bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Almennt info um e53 X5 4.8is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=60301
Page 1 of 3

Author:  Giz [ Fri 01. Mar 2013 09:12 ]
Post subject:  Almennt info um e53 X5 4.8is

Sæl samkunda,

Góðann mann hér í bæ langar að losna við X5-inn sinn sem hann tók uppí annað fyrir þónokkru. Mig hefur alltaf langað í X5, tala nú ekki um V8 með s-i í endann... Ædíjal væri náttúlega 4.6is, tala nú ekki um í Imola rauðu,,, en flugmaðurinn virðist ekki vera á því að selja, og það er orðið fásinna að flytja þetta inn því miður, þó verðin úti séu oft á tíðum pínötts, þannig.

Þetta er allt á hugmyndastigi ennþá og því væri gaman að heyra eihverjar sögur...

Bíllinn sem um ræðir er 2004 módel, umboðsbíll. Það er nýlega búið að fara í vélina beggja megin og laga það, og mér skilst á Bjarka að það sé búið að gera roza mikið fyrir þennann bíl í gegnum árin. Hef því ýmsar upplýsingar frá ýmsum stöðum, en langaði að sjá hvort meira info fyndist.

EF af yrði, myndi M5 fá að fjúka fyrir X5 þar sem nóg er orðið af öðrum projektum, bæði í bíla og húsnæðisformi, enda þurfum við næsta vetur bíl til almennrar notkunar á Íslandi og X5 hentar jú mun betur til slíks brúks en M5, þó M5 á góðum vetrardekkjum sé eðal vetrarbíll!

En s.s., einhver frekari fróðleikur??

G

Author:  Angelic0- [ Fri 01. Mar 2013 15:03 ]
Post subject:  Re: Almennt info um e53 X5 4.8is

Ég veit hvaða bíll þetta er :!:

AFAR smekklegt eintak, og ég myndi ekki hafa neinar áhyggjur af því að það sé að koma að viðhaldi, virðist vera að eigandinn hafi bara flutt lögheimili sitt til B&L / Eðalbíla :lol:

Virðist samt ekki vera vegna bilana heldur var eigandinn víst gíga/mega/ofur spes á að þetta þyrfti að vera 250% í lagi...

Myndi ekki hika ef að ég hefði nægt fjármagn.... ég skal samt skipta við þig á 2003 318d og M5 :twisted:

Author:  Einsii [ Fri 01. Mar 2013 15:32 ]
Post subject:  Re: Almennt info um e53 X5 4.8is

Þurfa þeir ekki að vera 2005 til að fá X-Drive, eða var það 04?
Eldra 4WD kerfið er heimskt í snjó.

Author:  Giz [ Fri 01. Mar 2013 18:01 ]
Post subject:  Re: Almennt info um e53 X5 4.8is

OK, en jú, minnir að X-Drive hafi komið seinna.

Spái eitthvað í þetta, hefur frekar verið ráðið frá þessu en ekki af mörgum vitringunum...

Ætla líka að skoða útrásar RR :)

Sjáum hvort ég tími að láta M5 fyrir það fyrsta.

Thx,

G

Author:  Alpina [ Fri 01. Mar 2013 18:02 ]
Post subject:  Re: Almennt info um e53 X5 4.8is

2 bílar voru fluttir inn held ég,, Steingrár sem BB í Múrbúðinni keypti ,, MEGA FLOTTUR og svo annar sem ég veit ekkert um

Author:  Giz [ Fri 01. Mar 2013 18:26 ]
Post subject:  Re: Almennt info um e53 X5 4.8is

Alpina wrote:
2 bílar voru fluttir inn held ég,, Steingrár sem BB í Múrbúðinni keypti ,, MEGA FLOTTUR og svo annar sem ég veit ekkert um


Þessi er held ég sá, var einnig á AK lengi vel skilst mér...

Author:  Aron [ Fri 01. Mar 2013 23:27 ]
Post subject:  Re: Almennt info um e53 X5 4.8is

átti ekki kári stef 4.8 is bíl?

Author:  saemi [ Sat 02. Mar 2013 00:56 ]
Post subject:  Re: Almennt info um e53 X5 4.8is

Ég blæs á það að það þurfi X-drive.

Ég er búinn að aka mínum "non-X-drive" í marga vetra og það er EKKERT vandamál á vetrardekkjum.

Author:  Alpina [ Sat 02. Mar 2013 09:10 ]
Post subject:  Re: Almennt info um e53 X5 4.8is

saemi wrote:
Ég blæs á það að það þurfi X-drive.

Ég er búinn að aka mínum "non-X-drive" í marga vetra og það er EKKERT vandamál á vetrardekkjum.


ALGERLEGA sammála.............

þetta er þvílíkt hype,,,,,,,, :thdown:

eflaust betra ,, en X5 er EKKI OFFROAD bíll

Author:  Angelic0- [ Sat 02. Mar 2013 12:31 ]
Post subject:  Re: Almennt info um e53 X5 4.8is

Einsii wrote:
Þurfa þeir ekki að vera 2005 til að fá X-Drive, eða var það 04?
Eldra 4WD kerfið er heimskt í snjó.


:lol: FWD 4tw :!:

En svona að öllu gríni slepptu þá virkar eldra kerfið fínt ef að menn eru ekki að reyna að vera drift-kings... eða offroad í drullu eða skylirðum þar sem að bílarnir eru að kross-fjaðra mikið...

X-drive er náttúrulega snilld, en ég hélt að það væri bara Múrbúðar bíllinn í umferð :?:

Author:  Alpina [ Sat 02. Mar 2013 13:29 ]
Post subject:  Re: Almennt info um e53 X5 4.8is

Angelic0- wrote:

ef að menn eru ekki að reyna að vera drift-kings... eða offroad í drullu eða skylirðum þar sem að bílarnir eru að kross-fjaðra mikið...


Og þetta voru menn með í huga þegar E53 var framleiddur.............. :roll:

Author:  ///MR HUNG [ Sat 02. Mar 2013 19:12 ]
Post subject:  Re: Almennt info um e53 X5 4.8is

X-drive er geðveikt kerfi í snjó!

Author:  Einsii [ Sat 02. Mar 2013 20:52 ]
Post subject:  Re: Almennt info um e53 X5 4.8is

Gömlu ix bílarnir höfðu allskonar læsingar til að koma aflinu þangað sem þurfti það. Þessvegna virka þeir í snjó.
xi bílarnir höfðu bara bremsukerfið til að neyða aflið frá spólandi hjóli með að læsa því sem veldur náttúrulega mótstöðu við hin dekkin sem eru að reyna að koma bílnum áfram með lítið grip fyrir.
Ég varð alveg var við þetta vesen í 2001 330xi bílnum sem ég átti.

Svo kom X-drive sem byrjar á að færa aflið á milli fram og aftur hjóla áður en það fer að djöflast þetta í bremsunum og veita þetta viðnám sem stoppar xi bíl í snjó.


Félagi átti 2001 X5 og var ekki hrifinn fyrir norðan í snjónum.
Ég á 2004 X3, hann kemur á óvart í snjó og hálku.

Author:  Mazi! [ Sat 02. Mar 2013 21:31 ]
Post subject:  Re: Almennt info um e53 X5 4.8is

325IX E30 Touring :thup:

Author:  Thrullerinn [ Sat 02. Mar 2013 22:03 ]
Post subject:  Re: Almennt info um e53 X5 4.8is

Aron wrote:
átti ekki kári stef 4.8 is bíl?


Mig minnir það.

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/