accelera 225 45 að framan, pirelli pzero 245 40 að aftan en felgurnar eru allar jafnbreiðar. á 18" er hann að eyða 10 - 10.5 miðað við svipaðan akstur við svipaðar aðstæður, betri aðstæður ef eitthvað er. Sama ástand á bílnum. báðir dekkjagangarnir nýlegir. Finnst þetta vera of mikill munur, varla ég tími að keyra um á 18", um leið og ég skelli 17" undir þá virkar bíllinn aðeins léttari og sé strax mun á aksturstölvunni. Ætli þetta sé afþví framdekkin eru semi stretchuð, 225mm á 8,5" breiðum felgum, eða að accelera séu léleg dekk? eða sambland af meiri þyngd og lélegum dekkjum. eða bíllinn þurfi hjólastillingu og afþví 18" gefur minna eftir þá finni ég meira fyrir því |
Author: | Jökull94 [ Sat 20. Apr 2013 04:15 ] |
Post subject: | Re: Eyðsla á 17" vs 18" |
Þetta er bara aalveg eins og að setja jeppa á stærri dekk, þá eyðir hann minna.. stærra ummál væntanlega og þarf þá meira átak til að snúa hjólunum. |
Author: | Orri Þorkell [ Sat 20. Apr 2013 12:01 ] |
Post subject: | Re: Eyðsla á 17" vs 18" |
það munar nú ekki nema örfáum mm á ummmálinu á 17" vs 18", annars væri hraðamælirinn vitlaus. En bíllinn þarf held ég hjólastillingu hvort sem er, 1 ný spyrna og nýjir framdemparar, ágætt að byrja á því |
Author: | Eggert [ Sat 20. Apr 2013 12:06 ] |
Post subject: | Re: Eyðsla á 17" vs 18" |
Eru 18" felgurnar þínar ekki bara blýþungar? |
Author: | Orri Þorkell [ Sat 20. Apr 2013 16:48 ] |
Post subject: | Re: Eyðsla á 17" vs 18" |
Eggert wrote: Eru 18" felgurnar þínar ekki bara blýþungar? gæti verið það líka |
Author: | Angelic0- [ Sat 20. Apr 2013 17:19 ] |
Post subject: | Re: Eyðsla á 17" vs 18" |
Ég ætla að skjóta á svarið hans Eggerts... ég hef sett bíl á 19" felgur og bíllinn eyddi ekkert meira en á 16" vetrartúttunum... |
Author: | íbbi_ [ Sat 20. Apr 2013 18:06 ] |
Post subject: | Re: Eyðsla á 17" vs 18" |
ég tók eftir eyðslu mun þegar ég setti alpina felgurnar undir alpinuna, en þær eru alveg fisléttar |
Author: | ppp [ Sat 20. Apr 2013 21:10 ] |
Post subject: | Re: Eyðsla á 17" vs 18" |
http://www.alloywheels.com/Tyre_Calculator Annars hlýtur þetta bara að vera þyngdarmunur. Ef þú vigtar muninn á öllum dekkjum+felgum, prófaðu þá að margfalda það með 7, og það á víst að gefa hugmynd um hversu mikil áhrif það hefur á performance. |
Author: | Orri Þorkell [ Sat 20. Apr 2013 21:23 ] |
Post subject: | Re: Eyðsla á 17" vs 18" |
ppp wrote: http://www.alloywheels.com/Tyre_Calculator Annars hlýtur þetta bara að vera þyngdarmunur. Ef þú vigtar muninn á öllum dekkjum+felgum, prófaðu þá að margfalda það með 7, og það á víst að gefa hugmynd um hversu mikil áhrif það hefur á performance. snilld, takk fyrir þetta |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |