Loksinns virkar hann...
Um daginn fór ég með bílinn minn (850i E31) í viðgerð hjá Tækniþjónustu Bifreiða og bað þá um að tékka á óreglulegum grófum gangi og mikilli bensín eiðslu (27-39 ltr/100km). Útkoman, báðir mótorpúðar ónýtir og önnur tölvan ónýt, já ónýt. Þeir pöntuðu tölvu (sem tók ekki nema 3 daga) og hentu þessu öllu í fyrir mig í dag. Tölvan var að gefa vitlaus merki í injectoranna hægra megin á vélinni, s.s. fjórir sílendrar voru að fá mjög hröð óregluleg merki, eins og morse-code, sem leiddi til þess að 10-20 ltr. af bensíni voru að fara á þessa fjóra sílendra og beint út í púst óbrennt. Þarna leindust þessi horfnu hestöfl sem vantaði í dyno testinu, bíllinn er allt annar núna, mjúkur, þíður, hljóðlátari, kraftmeiri og sparneitnari. Djöfull er gaman að keira núna! Ég mæli með strákunum í TB. 