Page 1 of 1

haha.. þessir bílar okkar stundum

PostPosted: Sat 23. Feb 2013 23:22
by íbbi_
má nú til með að deila,

stóð úti á svölum að grilla þegar ég sé svona líka glæsilegan E65/6 IL bíl leggja á stæðið, virkilega flottur Facelift bíll, ef ég man rétt er þetta 07 ish 730IL bíll,

ég náttúrulega missti tunguna nánast fram af 3ju hæð niður á stæði.. eigandinn var karl alveg í stíl við bílin.


stuttu seinna kemur maðurinn aftur og ætlar að fara, sé kveikna á ljósununum, en án þess að ég sé að veita því athygli þá stendur hann þannig í smá stund, svo sé ég kallin standa út úr bílnum, opna og loka hurðinni, sest aftur inn kveikir á ljósunum, stendur aftur út skellir hurðini og opnar aftur sest inn, þá byrjar bíllinn að blikka ljósunum randomly, framljósunum og stefnuljósunum, svo byrjar hann að reyna starta en bíllinn fer ekki í gang, þá bíður kallinn aððeins, en byrjar svo aftur, bíllinn blikkar öllum ljósum randomly og neitar að fara í gang, þá gefst karlinn upp og fer inn aftur,

stuttu seinna sé ég hann koma út og byrja aftur, og alveg sama sagan bíllinn slekkur og kveikir öll ljós fram og til baka og fer ekki í gang, þá sé ég að karlinn er orðinn semi pirraður og bíður aðeins, og á á meðan blikkar bíllinn greinilega inniljósunum alveg villt og galið á meðan

svo á endanum fór bíllinn í gang,


æji ég veðr nú að viðurkenna að ég hló nú aðeins af þessu, það er ekki alltaf tekið út með sældini að eiga þessa annars yndislegu bíla, og akkurat þetta eintak er nú ennþá alveg rándýrt apparat.

Re: haha.. þessir bílar okkar stundum

PostPosted: Sun 24. Feb 2013 00:35
by Angelic0-
Immobilizer problem :?:

Eða bara startarinn orðinn slappur :lol:

Gæinn í húsinu á móti mér á nú nýja Toyota Corolla sem að fór ekki í gang um daginn 2011 módel...

startarinn ónýtur.. svo að BMW er ekki eina dótið sem að bilar :lol:

Re: haha.. þessir bílar okkar stundum

PostPosted: Sun 24. Feb 2013 00:45
by íbbi_
nei þetta virtist nú e-h annað. bíllinn startaði alveg, fór bara ekki í gang,

það sem vakti athygli mína var hinsvegar þetta ljósablik, erum að tala um að bíllinn var að blikka öllum ljósum alveg randomly, fram og afturljósum stefnuljósum og inniljósum, og ekki í neinum takt við hvort annað

Re: haha.. þessir bílar okkar stundum

PostPosted: Sun 24. Feb 2013 01:19
by Angelic0-
úff, hljómar eins og eitthvað MAJOR :!:

Re: haha.. þessir bílar okkar stundum

PostPosted: Sun 24. Feb 2013 01:48
by srr
pottþétt flóðabíll með rafkerfisrugl

Re: haha.. þessir bílar okkar stundum

PostPosted: Thu 28. Feb 2013 15:37
by GudmundurGeir
Angelic0- wrote:Immobilizer problem :?:

Eða bara startarinn orðinn slappur :lol:

Gæinn í húsinu á móti mér á nú nýja Toyota Corolla sem að fór ekki í gang um daginn 2011 módel...

startarinn ónýtur.. svo að BMW er ekki eina dótið sem að bilar :lol:



Getur ekki verið ! Allir segja að Toyota bili ekki :wink:

Re: haha.. þessir bílar okkar stundum

PostPosted: Thu 28. Feb 2013 17:42
by -Hjalti-
GudmundurGeir wrote:
Angelic0- wrote:Immobilizer problem :?:

Eða bara startarinn orðinn slappur :lol:

Gæinn í húsinu á móti mér á nú nýja Toyota Corolla sem að fór ekki í gang um daginn 2011 módel...

startarinn ónýtur.. svo að BMW er ekki eina dótið sem að bilar :lol:



Getur ekki verið ! Allir segja að Toyota bili ekki :wink:


hún gerir það ekki 8)

Re: haha.. þessir bílar okkar stundum

PostPosted: Fri 01. Mar 2013 04:00
by íbbi_
það hefur alveg gleymst að segja mínum toyotum það

Re: haha.. þessir bílar okkar stundum

PostPosted: Fri 01. Mar 2013 15:08
by Angelic0-
íbbi_ wrote:það hefur alveg gleymst að segja mínum toyotum það


Já, ég var einmitt að losna við 2007 Corollu sem að var algjört sora eintak, bilaði gjörsamlega allt sem að gat bilað...