bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Project Orca CD.
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=602
Page 1 of 2

Author:  oskard [ Mon 20. Jan 2003 17:49 ]
Post subject:  Project Orca CD.

Á einhver Project Orca CD sem er til í að "lána" mér ? :oops:

Author:  arnib [ Mon 20. Jan 2003 17:52 ]
Post subject: 

Hvernig er almennt með eign félagsmanna á
geisla diskum um BMW ?
Eigið þið shop repair CD og eitthvað svona dót?

Ég gæti kannski komið upp einhverju svæði
þar sem við gætum smellt þeim öllum inn
svo fólk gæti sótt þá.

Author:  gstuning [ Mon 20. Jan 2003 17:56 ]
Post subject: 

Hvað ertu að fara að gera?

Og hver heldurðu að viti hvað Project Orca CD er, fyrir utan mig og stefán, :)


Ef þú ætlar að setja M50B25 með 4wd þá gengur það ekki, það er hægt en alveg þvílíkt erfitt,

Ég á þennan disk en er næstum 100% vissum að hann sé týndur, annars þarf ég hann ekki til að setja mína vél eða einhverja M50/S50 vél í E30 því að ég kann þetta í hausnum á mér,

Ég skal hjálpa þér við þetta eins og ég get ef þú ert að fara að gera eitthvað swap

Author:  oskard [ Mon 20. Jan 2003 18:01 ]
Post subject: 

ef ég geri swap þá ætla ég ekki að hafa hann fjórhjóladrifinn.
Spuring hvort ixinn verði stock og með fjórhjóladrif og ég
kaupi mér síðan i bíl og setji nýja vél í hann.

annars langaði mig bara að skoða diskinn sjá hvað ég þarf
að gefa mér langan tíma í þetta ef ég fer í þetta osfv. þannig
að ef þú finnur hann hefði ég gaman að því að fá að kíkja á hann :wink:

Author:  arnib [ Mon 20. Jan 2003 18:01 ]
Post subject: 

GS Tuning:

Væriru ekki til í að finna hann fyrir okkur
og gera iso image af honum eða eitthvað álíka!

:roll:

Author:  gstuning [ Mon 20. Jan 2003 18:17 ]
Post subject: 

Ég skal reyna að finna hann,

En munið að hann kostaði $200 frá Zionsville,

God ég væri til í að eiga ETM diskinn hann er númer eitt að eiga,
Öll rafmagns tengd vandmál og lausnir, allir vírar og relay og allt bara,

Enn ég er með ETK diskinn bara,

Oskard :
hérna er smá listi sem þú getur skoðað og hvort að þú getir fundið þetta dót,

Vél til að kaupa? Hver er best? Til hvers þarfnast vélin?

Í E30 sem er ekki til ofur almennrar notkunar og má vera soldið "grófur" þ.e ekki super sleeper og er til að stappa og slæda, þá mæli ég með NON vanos ´91-´93 525i vélinni,
Það er hægt að setja milku grófari knastása í hana og fá miklu meiri hestöfl heldur en vanos, útaf því að of grófir ásar í vanos trufla vanosið,
að setja ása og kubb/tölvu setur vélina í svona 215hö, það er known fact.



Vandamál 1 : Olíupannan, á e36 er hún ekki hæf fyrir E30, En á E34 þá hentar hún þannig að það er best að kaupa 525i vél til a byrja með, spara sér 40þús í pönnu,

Vandamál 2 : Mótorpúðar og vélafestingar, Nota E28 6cyl mótorpúða báðum meginn, og setja í stock göt á subframinu, hjá mér hentaði þetta ekki því að heddið er svo miklu stærra á M vélinni,

Vandamál 3 : Drifskaft, drifskaft úr E36 með E30 upphengju

Vandamál 4 : Brake booster, E21 booster og master cyl, E30 booster passar ekki, það er annaðhvort E21 booster eða vökvastýriskerfið úr 7 bílunum og 5 gömlu,

Vandmál 5 : Víra vélina við bílinn, ef E30 bíllinn er ´88- þá er bara að nota C101 tengið við hliðina á öryggjaboxinu, þar eru allir þeir vírar sem þarf að víra spes, annars notar maður víranna sem fylgja vélinni

Vandamál 6 : Gírskipti búnaður, nota það sem kemur með vélinni, ef það passar ekki þá E36 dót úr sömu vél,

Þetta er styðsti listinn af vandamálum,

Ef þú sérð þér fært að leysa þessi þá ráðlegg ég þér að byrja að týna allt til og ekki byrja fyrr enn þú ert kominn með allt saman og sért vissum að ekkert vantar, ég var 14mánuði að þessu með mína vegna þess að ég gat ekki beðið, og það skipti engu þetta kostaði næstum mánaðarlaun í hverjum mánuði að geta haldið áfram, þetta M50B25 swap er piece of cake miðað við mitt S50B30 swap þannig að ég skal aðstoða þegar þig vatnar

Author:  saemi [ Mon 20. Jan 2003 18:55 ]
Post subject: 

Ég á parta katalogue-inn fyrir allt upp að (og með) E30, E12, E23

Er svo búinn að panta viðgerðardiskana fyrir E23 og E24.

Sæmi

Author:  Bjarki [ Mon 20. Jan 2003 19:44 ]
Post subject: 

Ég er búinn að fá ETM fyrir slatti marga bíla E32 E34 E36 og eitthvað miklu fleira en það hefur ekki ennþá tekist að koma honum inn :cry: það hlýtur að takast á endanum og þá dreifi ég þessu að sjálfsögðu. Ég skal kíkja á þetta sem fyrst.

Author:  oskard [ Mon 20. Jan 2003 21:32 ]
Post subject: 

Vá frábært endilega að láta vita og við finnum pláss fyrir
þetta einhverstaðar. :D

Author:  Propane [ Tue 21. Jan 2003 16:49 ]
Post subject: 

Ég gæti brennt þetta allt saman á DVD-disk fyrir þá sem vilja, á kostnaðarverði að sjálfsögðu, minnir að ég fái diskana á ca 500 kall.

Author:  oskard [ Tue 21. Jan 2003 17:21 ]
Post subject: 

það væri kúl.

Author:  arnib [ Tue 21. Jan 2003 18:14 ]
Post subject: 

Það eru allir hérna svo hjálplegir að það bara nær engum tökum :D
Ég væri allavega gjarnan til í að eiga allt þetta dót á diskum, hver veit hvernig bíla maður á eftir að eiga í framtíðinni. :lol:

Author:  oskard [ Tue 21. Jan 2003 18:20 ]
Post subject: 

Ég fæ DVD diska á 288kr. diskinn :D

Author:  bjahja [ Tue 21. Jan 2003 18:27 ]
Post subject: 

Ég væri til í að kaupa þetta af þér.

Author:  Svezel [ Tue 21. Jan 2003 19:45 ]
Post subject: 

Propane wrote:
Ég gæti brennt þetta allt saman á DVD-disk fyrir þá sem vilja, á kostnaðarverði að sjálfsögðu, minnir að ég fái diskana á ca 500 kall.


Er eitthvað fjallað um E39 á þessum diskum?

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/