Hefur einhver prófað þetta bón ?

Posted:
Wed 03. Apr 2013 16:20
by Raggi M5
Re: Hefur einhver prófað þetta bón ?

Posted:
Wed 03. Apr 2013 16:41
by Alpina
€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€ $$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$
Re: Hefur einhver prófað þetta bón ?

Posted:
Wed 03. Apr 2013 17:28
by Joibs
á miða við verðið á þessu þá VERÐUR þetta nú að virkahrikalega vel!!

Re: Hefur einhver prófað þetta bón ?

Posted:
Wed 03. Apr 2013 17:32
by Yellow
Mér finnst nú gaman að þvo Bíllinn minn og það sérstakslega þegar hann er haug skítugur þannig,
En þetta myndi henta sér vel á felgur

Re: Hefur einhver prófað þetta bón ?

Posted:
Wed 03. Apr 2013 17:40
by tinni77
Yellow wrote:Mér finnst nú gaman að þvo Bíllinn minn og það sérstakslega þegar hann er haug skítugur þannig,
En þetta myndi henta sér vel á felgur

Hann er samt að spyrja hvort einhver hafi reynslu af þessum efnum, ekki hvað hann gæti mögulega notað þetta í

Re: Hefur einhver prófað þetta bón ?

Posted:
Wed 03. Apr 2013 17:50
by Yellow
tinni77 wrote:Yellow wrote:Mér finnst nú gaman að þvo Bíllinn minn og það sérstakslega þegar hann er haug skítugur þannig,
En þetta myndi henta sér vel á felgur

Hann er samt að spyrja hvort einhver hafi reynslu af þessum efnum, ekki hvað hann gæti mögulega notað þetta í

Ég las eitthvað um þetta um daginn og það virkaði mjög vel að setja þetta á felgunar, þar af segja ef menn vilja ekki skítugar felgur eftir einn dag

Re: Hefur einhver prófað þetta bón ?

Posted:
Thu 04. Apr 2013 07:47
by bErio
Ég einfaldlega treysti ekki manni með tribaltattoo sem situr á gömlum haug að auglysa bón.
Re: Hefur einhver prófað þetta bón ?

Posted:
Thu 04. Apr 2013 09:30
by Maggi B
detailerar setjast ekki á bíla
Re: Hefur einhver prófað þetta bón ?

Posted:
Fri 05. Apr 2013 11:50
by oskar9
"Sem dæmi um áhrifin nefnir Kristvin að hann hafi borið nanóefni frá Nano-4-Life á framrúðuna á bílnum sínum fyrir þremur vikum og á þeim tíma hafi hann rúllað bílnum tvisvar gegnum þvottastöð. „
Einhver "Bónexpert" sem notar bílaþvottastöðvar er ekki "bónexpert" í mínum huga, kannski virkar þetta en trúi því varla að þú berir þetta á bílinn og þurfir svo ekkert að hugsa um hann aftur næstu mánuðina...
Re: Hefur einhver prófað þetta bón ?

Posted:
Sat 06. Apr 2013 12:48
by Raggi M5
Já þetta er alveg fáránlega dýrt dót ! Væri samt til í að prófa felgugaurinn
Re: Hefur einhver prófað þetta bón ?

Posted:
Sat 06. Apr 2013 17:25
by Emil Örn
„Benz-menn nota til dæmis nanó þegar þeir sprauta lakkinu á, og Pilkington gerir rúðurnar sínar þannig úr garði að þær séu með innbyggðu nanó.“
Þetta þykir mér asnaleg setning, afþví nanó er bara mælieining. Þetta er eins og að segja ,,Benz menn nota kíló þegar þeir sprauta lakkinu á."
Það geislar ekki af þessu fagmennskan, finnst mér.
Re: Hefur einhver prófað þetta bón ?

Posted:
Sat 06. Apr 2013 18:16
by Kristjan PGT
Þið getið drullað yfir framsetningu umboðsaðilans eins og þið viljið

En það segir nú ekkert um ágæti vörunnar sjálfrar þó vissulega auki hún ekki beint trúverðugleika.
Re: Hefur einhver prófað þetta bón ?

Posted:
Sun 07. Apr 2013 01:01
by SteiniDJ
Sælir strákar,
Ég keypti einn brúsa af Nano-4-Life "bóni" og pre-cleaner fyrir vinnuna, og prófaði þetta á vinnubílnum, sem er svartur.
Fyrir það fyrsta þá langaði mig að nefna verðið, en 200ml brúsi (sem dugir uþb. á tvær bónferðir yfir bílinn skv. sölumanni) kostaði um 9200 krónur.
Eins og alvöru bónhommi, þá ákvað ég að besta leiðin til að prófa efnið væri að gera 50/50 próf. Á aðra hlið húddsins setti ég Nano4 og á hina Meguiars (sem kostaði 4200 kr eða svo). Málningalímband var sett í miðjuna til að mynda skilrúm.
Mér fannst ég sjá smá mun á því svæði sem að límbandið huldi og því svæði sem að Nano4 var sett á. Smá munur, ekki mikið meira en það. Munurinn á límbandssvæðinu og Meguiars svæðinu (eftir eina umferð) var svakalegur. Grátt vs. kolsvart.
Því næst prófaði ég að hella vatni á húddið til að sjá perlunaráhrifin og hvernig vatnið myndi haldast á lakkinu. Nano4 hliðin myndaði ekki fallegar perlur (beads), heldur voru þær grófar og misstórar. Meguiars hliðin myndaði fallegar perlur sem voru allar mjög svipaðar. Þar fyrir utan gat ég ekki séð mikinn mun á virkni efnanna á vatn. Það flaut burt jafn auðveldlega á báðum hliðum en var leiðinlegt á límbandssvæðinu.
Ég held að það sé rangt að kalla þetta efni bón, en mér sýnist það veita einhverja vörn. Það er erfitt að segja til um hversu mikil vörnin er, en til að byrja með virtist hún ekkert síðri en virkni Meguiars efnisins. Það stóð á Nano4 brúsanum að virkni efnisins myndi hámarkast eftir 24 tíma, og þegar ég prófaði þetta eftir ~48 tíma var perlunin sú sama og virkni efnisins mjög svipuð, en Meguiars var ekki alveg eins góður og hann var í byrjun (samt sem áður ekki slakur).
Leiðbeiningum var fylgt vel eftir, en hefði viljað leyfa Meguiars að þorna lengur áður en ég hreinsaði bónið af lakkinu. Hef oft leyft því að standa í 24 tíma og svo þurrkað það af með mjög góðum afleiðingum.
TL;DR: Nano4 virðist veita vörn, en engan bóngljáa. Borið saman við Meguiars bón sem var í raun nokkuð betra en Nano4 þegar á heildina er litið.
Setjið allt eins og þið viljið á sölumanninn, en hann var afskaplega almennilegur og fínn í samskiptum.